Vikan


Vikan - 01.06.1967, Qupperneq 32

Vikan - 01.06.1967, Qupperneq 32
Ronson RONSON fyrir dömur RONSON fyrir herra RONSON fyrir heimilið RONSON KVEIKJflRI er tilvalin tækifærisgjöf WORLD'S GREATEST LIGHTERS Krcbbamerkið (22. júní — 23. júl!): Kunningjahópur þinn er tvístraður og þú ert frem- ur leiður 02 finnur þér lítið til dundurs. Eldri mað- ur vill ganga í bandalag með þér og gæti samvera ykkar orðið þér mjög nytsamleg. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Aðaláhugamáli þínu miðar skammt, en þú gerir eins og þú getur. Þú ert fremur daufur og svartsýnn, en þú mátt ekki gefast upp, þú ert kominn of langt til þess að svo megi fara. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Einhver úr hópi fjölskyldu þinnar angrar þig með afskiptaserni sinni og ráðríki. Þú sérð eftir því ef þú ferð að illindast við' hann, þú þekkir hann of vel til þess. Föstudagurinn veitir þér mikinn létti. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Nýbreytni á vinnustað kemur þér til að una betur við þitt, en áður var. Þér notast tíminn ekki vel, því það stendur á ýmsu vegna fyrirhyggjuleysis. Helgin verður skemmtileg og þægileg. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Láttu ekki góða veðrið og áhugamálin trufla þig við skyldustörfin. Líkur eru til að þú breytir um vinnu. Þú verður mikið í hópi félaga þinna og þið leggið drög að ýmsum framkvæmdum. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ert ánægður og bjartsýnn þótt fjárhagurinn sé ekki eins og bezt verður ó kosið. Vinur þinn reynist þér ómetanlegur félagi. Þú stendur í margþættu braski, liklegast í sambandi við bíla. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú þarft að beita lagni og samningum tii að illa fari ekki fyrir þér. Mjög bráðlega þarftu að greiða skuldir sem þú áttir von á að geta frestað. Láttu ekki félagsstarfssemi trufla aðkallandi verk. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú færð góðar fréttir sem gætu orðið þér til hagn- aðar ef þú héldir rétt á spilunum. Þú skuldar bréf, þér myndi létta, ef þú lykir því af sem fyrst. Þú hefur hugann við allt annað en vinnuna. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Gakktu vel frá öllum samningum, sérstaklega að ekki sé hægt að leggja mismunandi merkingar í ógreinilegt orðalag. Þú ferð í langferð sem heppnast mjög vel, en hún verður nokkuð kostnaðarsöm. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vertu varkár, þú verður líklega fyrir einhverju óhappi, en gætni þin gæti dregið úr því. Þú átt skemmtilega ferð í vændum. Þú verður lítið i hópi félaga þinna. Heillalitur er gulur. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Vertu við öllu viðbúinn, óvæntir atburðir eru i vændum. Líkur eru á að þú dveljir að heiman um nokkurn tíma og muntu á þeim tíma kynnast ýmsu nýstárlegu. Þú tekur á þig nýjar skuldir. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr 11): Hafðu þig ekki mikiö i frammi. Það er skynsam- legt að láta aðra hafa forustuna. Þú átt í erfiðleik- um en úr þeim rætist á miklu jákvæðari máta, en þú hefur gert þér vonir um. 32 VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.