Vikan


Vikan - 27.06.1968, Síða 9

Vikan - 27.06.1968, Síða 9
Svo þegar árin liðu, fór mér að skiljast, að ekki verður á allt kosið. Hjó eiginmanni og heimilisföður met ég mest virðingu hans fyrir heimili, bömum og störfum vandaðrar eiginkonu í þágu heimilis þeirra allra. Hann taki með stillingu þvf, sem að höndum ber í daglegri sambúð, láti gjarnan f Ijós vel- þóknun, þegar vel tekst til, en geri ekki úlfalda úr hverri mýflugu, þegar ábjótar. Með öðrum orðum, hann sé ekki á höttunum eftir misfell- unum einum, en slíkt gæti gert hverja konu að saltstólpa. 2. Una augu, meðan á horfir. Ekki er það þó traustur grundvöllur fyrir nánari kynnum við karlmann, því að oft býr flagð undir fögru skinni. Það sem fyrst vekur athygli mína er handa- bandið. [ því má oft finna ýmist festu eða hálf- velgju. Þá er það augnatillitið. Lítur hann sljóum augum framhjá mér, eða mætir hann tilliti mínu? Svo eru það samræður. Velur hann þeim form við beggja hæfi? Hann þarf að vera fús að hlusta — og gefa góð svör, jafnvel við barna- legum spurningum. Með þvf gefur hann f skyn, að maður sé honum einhvers virði. Skopskyn karls met ég mikils. Græskulaust skyldi það vera. Mætti það gjarnan beinast að eigin skávönkum. Gæfi það til kynna töluverða eigin gagnrýni, án þess að kikna undan. Snyrtimennsku og natni í klæðaburði veiti ég athygli. Hvernig þar tekst til, tel ég vísbendingu um uppeldi, nostursamt eða hirðulaust. [ framansögðum orðum hef ég tínt sitthvað til, sem ég tel aðlaðandi í fari hvers karlmanns. Af þvf mætti ráða, að hið gagnstæða væri mér hvimleitt, enda hef ég sniðgengið slfka menn eftir föngum. Þetta að lokum: Hvers kyns vits- muna- eða menntahroki finnst mér Ijóður á ráði hvers karlmanns. Gildir það einu, hvort um löng eða skömm kynni er að ræða. FRÚ ÁSA FINNSDÖTTIR SJÓNVARPSÞULUR 1. Ég hygg, að flestir geri sér grein fyrir því, að það er ekki hægt að fá menn eftir upp- skriftum, hversu þægilegt sem það væri. Það, sem okkur finnst kostur hjá einum manni gæti verið anzi slæmur galli hjá öðrum, og það er með karlmenn eins og „kokkteilana", að það skiptir ekki meginmáli hvað er í þeim, held- ur hvernig tegundirnar blandast saman. En tll að svara nú þessum spurningum, sem fyrir mig eru lagðar vil ég taka það fram, að aliir karl- menn, sem ég þarf að þekkja, hvort sem er f sambúð ellegar lausleg kynni, þurfa skilyrðis- laust að vera skemmtilegir, það er að minnsta kosti skemmtilegasti eiginleikinn. a. Kostir eiginmannsins þurfa að vera býsna margir, ef vei á að vera, og þeir sem mér finnst þungir á metunum (fyrir utan skemmtilegheitin) eftir mínum dómi er heiðarleiki, óeigingirni, hugguleg framkoma og sfðast, en ekki sízt, ástúð og nærgætni. b. Aðrir karlmenn skipta mann eðlilega minna máli, en þurfi maður að hafa töluvert saman við þá að sælda er aldrei verra að yfir- borðið sé sæmilegt. Annað má vera eins og verkast vill. Vinnufélagar þurfa að vera sam- vinnuþýðir, þægilegir í umgengni, skemmtileg- ir, þó ekki um of. — Það, sem mér finnst mest miður í fari karlmanna, og það á einnig við um kvenfólkið, er óheilindi, kjaftháttur og sletti- rekuskapur. Það er ef til vill afsakanlegt hjá kvenfólki, en beinlfnis óþolandi hjá karlmönn- um. 2. Heildarsvipurinn skiptir að mfnum dómi meginmáli við fyrstu kynni, og eins snyrti- mennska. Glæsileiki skaðar yfirleitt aldrei, en mér finnst þýðingarmeira, að karlmenn séu snyrtilegir og kunni að hugsa um útlit sitt. Ég rek strax augun f það hvort skór eru óburstaðir og sorgarrendur undir nöglum og annað þvf um líkt. Þá verður maður fljótt var við hvort karl- menn eru álkulegir og klaufskir f framkomu og mér finnst, að þeir verði að leitast við að þræða hinn gullna meðalveg milli framhleypni og feimni. Eins og ég minntist á í upphafi eru kostir manna og gallar mjög teygjanleg fyrirbrigði og maður kemst að raun um það við nánari kynni, hvort kostur er kostur og galli galli. Aðalatriðið er, að maður kunni vel við sam- setninguna. FRO elsa e. guðjönsson SAFNVÖRÐUR Ég verð að játa, að ég hef ekki fylgzt með skrifum um álit karlmanna á því, hvernig kven- fólk eigi að vera. Ég hef ekki heldur hugsað neitt að ráði um, hvernig ég kysi helzt að karl- menn væru. En