Vikan


Vikan - 28.12.1967, Side 49

Vikan - 28.12.1967, Side 49
BlJLJL IKJLUJPBÆTI b. ! V l \ A ÞENNAX MlfíA GETIfí l‘í lt FENGIfí CAMAJtO SPORTBÍL SEM VEHfíUR AUKAVINNINGUR ÍMAÍ VORUHAVPDRMTTI HÍ US 1968 höfuðs. Hver sem hefði Lucille í haldi myndi ekki ávinna neitl við að drepa hana, jafnvel ekki ( varn- aðarskyni. Hún myndi annaðhvort lifa eða deyja, en möguleikar henn- ar voru meiri en Modesty og hans. Willie leit aftur á orrustuna. Mo- desty fikraði sig meðfram innri hring sviðsins, kvíðinn greip um maga hans um leið og hann sá fyrst votta fyrir þreytu f fótaburði hennar. Hann velti því fyrir sér hvort hún hefði geymt trompið of lengi. Hernaðarlist hennar hafði fram til þessa verið góð. Hún hafði spillt samlyndi Tvíburanna, áður en átök- in byrjuðu, hún hafði prófað þá og refsað þeim. Hún hafði þolað harða refsingu sjálf, vegna þess að það var óumflýjanlegt. Átökin yrðu að standa nógu lengi til þess að viss atriði staðfestust, áður en hún léti til skarar skríða, annars kæmi það ekki nóg á óvart. Ef hún gerði það of snemma með Tvíburana árvakra og tortryggna, hefði það vel getað brugðizt, það gat enn brugðizt, ef hún hefði geymt það of lengi. — Nú! hugsaði Willie ákafur. — Prinsessa, fyrir guðs skuld! Það var ekkert merki um örvænt- ingu á særðu andliti hennar, en ( staðinn fyrir kalda einbeitinguna var nú brennandi, dýrsleg glóð [ augum hennar. Öll þessi ár þeirra saman hafði Willie aðeins séð það tvisvar áður. Þetta var Modesty Blaise, gersamlega gagntekin villi- mannlegum og óbugandi vilja til að komast af og ekkert annað komst að. Honum létti ósegjanlega, þegar hann sá hana seilast með hægri hendi að vinstri öxlinni á blússunni. Hún rykkti kröftuglega í veikan sauminn og svipti erminni fram af handleggnum. Hún greip um líning- una með vinstri hendi og sveiflaði hinum endanum framan í Lok, þeg- ar Tvíburarnir réðust varlega að henni. Rifinn endinn af erminni snerti varla andlit hans, en samt kippti hann hendinni ósjálfrátt undan. Það fór skilningsleysishvískur um áhorf- endaskarann. Þarna var Modesty eins og krakki í skóla, sem leikur sér að því að slá með röku hand- klæði, hún sló aftur með erminni og svo hörfaði hún á ný. Chu rak allt í einu upp hlátur. Tvfburarnir juku ferðina, enn einu sinni slettist ermin f áttina til þeirra, en að þessu sinni hélt hún í axlar- endann. Chu gerði ekki tilraun til að vinda sér undan. Líningin skall á gagnauga hans, eins og endinn á keyri. Hann rak upp hrinu og skjögraði eins og dasaður. Aðeins Willie Garvin vissi hvers- vegna. Innan í allri líningunni var breið, mjúk blýþynna, tveir og hálf- ur þumlungur á breidd, sjö þum- lungar utan um úlnliðinn, ofurlítið meira en einn sextándi úr þumlungi á þykkt, alls rúmlega rúmþumlungur af blýi. Hún hafði kreist hann sam- an í kúlu meðan hún hélt á lin- ingunni og danglaði framan f þá með lausa endanum. Chu hafði verið slegin með blý- hnullungi, sem vó tæplega 260 grömm. Lok var úr jafnvægi og dróst með axlaslánni, þegar bróðir hans riðaði til hliðar og var næst- um dottinn. Aftur sló hún með erminni og höggið lenti utan á höfði Loks. Sí- vaxandi undrunarhróp fylltu þetta frumstæða hringleikahús, og í hljóðunum vottaði fyrir ákefð. Tvisvar enn hitti blýið það mark, sem þvi var ætlað, ekki af fullum krafti, vegna þess að það var ógernignur að slá þannig á ákveðn- um tímum og hitta á rétta staði, en engu að síður var þessi ferfætta og fjórhenta skepna farin að riða blindandi. Málmhönd sem fálmaði frá sér í vörn, náði í endann á erminni og hélt fast. Modesty sleppti og kast- aði sér á Tvíburana, bókstaflega á milli þeirra. Þar var hún, í því eina návígi, þar sem hún var nokkurn veginn örugg fyrir höndum þeirra, andlit- ið fast við axlahlekkinn. Hún sló út höndunum og þreif um höfuð- ið. Það kom dumbur skellur, þegar hún skellti saman þessum tveimur, rökuðu hausum og svo stökk hún frá þeim aftur og Tvíburarnir rið- uðu, sigu í hjánum og var varla að þeir stæðu í fæturna. Hún náði í úlnliðinn á Lok og kippti í og sveifl- aði þeim í hálfhring. Nú sneru þeir baki við þverhníp- inu — og Modesty fyrir aftan þá. Hún stökk, þreif með sinni hönd utan um hálsinn á þeim, hvorum fyrir sig, aftan frá, spyrnti með fótunum í mjóhrygginn á þeim. Eitt andartak var allt kyrrt, svo 52. tbi. yncAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.