Vikan


Vikan - 27.06.1968, Side 33

Vikan - 27.06.1968, Side 33
Draurnurinn Framhald af bls. 13 Hann hrukkaði ennið, og það leit út sem hann tæki þetta al- varlega. — Nei, það geri ég ekki. En þetta samkvæmi . . . það getur ekki verið svo áríð- andi. Linda er aðeins vinnufé- lagi þinn. En ég þarf að fara á áriðandi fund í kvöld, og ég á ekki gott með að breyta því. Jo fékk hjartslátt, alveg eins og þegar hún vaknaði eftir mar- tröðina um nóttina. Hún átti ekki gott með að fara ein i sam- kvæmið til Lindu. Það liti ekki vel út, þar sem hún var nýtrú- lofuð og ætlaði að fara að gifta sig. En það verður dansað þar, Roger, sagði hún áköf. — Ég á ekki gott með að fara þangað herralaus, — Þú verður að reyna að reyna að finna einhvern annan til að dansa við, elskan. Hvar • eru allir gömlu unnustarnir þín- ir? Hann var auðvitað að gera að gamni sínu, en þessa stundina gat Jo ekki tekið því. En það þýddi auðvitað ekki að tala frekar um þetta, Roger mvndi aldrei fresta viðskiptum hennar vegna. Þegar Jo kom aftur til skrif- stofunnar, var hún dauf og nið- urbeygð, og nokkru síðar gekk hún inn á skrifstofuna til Lindu, til að segja henni hvað hefði komið fyrir. Það er leiðinlegt að hann skuli ekki geta komið, sagði Linda. — Hann er mjög gleym- inn þessi unnusti binn. Það er vonandi að hann gleymi ekki að koma í kirkjuna. Þetta var auðvitað sagt í glensi, en Jo kólnaði upp. Hugs- unin um drauminn, — gestina sem biðu, orgelhljóminn og hún með föður sínum í anddyrinu, og ekkert bólaði á brúðguman- um . . . hún gat ekki annað en hugsað um þetta. — Ertu lasin? spurði Linda áhyggjufull. — Þú ert svo hræði- lega föl. — Nei, það er bara vegna þess að ég svaf illa í nótt. Ertu eitthvað taugaveikluð út af brúðkaupinu, sagði vin- kona hennarr og brosti. —■ En eft- ir á að hyggja, þú hafðir aðeins þekkt Roger í hálfan mánuð, þegar þið opinberuðuð. Hann hlýtur að hafa tekið þig með stormáhlaupi! Já, sagði Jo, og var lág- mælt, — það má segja það. Þegar hún var að snyrta sig fyrir samkvæmið um kvöldið, fór hún að hugsa um það sem Linda sagði. Auðvitað hafði þetta verið allt ótrúlega fljótt. Hún hafði hitt Roger hjá vina- fólki sínu, og hann hafði strax boðið henni út, Hann var alltaf svo óþolinmóður, rétt eins og hann gæti ekki beðið eftir því að þau væru gefin saman. —■ Ég veit að það bresta mörg hjörtu vegna þessa, sagði hann þegar hann setti hringinn á fing- ur henni. — Ekki sízt Terry, — hvað er nú annars eftirnafnið hans. Jo horfði undrandi á hann. — Terry! En við höfðum að- eins verið góðir vinir alla ævi, hann bjó í næsta húsi við okkur. — Það getur verið, ástin mín, en ég heyri sitt af hverju. Það virðast allir vita hvaða tilfinn- ingar hann ber til þín. Jo varð hálf vandræðaleg. Var Terry ástfanginn af henni? Hún hafði aldrei orðið vör við það. En svo gleymdi hún Terry al- veg vegna þess að Roger var allt- af með henni. Hann bauð henni á beztu veitingastaðina, og var óþolinmóður þangað til þau voru búin að ákveða brúðkaupsdag- inn. Jo var alltof upptekin til að geta hugsað skýrt. Hún fór að hugsa um undirbúning fyrir brúðkaupið og nú var Roger all.t- af svo upptekinn að þau gátu varla hitzt nema tvisvar i viku. Þegar Jo var búin að klæða sig fór hún að hugsa um það að þótt Roger gæti ekki komið strax, gæti verið að hann gæti það síðar um kvöldið. Hún flýtti sér að símanum og fór að velja númer, en hætti og roðnaði út undir eyru. Hvað var að henni, hún hafði aftur valið númerið hjá