Vikan


Vikan - 27.06.1968, Síða 18

Vikan - 27.06.1968, Síða 18
n HUÍTII Maurice McNeill er eini blökkumaðuHrin f h6pi kennara f bævnum Baid- win9 réft fyrir ufan New York. Eínn af nemerídum hans lagði fæð á hann af eínhverjum orsökum. Þeffa var ung sfiúlka og hún laug þvi upp, að hann hefði gerzf nærgönguil viö hana. Orð Hvifrar sfúlku er þung á mefunum, þegar svartur kennari á í hlut. Þegar f stað var höfðað mál á hencfur McNelll. En með hjálp vinvelttra nágranna, samkennara ogi nemenda tókst honum að sanna sakieysi sitt. Maurice McNeilI og kona hans, Lavon-Dee, Þau ákváðu aff berjast til þrautar en láta ekki hrekja sig hurtu. IT^G ER KENNARI við skóla í Baldwin, sem er rétt utan við New York. Þegar ég dag nokkurn var boðaður á fund rektorsins, hafði ég ekki minnstu hugmynd um hvert erindi hann gat átt við mig. Þrír menn biðu mín auk rektorsins: forstöðumaður sumarnámskeiða, Martin Kil- commons, dr. Henry Ducker, yfirkennari og Robert Michaelis, lögfræðingur skólanefndarinnar. — Einn af nemendum yðar hefur borið alvarlegar ásakan- ir á hendur yður, sagði lögfræðingurinn. Við höfum þegar rætt bæði við stúlkuna sjálfa og móður hennar. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. — Þér hafið gerzt nærgöngull við Susan Schaffner, sagði lögfræðingurinn. Ég hef með höndum skriflega staðfestingu á því frá henni og móður hennar. Ég fékk ekki að sjá ákæruskjalið. Mér var sagt, að ég hefði verið einn með Susan s.I. föstudag og látið hana hjálpa mér við skýrslugerðir. Þetta átti að hafa gerzt þá. Ég lagði til, að kallað yrði á stúlkuna og hún látin standa fjrrir máli sínu að mér viðstöddum. Ég kvaðst sannfærður um, að þá mundi þessi misskilningur leiðréttast þegar í stað. Tillaga mín var ekki tekin til greina. Fjöldi fólks kom McNeill hjónunum til hjálpar, vitnaffi meff þeim og studdi þau fjárhagslega. ó Þegar ég gekk af fundi þessara heiðursmanna, hafði ég varla enn átt'að mig á því sem gerzt hafði. Því síður gat ég látið mér detta í hug öll þau ósköp, sem áttu eftir að gerast í þessu furðulega máli. íbúar Baldwin eru 35 000, og voru allir hvítir að einni fjölskyldu undanskilinni, þegar við fluttumst þangað. Við voru sem sagt önnur blökkumannafjölskyldan, sem settist þar að, og það væri synd að segja, að móttökurnar hefðu verið hlýjar og vingjarnlegar. Strax fyrsta daginn fengum við nafnlaust hótunarbréf og oft hefur okkur verið skap- raunað með dularfullum hringingum. Ég og kona mín leituðum nú í vandræðum okkar til Salvatore Di Giovanna. Hann hafði áður reynzt okkur hjálp- legur. Það var honum að þakka, að okkur tókst að fá hús hér í Baldwin. Áður en hann kom til sögunnar, höfðum við leitað til fimm fasteignasala. Allir höfðu þeir verið vin- gjarnlegir í fyrstu, en vildu ekki selja okkur, þegar á átti að herða. Einn þeirra sagði glottandi, að hann „þyrði ekki að brjóta lögin um jafnrétti kynþáttanna“. Di Giovanna hlustaði á sögu mína. Hann vildi ekki sjálf- ur heimsækja Schaffner-fölskylduna og ræða við hana og réði mér einnig frá því að gera það. Hins vegar sá hann ekkert athugavert við, -að konan mín færi þangað. Það var tekið vel á móti henni, en foreldrar stúlkunnar sögðust trúa frásögn dóttur sinnar fullkomlega og vildu ekki draga ákæruna til baka. Konan mín benti þá á, að stúlkan yrði að vera því viðbúin að standa við framburð sinn fyrir dóm- stólunum, því að ég mundi krefjast opinberrar yfirheyrslu. Að ráði sóknarprestsins, sem var hlynntur mér í máli þessu, leitaði ég til Jim Ferns, sem var fyrrverandi formað- ur skólanefndarinnar. Hann virtist einnig hafa samúð með mér, en sagði að nú hefði versnað í málinu. Önnur stúlka hefði sakað mig um hið sama og hún ætti heima langt frá Susan Schaffner og segðist ekki einu sinni þekkja hana. Nokkrum dögum síðar kom Fern til mín og sagðist hafa rætt við núverandi formann skólanefndarinnar, Henry Bang. Hann hefði mikinn áhuga á að málið yrði þaggað niður. Hver sem úrslit þess yrðu, þá mundi það skaða áht skólans og raunar bæjarins alls. Ef ég féllist á að segja sjálfur upp stöðu minni, skyldi skólanefndin gefa mér góð meðmæli, svo að ég gæti auðveldlega fengið vinnu ein- hvers staðar annars staðar. Ég varð mjög undrandi yfir þessu furðulega tilboði for- manns skólanefndarinnar. Ef hann áleit mig saklausan, hvers vegna í ósköpunum lét hann þá ekki málið niður falla? Og ef hann áleit mig sekan, hvers vegna vildi hann þá gefa mér góð meðmæli? Ég skildi þetta ekki og neitaði tilboðinu afdráttarlaust. Ég neyddist til að skipta um lögfræðing. Di Giovanna hafði að vísu revnzt mér vel áður, en hann virtist ekki vera sann- færður um sakleysi mitt. Skólanefndin óskaði tvívegis eftir að ræða málið við mig og lögfræðing minn, en í hvorugt skiptið roætti hann og hafði ekki einu sinni samband við mig. Gamall og góður vinur minn, Denny Ray lögfræðing- ur, tók málið að sér í staðinn. Þegar við fluttum til Baldwin, átti hann sæti í mannréttindanefnd bæjarins. Hann bjó sjálfur í húsinu, sem við keyptum, í viku áður en við flutt- um inn í það til þess að koma í veg fyrir, að skemmdarverk yrðu unnin á þvi. Hann vinnur nú í Missisippi, en næstu sex vikurnar flaug hann sex sinnum til New York til þess að hjálpa mér. Þegar við Denny Ray ræddum við skólanefndina í fyrsta sinn, lögðum við meðal annars fram skriflegan vitnisburð eins samkennara míns, sem hafði oftar en einu sinni heyrt Susan Schaffner lýsa hatri sínu og fyrirlitningu á mér. Annar samkennari minn hafði umræddan föstudag komið oft inn í stofuna, þar sem við Susan sátum og unnum að skýrslugerð. Hann kenndi í stofunni við hliðina einmitt á þeim tíma sem ég átti að hafa gerzt nærgöngull við Susan. Varðandi hina stúlkuna, Stephanie Smith, sem einnig ákærði mig fyrir sams konar verknað, þá hafði Susan viðurkennt, að hún væri bezta vinkona hennar. Samkvæmt frásögn Framhald á bls. 37. 18 VTKAN 25-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.