Vikan


Vikan - 28.12.1967, Page 41

Vikan - 28.12.1967, Page 41
p til að þetta heppnaðist, segir Andor. — En gleymdu ekki að þú gekkst lengra, þú giftist öðr- um manni! — Já, sagði Martha og brosti. — Hvað skeði svo? — Thore hvarf á hæverskan hátt, en við fórum á hótel, segir Martha glaðlega. — Það var ef til vill hjúskaparbrot í tagaleg- um skilningi, en ég held ekki að neinn sem veit allar ástæð- ur sjái neitt syndsamlegt við það. Ég er ótrúlega hamingju- söm, og ég vona aðeins að allt gangi vel úr þessu. Ég vil gera allt sem ég get, til þess að And- or geti verið hamingjusamur. — Ég hlakka til að taka til hönd- um hér í íbúðinni, það er sann- arlega þörf á því. Hún festir augun á blómum sem standa í sultukrukku. Svo tekur Andor fram í. — Ég vona að þér takið ekki þessar fjölkvænisyfirlýsingar mínar alvarlega, segir hann. — Þegar ég hugsaði þannig var það þessi tilgangslausa barátta fyrir frelsi, sem var að kæfa mig. Það trúir því enginn, nema sá sem sér það með eigin augum, hve ömurleg þau lífskjör eru, sem al- menningur býr við í Ungverja- landi. Maður kemst ekki þver- fóta. Það er vita tilgangslaust að reyna að eignast eitthvað eða gera eitthvað. Og ef maður finn- ur að stjórn landsins, gengur það út yfir fjölskyldur manns og ættmenni. Ég sé þetta í ennþá skírara ljósi, eftir að ég losnaði úr prísundinni. Ég vonast til, að við getum öll orðið hamingju- söm hérna, við hefðum aldrei getað gleymt hvort öðru. Nú lá beint við að spyrja hvort Martha og Andor ætluðu að gifta sig aftur, þegar hægt væri. Þau segjast ekki ætla að gera það að svo stöddu, fyrst ætla þau að búa saman um hríð. —- En við höldum að það sé ekki vafi á því að það gangi vel, segir hann. Þetta er eiginlega endirinn á þessu furðulega ævintýri úr raunveruleikanum, tíminn leiðir í Ijós hvort þau verða ánægð í nýja landinu. Thore Jonsson var trúlofaður Ingrid Backström, þegar hann gekkst inn á að hjálpa Andor. En nú verður hann að bíða þang- að til hann fær löglegan skilnað frá Mörthu, til að geta kvænzt kærustunni. ... tftr Krakkarnir þurfa að .. Framhald af bls. 10. — Þú Hefur verið of ungur til að lenda í herþjónustu? — Jó, en það munaði litlu. Ég var kallaður inn skömmu fyrir lok- in og settur í heraefingar, þótt ég væri aðeins fimmtán ára og þar að Höggdeyfar í ameríska bíla: í evrópska bíla: BUICK COMMER CHEVROLET I FÍAT CHEVROLET II FORD enskir CHRYSLER FORD þýzkir DODGE HILLMAN FORD MERCEDES BENZ FAIRLANE OPEL FALCON RENAULT MERCURY SAAB PLYMOUTH SIMCA VATNSLÁSAR f PONTIAC SINGER MARGAR GERÐIR RAMBLER VAUXHALL JEEP-WILLYS VOLVO LOFTNETSSTENGUR VOLKSWAGEN í MIKLU ÚRVALI Al I T A SAMA STflf) EGILL VILHJALMSSON HF. LAUGAVEGI 118 - SÍMI 2 22-40 auki ósköp lítill og dúkkulegur eft- ir aldri. En sem betur fór kom ekki til þess að ég þyrfti að taka þátt í manndrápunum. — Var barizt um Graz? — Það var ekki barizt í borginni sjálfri, en eitthvað talsvert fyrir sunnan, við landamæri Júgóslavíu. Rússar komu úr þeirri átt og að austan og tóku borgina og héldu henni um nokkurt skeið, en afhentu Bretum hana síðan, því hún var á því hernámssvæði, sem þeim var úthlutað þegar vopnahlé var gert. Þegar borgin var tekin, var ég úti í sveit; hafði fengið þar vinnu við heyskap og önnur landbúnaðarstörf. Var ég matvinnungur, en þá var mikill skortur á öllum lífsnauð- synjum í borgunum. En mér hafði borizt til eyrna að í ráði væri að stofna að nýju hljómsveit ( Graz, og í hana langaði mig að komast. Þar kom að ég ákvað að stelast heim og gerði alvöru úr þv(. Ég faldi mig í flutningalest, sem fór með alls konar varning, þar á með- al lifandi fénað, til