Vikan


Vikan - 27.06.1968, Page 8

Vikan - 27.06.1968, Page 8
 VIKAN OG HEIMILIÐ spyr í dag konur á ýms- um aldri þessarar spurningar, bæði í gamni og þó aðallega í alvöru. Það er alltaf verið að spyrja karlmennina um álit þeirra á konunni, eins og það sé þeirra að velja og hafna og kon- urnar eigi að reyna að þóknast þeim í öllu. Hér er þessu snúið við, spurningin er: „Hvernig eiga karlmenn að vera?". Ekki má ganga út frá því, að þessar konur hér séu að lýsa eiginmönnum sínum, þótt þær séu giftar, heldur þeim eiginleikum, sem þær meta mikils eða fella sig illa við, og engan veg- inn er víst, að þeim hafi hlotnazt — eða sloppið við — að eignast mann með þau einkenni. Af mörgu má ætla, að í hverri konu búi þrá, með- vituð eða ómeðvituð, eftir einhverju vissu hjá þeim manni, sem hún velur sér, einhverju, sem svarar til þess sama hjá henni, eða e. t. v. leitar hún að andstæðu sinni, til að bæta sér eitthvað J upp. Margir undrast makaval vina sinna, en þar 'j getur verið um svo frumstæða og innilega þörf i fyrir einhvern vissan eiginleika, að ytri atriði É hafi þar lítið að segja, t. d. útlit, efnahagur I eða menntun. Á hitt má svo líta, að tengsl karls f og konu geta verið svo margvísleg og marg- slungin, að jafnvel þeir eiginleikar, sem konan í rauninni metur mest, komi þar hvergi við sögu. En hvað um það, það er ætlazt til að konurnar svari þessu fremur hreinskilnislega, þótt þeim sé ekki bannað að bregða fyrir sig einhverju gamni — en þó ekki snúa út úr spurningunum. Þær eru líka beðnar að draga ekkert undan um áhrif við fyrstu kynni, en þar geta oft ver- ið svo ótrúlega smávægilegir og furðulegir hlut- ir, sem hafa áhrif, að það ætti að vera fróðlegt fyrir karlmennina að kynnast þeim viðhorfum. Það mætti segja mér, að svör kvennanna yrðu frábrugðin flestum karlmannasvörum um kon- una, þar sem fótleggir, hár og annað þvílíkt virðist oft ráða úrslitum. En gefum nú konun- um orðið. '1 HVERNIG EIGA KARLMENN AG VERA? 1. Hvaða eiginleika munduð þiS meta mest hjá FRÚ ANNA ÞÖRÐARDÓTTIR a) eiginmanni, unnusta og heimilisföSur? b) hjá karlmönnum, sem þið stofnið ekki til nánari tengsla við, t.d. á vinnustað, félögum til að skemmta ykkur með o.s.frv.? c) Hvaða eiginleika munduð þið sízt sætta ykkur við í báð- um flokkum? 2. Eftir hverju takið þið fyrst í fari karlmanna, sem þið hittið, t.d. útliti, fasi, framkomu eða klæðaburði og snyrtingu, og hvað af því finnst ykkur aðlaðandi og hvað fráhrindandi? 3. Takið fram ýmislegt annað að vild, sem ekki verður flokkað undir spurningarnar hér að framan, eitthvað, sem lýsir því, hvernig ykkur finnst að karlmenn ættu helzteða síztaðvera. 8 VIKAN 25-tbI- 1. Þegar ég var ung, fólust allar mínar óskir um manninn, sem ég veldi mér aS vini, unn- usta eða eiginmanni, í þessum húsgangi: Ég vil frlðan eiga mann, ungan, bllðan, hraustan, glaðan, þýðan, gáfaðan, guði hlýðinn, dyggSugan.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.