Vikan - 27.06.1968, Síða 24
Frú Vala og Gunnar Thorodd-
sen í samtali við Frakklandsfor-
seta í tilefni af 2000 ára afmæli
Parísar.
Gunnar Thoroddsen gengur út úr
landsréttindum í Kaupmannahöfn,
eftir að dómur hafði verið kveð-
inn upp um afhendingu íslenzku
handritanna. ^
Pierre, bróðir de Gaulle Frakklandsforseta, Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, heilsar Ólafi V.
sæmir Gunnar Thoroddsen borgarstjóra heiðurs- Noregskonungi á Tteykjavíkurflugvelli 1961.
merki í tilefni af 2000 ára afmæli Parísarborgar 1952.
Ráðuneyti Ólafs Thors, sem var skipað 20. nóvember 1959. Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, er yzt til hægri
á myndinni.
GIINNAR THORODDSEN
Dr. Gunnar Thoroddsen er fæddur
1 Reykjavík 29. desember 1910. For-
eldrar hans eru Sigurður Thorodd-
sen, verkfræðingur og yfirkennari við
Menntaskólann í Reykjavík, og Maria
Krist'n Thoroddsen, fædd Claessen.
Gunnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og
kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla
íslands 1924. Að því loknu stundaði
hann framhaldsnám í stjórnlögum og
refsirétti, í Danmörku, Þýzkalandi og
Englandi.
Eftir heimkomu stundaði hann al-
menn lögfræðistörf í Reykjavík til
ársins 1940, er hann varð prófessor
við Háskóla íslands. Gunnar var kjör-
inn borgarstjóri í Reykjavík 4. febrú-
ar 1947 og endurkjörinn þrisvar sinn-
um: 1950, 1954 og 1958. — 20. nóvember
1959 var hann skipaður fjármálaráð-
herra og lét þá af embætti borgar-
stjóra. Ráðherraembættinu gegndi
hann til vorsins 1965, er hann var
skipaður sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn.
Gunnar hóf ungur afskipti af stjórn-
málum. Hann varð landskjörinn þing-
maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1934,
aðeins 23 ára gamall. Þingmaður Snæ-
fellinga var hann 1942—1949, en upp
frá því var hann þingmaður Reykja-
víkur allt þar til hann var skipaður
sendiherra.
Gunnar hefur samið nokkur rit um
lögfræðileg efni og eru þessi hin
helztu: Æran og vernd hennar, 1943
(fjölritað); Um ræðumennsku, í
Stjórnmál (riti Heimdallar); The
Constitution of Iceland, Oxford 194S;
Málfrelsi og meiðyrði, í Samtíð og
saga III, 1946; Fjölmæli (doktorsrit)
1968. Auk þess ritgerðir og greinar 1
blöðum og tímaritum.
Gunnar Thoroddsen hefur átt sæti
1 ótalmörgum nefndum, gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum og verið sæmdur
mörgum heiðursmerkjum.
Hann kvæntist 4. apríl 1941 Völu
Ásgeirsdóttur, sem er fædd í Reykja-
vík 8. júní 1921, dóttir Ásgeirs Ás-
geirssonar, forseta, og Dóru Þórhalls-
dóttur. Þau hjónin eiga fjögur börn,
tvær dætur og tvo syni: Ásgeir, fædd-
ur 7. febrúar 1942, lögfræðingur hjá
fjármálaráðuneytinu í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Svanbjörnsdóttur
Frímannssonar, bankastjóra; Sigurður,
fæddur 15. júní 1944, við nám 1 verk-
fræði við Háskóla íslands; Dóra,
fædd 13. september 1948, við mennta-
skólanám; María Kristín, fædd 30.
september 1954, við unglinganám.