Vikan


Vikan - 28.12.1967, Side 9

Vikan - 28.12.1967, Side 9
Frá afmælistónleikum Lúðrasveitarinnar í Háskólabíói síðastliðið vor. Lúðrasveit Reykjavíkur skömmu eftir að liún var stofnuð. Myndin er tekin við Hljómskálann. Lúðrasveitin Harpa, annað „foreldri“ Lúðrasveitar Reykjavíkur. — Harpa var stofnuð 1909 eða 1910, en myndin er tekin 1913. Sitjandi eru, talið frá vinstri: Einar Þórðarson, skósmíðameistari, Stefán Guðnason, verkstjóri, Sigurður Hjör- leifsson, múrarameistari, Kristján Sigurðsson, trésmíðameistari, Guðmundur Kr. Guðmundsson, skrifstofustjóri. Aftari röð: Axel Andrésson, knattspyrnuþjálf- ari. Eggert Jóhannesson, járnsmíðamcistari, Jónas Magnússon, bókbindari, Þor- steinn Thorlacius, prentsmiðjustjóri, Þórhallur Árnason, sellóleikari, Elías Ei- ríksson, Ágúst Markússon, veggfóðrarameistari og Villielm Stefánsson, prentari. Lúðurþeytarafélagið á æfingu, fremsta röð frá vinstri: Gísli Guðmundsson, bókbindari, Eiríkur Hjaltested, járnsmiður og Friðberg Stefánsson, járnsmiður. Önnur röð: Stefán Gunnarsson, skókaupmaður, Einar Halldórsson, póstur, Sig- uröur Gunnlaugsson, bakari, Ólafur Helgason, verzlunarrnaður og Hannes Helga- son, verzlunarmaöur (sonur Helga Helgasonar). Aftast: Pétur Ingimundarson, slökkviliðsstjóri og Sveinn Gíslason, trésmiður. KRHKKIIRniR íííekjh TÍniEIKK RÆTT VfÐ PÁL PAMPICHLER PÁLSSON TEXTI: DAGUR ÞORLEIFSSON Hann er bjartur á brún og brá.. ekki stórvaxinn en einbeitni og ötulleiki í fasi og hreyfingum, hlýr og óhvikull húmor í augna- og munndráttum. I honum býr sál þjóðar, sem árahundruðum saman hefur mótazt af fágaðri hámenningu, þjóðar sem ekki alls fyrir löngu réði stórveldi en er nú meðal smærri ríkja heims, þjóðar sem tók þeim örlögum með hóglátri karlmennsku þroskaðra manna og vekur enn aðdáun umheimsins með óbugandi stolti, háttvísi og glaðværð. Mað- urinn er Páll P. Pálsson, áður Paul Pampichler, stjórnandi Lúðrasveit- ar Reykjavíkur, Karlakórs Reykjavíkur og tónlistarkennari við lúðra- sveit barna og unglinga í vesturbænum, tónskáld með meiru. Hann hefur dvalizt hér á landi að mestu síðan 1949 og verið íslenzkur rík- isborgari síðan 1958. — Já, ég er Austurríkismaður að uppruna, fæddur níunda maí 1928 í Graz, sem er ein af stærstu borgum landsins og aðalborgin í fylkinu Steiermark, segir Páll. — Forfeður mínir hafa átt heima á þeim slóð- um frá ómunatíð. Frændi minn einn, sem var mikill áhugamaður um ættfræði, hefur sagt mér að hið upprunalega nafn ættarinnar hafi verið Muller, en það þýðir malari. Þegar menn tóku fyrst upp ættar- nöfn, voru þau oft dregin af atvinnu þeirra.. svo að eftir því hafa for- feður mínir einhvern tíma í fyrndinni verið malarar. En fyrir eitthvað tvö hundruð árum tók ættin upp sitt núverandi nafn, Pampichler. Ekki veit ég hvað það merkir, en frændi segir mér, að engin önnur ætt sé til með þessu nafni í öllum hinum þýzkumælandi heimi. Líklega hafa einhvern tíma verið byggingameistarar í ættinni, því skammt frá Graz 52. tbi. yiKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.