Terry! Samkvæmið var í fullum gangi, þegar Jo kom þangað. — Linda hafði íbúð í stóru, gömlu húsi, svo herbergin voru stór, enda voru fleiri pör farin að dansa. Jo þekkti ekki marga af gest- unum, og hún var glöð yfir því að fara fram í eldhús og hjálpa til við að smyrja brauð. Hún var búin að vera þar í um það bil tíu mínútur, þegar rödd að baki hennar sagði: — Heyrðu mig, ef þú ferð ekki varlega, skemmir þú þenn- an dásamlega kjól! Og hún fann að einhver batt svuntu um mittið á henni. Hún sneri sér við og starði á unga manninn. Terry, ég hafði ekki hug- mynd um að þú værir boðinn hingað, Hann var hvorki í gallabuxum eða gamalli peysu núna, heldur var hann í fallegum, dökkum fötum og hrokkni lubbinn var snyrtilega greiddur, en það var alvörusvipur í augunum. — Áttu við að þú hefðir ekki komið ef þú hefðir vitað það? — Auðvitað hefði ég komið. Hún hló, dálítið þvingað. — Ó, Terry, ég verð að biðja þig af- sökunar á ónæðinu sem ég gerði þér í morgun. — Það var ósköp notalegt að heyra í þér. Hvar hefurðu Roger? — Hann hafði gleymt boðinu og var búinn að mæla sér mót við einhverja viðskiptavini. — Jæja, sagði Terry. — Hann getur ekki gert að því að hann er svo minnislaus, og hann tekur starf sitt afskap- lega alvarlega. Jo fannst að hún þyrfti endilega að bera í bæti- fláka fyrir Roger. — Ég meina, að núna, þegar honum finnst hann hafa ábyrgð á öðrum en sjálfum sér, finnst honum að hann þurfi að vinna vel. — Þú ert ástfangin af honum? Ertu það ekki? Hún sneri sér aftur að eldhús- borðinu og fór að hamast við að skera niður brauð. — Hversvegna spyrðu? Það var skjálfti í röddinni, en hún vonaði að Terry tæki ekki eftir því. — Mér datt í hug . . . ég meina að ég hefði það á tilfinningunni að þú treystir ekki Roger nógu vel. Þó það sé ekki nema það, að þig skuli dreyma að hann gleymi að koma í kirkjuna til að kvæn- ast þér.... Jo losnaði við að svara, því Linda og nokkrir gestanna komu inn í eldhúsið, til að sækja brauðið. Jo sniðgekk Terry allt kvöld- ið. Hún reyndi alltaf að vera á tali við einhverja aðra, og þeg- ar hún sá sér fært laumaðist hún í burtu. Hún var rétt komin á götu- hornið, þegar bíll nam staðar rétt hjá henni. Glugginn var opnaður og ein- hver rak út höfuðið, — Það er dimmt í kvöld og ekki gott fyrir ungar stúlkur að vera einar á ferð. Komdu upp í bílinn og ég skal aka þér heim. Terry brosti til hennar. — Eða ertu ennþá að reyna að forðast mig? — Láttu nú ekki svona, Terry, mig langaði bara til að vera í cinrúmi. Allt í lagi, segðu bara til. Þér finnst ég vera leiðinlegur, og svo ert þú áhyggjufull vegna þess að þú hringdir í vitlaust númer í morgun. En það var ekki þess vegna sem hún var svona óviss um sjálfa sig. Hana hafði í raun og veru langað til að trúa Terry 'yrir áhyggjum sínum í morgun. Hún steig upp í bílinn og hann ók henni heim, án þess að segja nokkurt orð. Þégar hann opnaði fyrir hana hliðið, lagði hann handlegginn um öxl hennar og sagði: —- Þú verður að vera liam- ingjusöm, Jo. Það er mikið atr- iði fyrir mig. Jo flýtti sér inn, en hjartað hamaðist í brjósti hennar. Hún þorði ekki að horfa á hann. Ef hún hefði verið andartaki leng- ur úti hjá honum, hefði hún kastað sér um háls hans og grát- ið við öxl hans. Hvað gekk eiginlega að henni? Hún var eitthvað utan við sig. Var þetta áhugi Rogers fyrir starfinu, sem kom henni til að finna þessa einmanakennd? Hún IROPAST m Bylting á sviði - ryðhreinsunar 25. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.