Vikan - 21.09.1967, Side 3
DUSMÆ30R - ATHUGID
____________ heimilistækin eru byggð eftir kröfum norskra
neytendasamtaka — því ákaflega vönduð og verð hagkvæmt. KPS-
heimilistækin eru seld víða um heim: Á Norðurlöndum - Sviss — Vest-
ur-Þýzkalandi — Austurríki og jafnvel víða í Afríku — og standa sig
allsstaðar jafn vel.
KPS — 250 lítra kæliskópurinn er ókaflega fallegur —
sterkur og fyrirferðaIítilI. — Mól 60X60X 117 cm.
Skápurinn er með 22 lítra frystihólfi og er á hjólum.
Verð aðeins kr. 12.700,00.
KP3-automatic eldavélin er með bakarofni — hitaofni
jafnsuðuhellu — hraðsuðuhellu — gufihiti fyrir bakar-
ofn — lausri ofnrúðu — klukku og Ijósi. Er á hjólum.
370 lítra 67 X 94 X 103 cm.
500 Iftra 67X94X154 cm. - Verð frá kr. 18.900,00.
KPS frystikisturnar 320 lítra eða 500 lítra — eru með læstu loki
Ijósi — ryðfríum körfum og grindum í botninn — öryggisljósi
og eru á hjólum. KPS frystikisturnar eru ákaflega fyrirferða-
litiar miðað við geymslurými.
Eigum einnig 160 lítra og 330 lítra frystiskápa og sambyggðan
frysti- og kæliskáp 330 lítra.
KPS-heimilistækin fáið þér víða um land.
Sölustaðir í Reykjavík:
VERZLUNEM BÚSLÓÐ HF, Skipholti 19
BALDUR JÓNSSOlv] SF., Hyerfisgötu 37
AÐALUMB0Ð:
Einar Fai’estveil &Cohf.
/esturgötu 2 - II. hæð.
PRODUSERT OG GARANIEHl AV
_____norges storste
I HUSHOLDNINGSAPPARATER vv
K PETTERSENS S0NNER A S SARPSBORO
í FULLRI ALVÖRU
Að Vesta
á filmu...
Líklega deltur fáum í hug að
setjast niður í stofunni hjá sér
nú til dags og semja annál yfir
það helzta sem gerist hér norður
á hjara veraldar. Blöð, útvarp og
sjónvarp herma okkur daglega
frá alburðum líðandi stundar,
jafnt hérlendis sem erlendis. En
á einhvern hátt verðum við að
búa í hendur framtíðinni sem
réttastar frásagnir af því sem
gerzt hefur á okkar dögum. Með
hvaða hætti verður það bezt gert
á þessari miklu tækniöld?
Langt er síðan erlendar þjóðir
tóku að gera heimildarkvik-
myndir um merka alburði. Með
tilkomu íslenzka sjónvarpsins
höfum við kynnzt slíkum mynd-
um, og eftir þau kynni er al-
menningi væntanlega Ijóst, að
kvikmyndin er einmitt tækið til
þess að varðveita liðna merkis-
atburði. Annálar okkar daga
verða ekki skrifaðir, heldur fest-
ir á filmu, svo að komandi kyn-
slóðir geti séð þá með eigin aug-
um.
Aðeins örfáar heimildarkvik-
myndir hafa verið gerðar hér á
landi og er skaði að ekki skyldi
meira fé og tíma eytt til þeirrar
iðju. Við höfum verið seinir að
tileinka okkur þessa nýju tækni,
en nú er áhuginn líklega að
vakna. Seint á liðnu sumri var
sagt frá tveimur ungum mönn
um, sem unnið hafa að gerð
heimildarkvikmyndar um stríðs-
árin. Þeim hugkvæmdist að leita
til Breta og Bandaríkjanna í von
um, að þeir hefðu tekið kvik-
myndir af herstöðvum sínum hér
á landi á stríðsárunum. Þessi von |
rættist og aðeins örfá atriði I
þurfli að selja á svið og leika
til þess að fylla upp í eyðurnar.
Það verður sannarlega gaman
að sjá þessa heimildarkvikmynd ^
um stríðsárin. Þetta tímabil er
enn þorra manna í fersku minni,
og ekkert fyrirbæri seinni ára ,
hefur valdið eins gagngerum f
breytingum á lífi okkar og hátt-
um og einmitt það — hvort sem
sú breyting varð til hins betra j
eða verra. Og unga fólkinu verð- j
ur þessi heimur að öllum líkind-
um býsna undraverður og girni- I
legur til fróðleiks.