Graz. Undir venjulegum kringumstæðum er þessi lest þrjá til fjóra klukkutlma á leið- inni, en nú voru umferðartruflanir sKkar, að ferðin tók tvo daga. All- an þann tíma varð ég að vera ( felum, því að ég hafði jú stolizt úr vinnumennskunni. Þegar ég loksins komst á leiðarenda og var á labbi eftir götunum með pokann, sem ég hafði utan um trompetinn, stöðvaði mig rússneskur hermaður. Hann lét heldur dólgslega, otaði að mér byssunni og spurði mig hranalega á sinni takmörkuðu þýzku, hvað ég væri með í pokanum. Ég sagði hon- um það, það er nú trompetinn minn, sagði ég. Farðu þá að blása, skip- aði hann. Og ekki kom auðvitað annað til greina en að hlýða, og þarna fór ég að leika á trompet- inn út á miðri götu. Rússinn varð stórhrifinn, óð ofan í vasa s(na og kom upp með heilmikið af tóbaki sem hann gaf mér. Eða eins konar tóbaki, getum við sagt, þv( þetta var nú hálfgerður ruddi. Svo vildi hann gefa mér vodka, en ég sagð- ist vera fullungur fyrir það. Nú, svo sótti ég um vinnu hjá hljómsveitinni og komst strax að, enda búinn að læra á trompet í sex ár. Ég var að vísu ungur, en það var hörgull á tónlistarmönnum; margir höfðu fallið ( strfðinu og aðrir voru í fangabúðum. í þessari hljómsveit lék ég ( fjögur ár, til 1949. A þeim tíma var ég svo hepp- inn að leika undir stjórn ýmissa frægra hljómsveitarstjóra, eins og Erichs Kleiber, Karls Böhm og Ottos Klemperer. Að vísu lék ég ekki und- ir stjórn Klemperers nema á æf- ingu, því að svo sorglega vildi til að hann fékk aðkenningu af slagi nóttina fyrir konsertinn, sem hann átti að stjórna. — Fylgdi ekki sama ógnaröldin hernámi Rússa í Graz og annars staðar, þar sem þeir komu? — Það var slæmt fyrstu mánuð- ina. Fyrstu hermennirnir, sem komu, voru flestir einhvers konar Mongól- ar, nema liðsforingjarnir, sem voru Rússar og yfirleitt ágætismenn, en framan af virtust þeir lítinn hemil geta haft á hermönnunum, sem voru hroðalegur lýður. Þeir voru svo lúsugir að maður sá kvikfénað- inn skríða á þeim úr fjarlægð. Það var talsvert um ofbeldisverk, rán og nauðganir. Þetta hafði auðvitað sínar afleiðingar; ( dag rekst mað- ur stundum í Austurríki á rúmlega tvítugt fólk með skásett mongóla- augu. En þótt þessir hermenn væru ruddar og svifust einskis, þá voru þeir einkennilega barnalegir öðrum þræði og jafnvel öðlingar á sína vísu. Einu sinni brutust þeir inn í banka og hirtu þann pening sem til var. Þá stillti einn þeirra sér upp fyrir framan húsið og útbýtti hundr- að sillinga seðlum til allra, sem tóku við, hvort sem þeir voru Rúss- ar eða ekki. Við strákarnir notuð- um okkur þetta vel, því við geng- um hring eftir hring í kringum bygg- inguna og urðum því nokkrum hundruðum sillinga ríkari þann dag, hver okkar. Og Páll hlær. Fólk af þjóðum, sem þolað hefur miklar hörmung- ar, veit að jafnvel mjög slæmar að- stæður geta búið yfir einhverjum húmor. — En svo lagaðist þetta, heldur hann áfram. Það var hert á her- lögunum og tekið mjög strangt fyr- ir öll ofbeldisverk. — Það var 1949, sem þú komst til íslands, var ekki svo? — Það er rétt. Þar átti Franz Mixa hlut að máli. Ég fékk boð um að koma heim til hans kvöld eitt. Þar var þá staddur annar gestur, sem reyndist vera Björn Jónsson, framkvæmdastjóri tónlistarfélagsins hérna. Hann var þá á höttunum eftir hljómsveitarstjóra fyrir Lúðra- sveit Reykjavíkur. Mixa benti um- svifalaust á mig, þegar ég kom inn, og sagði við Björn: Þetta er maðurinn sem á að stjórna lúðra- sveitinni fyrir ykkur. Svo báðu þeir mig að ganga afsíðis, meðan þeir voru að ráða ráðum sínum. Síðar 52 tbl VIICAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.