Vikan - 01.06.1967, Qupperneq 33
-......-...... ............ . -Klippið út auglýsinguna
Lönd & Leiðir-
ferðir sumarið 1967
MAÍ JÚNÍ JÚNÍ JÚLÍ JULI JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ JÚLÍ
31 19 20 4 4 18 18 21 21
8 dagar 18 dagar 15 dagar 18 dagar 15 dagar 15 dagar 22 dagar 12 dagar 19 dagar
írland Mallorca NorSurlönd Rúmenía Mið-Evrópa Beirut Beirut Rínarlönd Mallorca
JULI JÚLÍ JULÍ JÚLÍ ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST
21 23 24 25 8 16 16 17 18
19 dagar 15 dagar 10 dagar Ólafsvaka 23 dagar 17 dagar 15 dagar 15 dagar 15 dagar Heimssýn. 22 dagar
Mallorca Norðurlönd Færeyjar Mið-Evrópa Rínarlönd Beirut Mið-Evrópa Kanada » Mallorca
ÁGÚST ÁGÚST ÁGÚST SEPT. SEPT. SEPT. SEPT. SEPT. SEPT.
18 18 30 6 6 6 12 23 28
22 dagar 21 dagui 24 dagar 17 dagar 17 dagar 17 dagar 18 dagar 27 dagar S.um höfin 15 dagar Heimssýn.
Mallorca Beirut Spánn Rínarlönd Mið-Evrópa Spánn Rúmenía M.s. R Maris Kanada
Ferðir á vegum L & L hafa aldrei verið glæsilegri og ódýrari en í ár. Að ofan eru raktar allar hópferðir
á vegum L & L, brottfarardagar og dagafjöldi, en allar frekari upplýsingar er að finna í hinum
glæsilega, litprentaða bæklingi L & L, sem sendur er þeim er þessóska.
Ferðaskrifstofan LÖND & LEIÐIR
Aðalstræti 8 Símar 24313 og 20300
skoðun, að allir þeir, sem þátt
skyldu taka í morðinu, hefðu
komið sér saman um að nota
samskonar byssur. Eftir lang-
varandi rannsóknir mundi verða
unnt að segja til um það, úr
hvaða byssu hverri kúlu fyrir
sig hefði verið skotið, en fyrst
mundi sá verða tekinn til fanga,
sem fyrstur fyndist með vopn
þessarar tegundar, og sjálfir
morðingjarnir hefðu þá nægan
tíma til að sleppa úr landi. Lee
Harvey Oswald, sem látinn var
draga athyglina til sín í því
skyni að hinir kæmust undan,
varð nú sá, sem látinn var bera
sökina.
Ég gizka á að Clay Shaw hafi
fengið Oswald þetta hlutverk
vegna þess að hann hafi verið
afbrýðisamur við hann. Oswald
hafi verið búinn að gera Ferrie
honum fráhverfan.
Ég styrktist í grun mínum um
það að Shaw væri aðalmaður-
inn í samsærinu, þegar James
Dondson, sem var í þingum við
hann, var yfirheyrður. Á þeirri
stund, er Kennedy var myrtur,
lágu þeir í rúmi í hótelherbergi
Dondson og Shaw. Fáeinum mín-
útum eftir að morðið var framið,
hringdi maður nokkur að nafni
Richard Randhoff til Shaw og
sagði honum að skotið hefði ver-
ið á forsetann. Þó að maðurinn
segði ekki annað, þóttist Shaw
samt fullviss um að Kennedy
vagri and^ður. Hann lktgði á,
sneri sér að Dondson og sagði:
,,Nú verð ég að fara og gera
tveimur mönnum viðvart.“
Ósannsöglin er runnin þeim
í merg og bein.
Og nú færi ég fram sterkasta
þáttinn í sannanakeðju minni
gegn Shaw. f sama mund sem
Shaw var að tala í símann, var
hringt til Dean Andrews mála-
færslumanns, og gerði það mað-
ur nokkur að nafni Clay Bert-
rand, og bað hann málafærslu-
manninn að gerast verjandi Os-
walds. Þessi lögfræðingur, sem
einkum tók að sér mál kynvill-
inga, þekkti Oswald.