Við þurfum að gera fleiri I
heimildarkvikmyndir og það má j
ekki dragast lengi. Á hverju ári
glatast eilthvað, sem hefði verið
þess virði að festa það á filmu.
G.Gr.
2 VIKAN
38. tbl.
Sagan af
EdiSullivan
Ed Sullivan er tvímælalaust ein þekktasta sjónvarps-
stjarna í víðri veröld. Þáttur hans er orðinn 19 ára
gamall og hefur alla tíð notið gífurlegra vinsælda. —
INKSTU VIKU
íslendingar hafa kynnzt Ed Sullivan í Keflavíkursjón-
varpinu, og þess vegna er ekki ólíklegt að marga fýsi
að kynnast eilítið nánar ferli þessa manns. í næsta
blaði segjum við söguna af Ed Sullivan, hvernig þátt-
ur hans varð til og ýmis skemmtileg atvik, sem hann
hefur lifað í samskiptum sínum við frægustu skemmti-
krafta heims.
Helgi Sæmundsson skrifar að þessu sinni um byggða-
söfnin og hið merkilega starf sem þau hafa unnið á
undanförnum árum. Grein hans nefnist Hver einn bær
á sína sögu. . . Þá kemur annar hluti greinaflokks
Kristmundar Bjarnasonar um Grím Thomsen og Magda-
lenu Thoresen, Me3 dökkan lokk og mjúkan.
Dýrkeypt ástarævintýri nefnist þýdd grein, sem fjall-
ar um réttarmorð, sem talið er að framið hafi verið
í Bretlandi 1961. Mikið hefur verið skrifað um þetta
óvenjulega mál, enda vakti það alheimsathygli á sín-
um tíma. Smásagan verður innilend að þessu sinni:
Lygin eftir Ingibjörgu Jónsdóttur. Loks má nefna Sól-
skinsmyndir frá liðnu sumri og ótalmargt fleira.
Í ÞESSARIVIKU
DÓTTIR DAJANS Á VÍGSTÖÐVUNUM Bls. 4
TIL PÓLLANDS í LEIT AÐ KVONFANGI . Bls. 8
MEDAN BRJÓST MITT ÆSKA OG ÁSTIR
FYLLTU, fyrsta grein af þremur um Grím
Thomsen og Magdalenu Thoresen. Krist-
mundur Bjarnason tók saman ........ Bls. 10
SÆLL í SINNI TRÚ, smásaga Bls. 12
TÍGRISTÖNN, hin spennandi framhaldssaga
um ævintýri Modesty Blaise ........ Bls. 14
EFTIR EYRANU, þáttur Andrésar Indriðasonar
um nýjustu dægurlögin ............... Bls. 16
SJÖ MÍNÚTNA VERK OG HUNDRAÐ MILLJ-
ÓNIR í ÁGÓÐA......................... Bls. 18
HÚS OG HÚSBÚNAÐUR.................... Bls. 20
ANGELIQUE í BYLTINGUNNI, framhaldssag-
an um þessa vinsælu, frönsku ævintýrakonu Bls. 22
GENGIÐ UM SKÁLA, fjórða grein Sigurðar
Hreiðars um heimssýninguna í Montreal . . Bls. 24
HUMOR í VIKUbTKittN
ÚTGEFANDI; HILMIR HF.
Ritstjóri: Sigurður IlreiSar. Meðritstjóri: GyHi Gröndal.
BlaðamaSur: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri
Friöriksson. Drcifing; Óskar Karlsson.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiSsla og dreifing: Skipholt
33. Símar: 35320 - 35323. Pósthólf 533. — Verð í lausasölu
kr. 35. Áslcriftarverð er 470 kr. ársþriSjungslega, greiSist
íyriríram. Prentun og myndamót Hilmlr hf.
FORSÍÐAN
Fáir menn hafa verið meir I fréttunum að undan-
förnu en varnarmálaráðherra ísraels, Dajan. En
dóttir hans hefur líka komiS við sögu. Hún var á
vígvöllunum í leifturstríðinu fræga, og átti svo
sannarlega erindi þangað: Þar kynntist hún hinum
eina rétta, og við birtum myndir af brúðkaupi
þeirra á blaðsiðu 4.
Nei, og affur nei! Þið getið séð það í
fjölskyldualbúminu, að það hefur aldr-
ei verið skeggjaður maður í þessari
fjölskyldul
38. tbl. VIKAN 3