þegar ég nú sezt niður til þess að reyna að gera ofangreindum spurningum einhver skil, þá finnst mér í rauninni, að í höf- uðdráttum mundi ég æskja svipaðra eiginleika hjá því fólki, sem ég umgengst, hvort heldur séu karlar eða konur, þ. e. eiginleika, sem á engan hátt, að þvf er ég fæ bezt séð, eru bundn- ir við kyn, svo sem tillitssemi, áreiðanleika, jafn- lyndi og — ekki hvað sfzt — kímnigáfu. Við val á maka eða kunningja finnst mér ókaflega mikið aukaatriði, hvort karlmaður er laglegur eða Ijótur, hafi hann ofangreinda kosti til að bera — auk þess sem sumir menn eru blótt áfram „sjarmerandi" ófrfðir, ef mér leyfist að taka svo til orða. Stærð, hvort heldur hæð eða breidd, er einnig atriði, sem á engan hátt er afgerandi við maka- eða kunningjavai að mínu áliti. Hins vegar tel ég mjög mikilvægt að eiga sameiginleg áhugamól, og í því sambandi er óefað oft æskilegt, að um einhverjar hlið- stæður sé að ræða, til dæmis f uppeldi og mennt- un. Hvað vinnufélaga snertir, þá gildir raunar flest það sáma um þá. En aðalatriðið er þó, að gott sé að vinna með þeim, að þeir séu þægi- legir í umgengni og hjálpsamir, þegar leita þarf til þeirra um aðstoð — og hafi svo helzt kímni- gáfuna f lagil Ég geri mér ekki Ijósa grein fyrir hverju ég fyrst tek eftir í fari karlmanna. Ef til vill, hvort mér geðja'st að slifsinu þeirra. Mér fannst að minnsta kosti lengi vel, að skemmtilegra væri að koma auga á manninn á undan slifsinu; sem sé skoðanir mínar á þvi, hvort slifsi væru Ijót eða falleg voru kannski helzt til ákveðnar. Og ekki höfum við hjónin alltaf verið sammála að þessu leyti, en vandinn leystist á þann hátt, að ég fæ oftast að velja slifsin hans. A móti fær svo eig- inmaðurinn að segja til um höfuðföt mfn — og er óspar á útásetningar, þá sjaldan ég fæ mér hatt eða húfu án þess að hafa hann með í ráð- um! En þetta var útúrdúr. Annað, sem mig minnir, að ég taki oft eftir hjá karlmönnum, eru skór þeirra og sokkar, sér í lagi þó skór. Of oft finnst mér vilja brenna við, að sokkarnir fari ekki við fötin og skórnir því síður. Til dæmis Ijósbrúnir skór við dökk föt! En slíkt er auðvitað smekksatriði og auk þess fremur smávægilegt, þegar á allt er litið. Heldur finnst mér leiðinlegt, ef karlmenn eru illa snyrtir — nú, en það á við um kvenfólkið alveg eins — og þannig getur staðið á hjá mönnum, að ekki er hægt að vera „stífpússað- ur" að staðaldri. Ég hef nú í fljótheitum reynt að leysa úr spurningunum hér að ofan. Er erfitt að gera það, svo að gagni sé, og ég geri mér fyllilega Ijóst, að svari mínu er mjög ábótavant. A unglinga- skólaárum mínum vandist ég því að umgangast pilta sem jafningja. Hefur svo verið síðan, að því er mér finnst sjálfri, jafnt heima fyrir, í ^kunningjahópi og á vinnustöðum, og hefur svar íjmitt mótazt af því. Ég hef leitazt við, án þess Jað verða allt of hátíðleg, vona ég, að gera mér — og öðrum — grein fyrir, hvað mér fannst og finnst aðlaðandi og, að nokkru, fráhrindandi í fari karlmanna. En hvað ráðið hefur úrslitum hvað mig snertir um makaval, kunningjaval og mat á vinnufélögum treysti ég mér ekki til að skilgreina. FRÚ RÚNA GUÐMUNDS- DÓTTIR HVANNBERG VERZLUNARSTJÓRI 1. a. Að hann sé skapgóður, kátur og skemmtilegur og kunni að gera grín að sjálfum sér. Hann má ekki vera vanans maður heldur daglega nýr, svo að hann komi manni alltaf þægilega á óvart. Hæfilega menntaður með góðan „common sense" og heimsborgaralegan hugsunarhátt. Og auðvitað má ekki gleyma þeim sjólfsagða eiginleika góðs eiginmanns, að hann sé umhyggjusamur og góður elskhugi. b. Á vinnustað, að hann sé reglusamur og ábyggilegur vinnufélagi. 2. Framkoma og snyrtimennska er það, sem ég tek fyrst eftir og því finnst mér þeir karl- menn sérstaklega fráhrindandi, sem treysta sér til þess að fara út úr húsi á morgnana á óburst- uðum skóm, illa eða ekki rakaðir með svartar rákir undir nöglunum og í hreinustu af óhreinu skyrtunum sínum. 3. Að lokum finnst mér það aðalsmerki karl- mannsins, að hann sé góður faðir og góður sonur. Því að sá karlmaður, sem ber gæfu til þess- ara eiginleika verður alltaf einn af hinum styrku hlekkjum hvers þjóðfélags. 25. tbi. vikan 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.