Ekki hefur leynilögreglu
Bandaríkjanna tekizt að finna
mann þennan. Ég gizka á að hér
sé um engan annan að ræða en
Clay Shaw.
Við því er að búast að kyn-
villingar skipti gjarna um nöfn
sín á milli til þess að forðast fjár-
kúgun. Samt er þeim ekki gjarnt
til að skipta um skírnarnafn.
Auðvitað sannar þetla ekkert um
það, að þessir tveir menn með
sama skímarnafni séu einn og
sami maður. En með því ég þótt-
ist hér hafa fundið þráð, sem
kynni að mega rekja sig eftir,
kannaði ég svo nákvæmlega í
þeim hóp, sem Shaw umgekkst,
að ekki varð um villzt að Shaw
notaði aldrei annað skírnarnafn
í sinn hóp en Bertrand.
Ekki var auðvelt að yfirheyra
þessa menn og fá þá til að játa
sannleikann. Kynvillingar vita
að þjóðfélagið lítur á þá sem
kynvillinga, og er þeim andstætt,
auk þess sem athæfi þeirra varð-
ar við lög. Þeir reyna því að
snúa sig eftir föngum út úr vand-
ræðum sínum með því að spinna
upp, umhverfa staðreyndum,
ljúga. Að síðustu verður þetta
svo tamt, að þeir vita varla hve-
nær þeir segja satt og hvenær
ekki.
Já, satt er það,
að ég dáleiddi vitni.
Til þess að fá þá til að játa
voru ekki nema tvær leiðir: Onn-
ur var sú að dáleiða þá, en hin
að gefa þeim inn það sem kall-
að hefur verið sannleiksserum.
Ég viðhafði báðar aðferðirnar,
og tókst þannig að koma saman
hinum síðustu hlekkjum í sönn-
unarkeðjunni. Shaw kallaði sig
Clay við Ferrie, en Bertrand við
alla hina á því tímabili er sam-
særið var á döfinni. Hann kall-
aði sig Clay Bertrand þegar hann
sótti um verjanda handa Oswald
að morðinu nýafstöðnu — hér
er ein sönnun fyrir því að kyn-
villingar hafi að þessu staðið.
Frá Ferrie og til Ruby var stutt
leið: árátta þeirra tengdi þá sam-
an. Nú þóttist ég sjá aðalatriði
málsins í skýru ljósi. Eftir var
aðeins að tengja saman hin
smærri atriði. Og ekki skyldi
mig undra það þó að Warren-
skýrslan, eins og hún leggur sig,
yrði gersamlega marklaus eftir
að eitt af þessum atriðum hefur
komið fram.
Vel veit ég það, að afskipti
mín af málinu eru ekki vel séð
meðal þeirra manna sem standa
að Warren-skýrslunni, né heldur
meðal bandarísku leynilögregl-
unnar. f fyrsta sinn sem ég birti
nafn Shaws opinberlega, lýsti
leynilögreglan því yfir að hún
væri löngu hætt að fást nokkuð
við Shaw, því engin sönnunar-
gögn hefðu komið fram mót'i
honum. Þar sem rannsóknar-
skýrsla Warren-nefndarinnnar
hafði inni að halda allar yfir-
heyrslur leynilögreglunnar en
Shaw var þar hvergi nefndur,
verður að líta svo á að leynilög-
reglan hafi haldið eftir yfir-
heyrslunni yfir Shaw.
Þá vaknar grunur um að fleira
kunni að vera í pokahorninu,
sem ekki kemur fram í skýrsl-
unni. Fyrst nokkru er haldið
leyndu, mun svo reynast að
skýrslan glati miklu í gildi, og
mundi þá réttmætt að efna til
nýrrar rannsóknar. Þá fyrst
mundi þess að vænta að málið
skýrðist.
Ég er sannfærður um að mér
muni takast að sannfæra réttvís-
ina um það að ásakanir mínar
á hendur þessum hóp manna séu
á rökum byggðar, að sönnunar-
gögn mín verði tekin gild. Ég
veit að nú er búizt við að ég
22. tbi. VIKAN33