Vikan


Vikan - 28.12.1967, Page 22

Vikan - 28.12.1967, Page 22
Lísa Todd líkist 010001' sinoi oop á hár Liza Todd, sem er tíu ára, hefur nú þegar lært að koma fram fyrir kvikmyndavélina. Það er greinilegt að hún sver sig í ættina. Mamma hennar er Elizabeth Taylor og pabbi hennar hinn framliðni stórframleiffandi Mic- hael Todd. Liza hefur fengið lítið hlutverk í kvikmyndinni „Goforth", sem nú er verið að taka á Sardiniu, og móðir hennar leikur titil- hlutverkið, (heimsins ríkustu konu, frú Floru Goforth). Kvikmyndahandritið er eftir Ten- nessee Williams. Hjónin Liz Taylor og Ric- hard Burton búa ýmist í nýju einbýlishúsi, sem þau keyptu og stendur uppi í fjallshlíð, þar sem þau geta fengið að vera í friði, eða um borff í skemmtisnekkjunni „Kalizma“, fyrir utan Caccia höfða. Liza og systkini hcnnar (sem eru hálfsystkini og fóstursyst- kini) eru alltaf í fylgd með þeim, og sömu- leiðis amerísk kennslukona barnanna. „Kal- izma“ heitir í höfuðið á Kathie, hinni níu ára gömlu dóttur Burtons (af fyrra hjóna- bandi), Lizu og kjördótturinni Mariu. Tveim fremstu stöfum úr hverju nafni var slegið saman, og úr því varð nafnið Kalizma. Leik- stjórinn, sem álítur Lizu mjög gáfað bam, er enginn annar en hinn þekkti Joseph Losey . . . Sio damr or áflur ðbekktri drepsótt í Vestur-Þýzkalandi hafa nú sjö manneskjur látizt úr dularfullum hitabeltissjúkdómi, sem veira veld- ur. Hefur pest þessi verið kölluð „apaveikin'. Staf- ar heiti þetta af því, að allir hinir látnu höfðu átt einhvern þátt í flutningi og meðhöndlun hundrað og átján grœnna markatta frá Úganda í Austur- Afríku. Komið var með a.pana á flugvöllinn við Frankfurt tuttugasta og áttuna júlí og þeir fluttir í þar til útbúnum flutningabílum til læknafirmans Behring í Marburg og Paul Ehrlich-stofnunarinnar í Frankfurt, þar sem nota átti þá við tilraunir og framleiðslu á mænusóttarbóluefni. Þremur vikum síðar voru fjórir starfsmanna stofnana þessara látn- ir. Fyrst var gizkað á að um gulusótt væri að ræða. En henni dreifir hitabeltismýfluga nokkur. Ekki er vitað til þess að apar eða önnur spendýr hafi nokkru sinni orðið smitberar sýkinnar. Þó eru einkenni hinnar nýju pestar nákvæmlega þau sömu og gul- unnar — kölduflog, höfuðverkur og hár hiti. Alls hafa tuttugu og sjö manns tekið „apaveikina“. Það hefur verið upplýst að allir, sem veiktust, höfðu unnið við flutning apanna eða sýslað eitthvað við blóð þeirra eða annað, sem úr þeim var tekið. Þeir, sem ábyrgð bera á innflutningi dýranna, halda því fram, að engin fyrirframrannsókn hefði getað hindrað ósköpin. Eftir öllum líkindum að dæma er hér komið fram nýtt og áður óþekkt afbrigði af gulusótt. Forríkur Indjáni fór í spilavítin í Las Vegas og tap- aði stórfé. Þá fór hann upp í fjöllin og kynnti bál til að senda reykskeyti: Sendið mér 5000 dollara símaávísun þegar í stað. Nú vildi svo til. að um leið var sprengd atómsprengja í tilraunaskyni í nánd við Las Vegas. Og ríki Indjáninn varð dálítið hissa, þegar hann las svarreykinn; — Peningarnir koma eins og skot, þú þarft ekki að æpa svona! Hayley Mills er orðin tuttugu og eins árs, og álítur að hún ráði sjálf gjaforði sínu. Sá út- valdi er hinn 54 ára gamli kvikmyndafram- leiðandi og leikstjóri Roy Boulling. Hann hefur verið kvæntur þrisvar, á sex fullorðin börn, fjögur eldri en Hayley, og hefur ekki ennþá fengið skilnað frá þriðju konu sinni. Haley og Roy urðu ástfangin hvort af öðru meðan á töku kvikmyndarinnar „The Family Way“ stóð. Mamma og pabbi Mills eru ekk- ert sérstaklega hrifin af þessum ráðahag, en Hayley sver og sárt við leggur að hún taki eldri menn langt fram yfir jafnaldra sína. Hér fannst lík Christine Darby — en morð- inginn gengur ennþá laus. Allt Enoland leltar morð- inoians Heita má að allt England Ieiti nú óþekkts manns á aldrinum þrjátíu og fimm til fjöru- tíu ára. Hann kvað vera meðal'hár, hárið svart og greitt aftur og andlitið ávalt. Þetta er svo til það eina, sem vitað er um manninn, ef mann skyldi kalla. Hann hefur þegar myrt þrjár litlar stúlkur, misboðið þeim kynferðislega og kyrkt þær. Lögreglan hefur ekki leitað af jafnmiklu kappi síðan lestarránið mikla var framið i ágúst 1963. — Nærri þúsund lögregluþjónar og sextíu spor- hundar voru gerðir út af örkinni þegar Christine Darby, sjö ára, fannst myrt í skóg- lendi í Cannock, Staffordshire, ekki allfjarri Birminbham og nálægt aðalvcginum A 34. Fyrsta morðið var framiff í september 1965, þegar Margaret Reynolds, sex ára, hvarf að heiman frá sér. Þremur mánuðum síðar, í desember sama ár, hvarf Diane Tift, fimm ára. Lik þeirra fundust í janúar í fyrra hlið við hlið í díki viff alveg A 34. Á sömu slóðum hvarf í ágúst í fyrra Jane Taylor, tíu ára. Nítjánda ágúst síðastliðinn nam óþekktur maður í ljósum fólksbíl staðar í bænum Wal- sall, sem er við A 34, og spurði nokkur böm, sem voru að leik, eftir ákveðnu heimilisfangi. Christine Darby, sem var skrafhreyfust bam- anna, fór inn í bílinn og hvarf á brott með ókunna manninum. Þremur dögum síðar fannst hún myrt og hálfnakin í aðeins fárra kílómetra fjarlægð frá staðnum, þar sem hin- ar telpurnar tvær höfðu fundizt. Lögreglan gerir ráð fyrir að maðurinn sé lialdinn morðlosta og að hann sé vel kunnug- ur á þeim slóðum, þar sem illvirkin hafa verið framin. Heyrt í læknabiðstofu: — Maðurinn minn er stýri- maður á millilandaskipi, og er heima bara einn mán- uð á ári. Með hluttekningu: — En hvað þaW hlýtur að vera leiðinlegt. Með bjartsýni: — O, jæja, einn mánuður er ekki svo lengi að líða. Gamla konan hafði setið lcngi með prjónana sína í ruggustólnum undir gömlu veggklukkunni. Svo stóð hún upp að ná sér í meira band. Þá hlunkaðist klukkan ofan af veggnum ofan í stólinn. — Gamli maðurinn gömlu konunnar leit upp úr blaðinu sínu með semingi og sagði: Alltaf skal þessi klukku- skömm vera of sein! 22 VIKAN 52- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.