Vikan - 28.09.1967, Qupperneq 9
í þessu húsi býr Karim á þakhæðinni, en Anuschka á hæðinni fyrir ncðan.
Hér á myndinni er það Anuschka sem snýr bakinu í ljósmyndarann. Myndin
er tekin á svölunum við íbúð Karims ok hitt fólkið cr cinkaritari Karims og
góður vinur hans.
aðal Evrópu, og persónulegur auð-
ur hans nemur einum milljarð.
Karim og Anuschka kynntust í
Saint-Tropez, litla bænum við
strendur Miðjarðarhafsins, sem
frægastur varð vegna þess að Bri-
gitte Bardot hafði þar aðsetur. Þau
hittust oft á næstu órum. Það sem
aðallega var álitið koma í veg fyr-
ir hjónaband þeirra, var það að
Anuschka er af gyðingaættum, og
þótt hún sé búin að taka múham-
eðstrú, virðist það ekki duga.
Faðir Karims, missti erfðaréttinn
eftir föður sinn, hinn gamla Aga
Khan, vegna hinna mörgu ástar-
ævintýra sinna. Karim veit að hann
verður að fara að vilja þegna
sinna. Einu sinni var sagt að öld-
ungaráð Ísmaelítanna hefði sett
Karim úrslitakosti, krafist þess, að
hann yrði að kvænast innan sjö
ára. Þessi orðrómur var þó kveð-
inn niður. Svo var farið að tala um
aðra stúlku, sem gott gjaforð fyrir
Karim, það var Dolores Guinness,
af Furstenbergættinni. Fólk hélt al-
mennt að Anuschka hefði orðið að
draga sig í hlé.
En eftir að Anuschka eignaðist
soninn hafa slúðursögurnar komizt
á kreik aftur. Margir eru fullvissir
um að Karim hafi kvænzt ástinni
sinni á laun, og að þau bíði bara
eftir hentugu tækifæri til að tilkynna
hjónabandið.
Ein af vinkonum Anuschku segir:
— Anuschka er hyggin stúlka.
Hún hefur bæði þrek og þolinmæði
til að bíða. Ég hefi það á tilfinn-
ingunni að hún sé nú að nálgast
markið, eftir öll vonbrigðin undan-
gengin ár.
tesamoll þéttir
dyr og glugga.
Hið teygjanlega tesamoll fellur í
samskeyti og rifur rnilli fals og karma,
þar eð tesamoll er gert úr svampkenndu,
efni, sem útilokar bæði súg og vætu.
tesamoll deyfir hurðaskelli og þéttir dyrnar svo notalegur
ylur helzt í herberginu.
Þér getiS valiS um 4 gerSir af HUSQVARNA saumavélum, all-
ar meS frjálsum armi og nytjasaumum. Vegna frjálsa armsins
er mikiS auSveldara aS bæta buxnaskálm, eSa ermar, sauma
barnaföt o.fl.
VerS frá kr. 7.540.00
LeiSarvísir á íslenzku.
Kennsla innifalin í verSi.
HUSQVARNA GÆÐI - HUSQVARNA ÞJÓNUSTA.
*
^/annm, ^ts^aVMn Lf
Suðurlandsbraut 16 Reykjavilc Sinwelní: »Vohwr« - Sími 35200
Útibú Laugavegi 33.
39. tbi. VIKAN 9