Vikan


Vikan - 28.12.1967, Page 23

Vikan - 28.12.1967, Page 23
RONSON KVEIKJARAR Vanti ykkur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ £ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Gamall vinur þinn þarfnast uppörvunar og hjálpar þinnar. Erfiður tími fer í hönd og þú þarft að vera útsjónarsamur og kjarkgóður. Hafðu sem bezt sam- band við fjölskyldu þína. ájli Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú hefur komið fram af mikilli óháttvísi og hefur slæma samvizku íit af. Þú skalt taka sjálfum þér tak og gera þér grein fyrir hvar þú ert staddur. Þú færð ánægjulega gjöf. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú lærir að meta eiginleika í fari fólks, sem þú hef- ur lítinn gaum gefið áður. Vinur þinn er dálítið dul- arfullur, en hann hefur góðar ástæður til þess, það muntu fá sannað bráðlega. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Stuðlaðu að þroska listrænna hæfileika þinna. Þú bjargar miklum fjármunum persónu, í nágrenni við þig, en þakkirnar verða ekki sem skyldi. Allt verð- ur ánægjulegra, ef þú- nýtur í félagi við aðra. § Tvíburamerkið (22. rr.aí — 21. júni); Þú átt í vændum breytingar á högum þínum, iíkast til verða þær ekki til mikilla bóta fyrst í stað, það fer eftir þínum eigin dugnaði. Þú færð ekki þá að- stoð er þú hafðir sett traust þitt á. Bogamannsmerklð (23. nóvember — 21. des.): Þú færð verkefni sem öll fjölskylda þín getur unn- ið að með þér. Sýndu ákveðinni persónu meiri til- litssemi og skilning en þú ert vanur. Þú munt gera þér ljósar staðreyndir sem gera þig forviða. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Þú hlakkar mikið til ferðar, sem þú átt í vændum. Ekki er ólíklegt að þú verðir að taka á þig nýtt gervi í því sambandi. Kunningi þinn bendir þér á fljótvirkari aðferðir í sambandi við áhugamál þitt. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Láttu ekki of marga komast á snoðir um fyrirætl- anir þínar. Þú færð hrós frá vinnuveitanda þínum fyrir verk sem þú hefur leyst vel af hendi. Veittu öðrum af því sem þú átt nóg af sjálfur. Ljónsmerkið (24. júl( — 23. ógúst): Þú verður virkur þálttakandi í miklum gleðskap, sem mlkill undirbúningur hefur verið að. Þú skalt vinna ötullega að því að koma draumum þínum í framkvæmd. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl: Vandaðu framkomu þína, sérstaklega skaitu varast að skapsmunir þínir gangi úr skorðum. Viðskipti eru hagstæð, sérstaklega ef um miklar fjárhæðir er að ræða. Þú verður í fjölmennu fjölskylduboði. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Maka þínum eða nákominni persónu liefur lilotnazt nokkuð, sem þú hefur lengst af óskað fyrir þig sjálfan. Þú þarft að leggja þig allan fram til að láta hugsanir þínar ekki 1 ljós. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Óánægja þín sprettur af óhagstæðri útkomu fjár- muna þinna. Þú leitar til réttra aðila sem munu bjarga þér úr verstu klípunni, en það kostar þig nokkuð. Heillatala er sjö. 52. tbi- VIKAN 23 »

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.