Vikan - 21.09.1967, Side 32
KVEIKJAIAR
.«s6í£
I j
: ii :
H
f i f
Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson
kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en
nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum.
Einkaumboð:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF.
Hverfisgata 89, Reykjavík.
n Hrútsmérkið (21. marz — 20. apríl): Tími þinn verður ódrjúgur, hann fer mikið í biðir og tafir. Þú fasrð gesti, en þeir hafa skamma við- dvöl. t>ú sleppur við útgjöld sem þú hefur kviðið fyrir. Þú kynnist skemmtilegum manni. & Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur nokkrar áhyggjur af gestum sem væntan- legir eru, en þeir fresta komu sinni um sinn. Þú kynnist hlutum sem reynist síðar meir mikils virði að hafa þekkingu á. Heillalitur er blár.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þér gefst góður tími til hvíldar og nýtur hans vel. Líkur eru á ferðalagi þar sem rómantík og fjör skipa æðsta sess. Þú tekur framförum á einhverju sviði. Föstudagur er heiliadagur. & Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Frítími þinn fer mikið í að snúast fyrir aðra. Góð vika til að ganga frá ýmiskonar samningum sem varða atvinnu þína. Leggðu áherzlu á að fá öll lof- orð staðfest. Miðvikudagur heppilegur til verzlunar.
ff fvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú tekur ákvarðanir sem valda þáttaskilum í lífi þínu. Þú hefur töluverðar fjárhagsáhyggjur og verð- ur að ganga að óhagstæðum kjörum. Eldri maður kemur mikið við sögu þína. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú tekur merka ákvörðun sem á eftir að hafa mik- il áhrif á afkomu þína. Kunningjar þínir reynast einkar samvinnufúsir, þegar til á að taka. Allt sem þú gerir einkennist af nákvæmni og hagsýni.
% Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Þú vinnur mjög kappsamlega að áhugamáli þínu. Þú kemur auga á nýjar fjáröflunarleiðir, en ættir að fá einhvern félaga þinn með þér til frekari ráða- gerða. Vertu varkár. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú átt erfitt með að losna við gamlan hlut, hann virðist tolla merkilega við þig. Það er mikils virði að samband þitt við nágrannana sé gott. Þið þurfið að vinna mikið saman á næstunni.
JSryJ Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Þú notar allar frístundir til heimsókna og smærri ferðalaga. Þú fyrtist við kunningjakonu þína, en láttu ekki reiðina valda ykkur frekari erfiðleik- um. Gleymdu ósættinni sem fyrst. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú kynnist persónu sem þér fellur afar vel við, vegna skoðana hennar. Metnaðardraumur þinn er að rætast, en hafðu taumhald á tilfinningum þín- um. Þú færð óljósar fréttir sem rugla þig í ríminu.
Meá Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september); Nágranni þinn opnar fyrir þér nýja möguleika. Þú verður spurður álits á vissum málefnum, en vafa- samt er hvort þú átt að segja eins og þér finnst. Þú skemmtir þér vel með fjölskyldunni. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Störf þín hafa tekist með prýði. Þú gerir eitthvað eða segir sem þér finnst hafa komið upp um þig. Það gerir það að verkum að þú nýtur þín ekki sem skyldi, þér finnst allir horfa á þig.
32 VIKAN
38. tbl.