Vikan


Vikan - 27.06.1968, Page 43

Vikan - 27.06.1968, Page 43
M O D E S S Eina bindið, sem býður yður fjóra nauðsynlega kosti. (1) V-lögun sem er sérstaklega sniðin fyrir líkama yðar. (2) Mjúkt og þægilegt í notkun. (3) „Blue Shield'' plasthimnan sem gerir það rakaþétt og öruggt á þrjó vegu. (4) Tekur sérstaklega vel í sig raka. MODESS BINDI FRÁ JOHNSON & JOHNSON Modess DÖMUBINDI Einkaumboði síðustu krafta sinna til að rísa upp við dogg og bregða sveðju á hó- sirnar eins gangvarans, sem fellur hvíandi til jarðar og kastar af sér riddaranum. Sá getur enga björg sér veitt vegna þunga herklæðanna,- hann verður þvf að bíða aðgerðar- laus unz einhverjum gotlenska rýt- ingnum hefur auðnazt að finna hæfilega víða smugu ó járnhlífum hans. Grænn völlurinn er orðinn að rauðri efju og blóðgufan titrar eins og tíbrá í júlísólinni. Kvalahljóð manna og hesta stíga til hæða f vit- firrtri hljómkviðu, nístandi ókæru takmarkalausrar þjóningar og von- leysis þess, er saklaus brennur á fórnaraltari skuggaafla mannkyns- ins. Slfkir ómar hljóta að hafa nóð eyrum Picassos er hann mólaði Guernica. Enda þótt Gotlendinga hafi ekki skort hug og dug á við fjand- menn sína, nema síður væri, guldu þeir þess nú grimmilega, hve lítt þeir höfðu trúað stóli. En þrátt fyr- ir lélegan útbúnað vörðust þeir eins og Ijón til síðasta manns. — Átján hundruð lík lágu í valnum að lokinni orrustu og blóðið rann í lækjum inn um borgarhlið Visbýar, eftir því sem sagan segir. „HÚSIN ERU í LOGA" Á meðan hin blóðuga viðureign stóð yfir, höfðu borgarbúar ekki hafst að; má jafnvel ætla, að þeir hafi grátið þurrum tárum yfir óför- um hinna fornu keppinauta utan af landsbyggðinni. Og að bardögum loknum gáfu þeir fúslega upp borg sína fyrir sigurvegurunum. Var Valdemar þá orðinn svo upp með sér, að hann þóttist ekki geta riðið inn um borgarhlið að hætti venju- legra manna, en lét í stað þess rífa skarð mikið í múrinn og fór þar í gegnum fylktu liði. Þá er hermt, að hann hafi látið stilla þremur ker- öldum út á stórtorg staðarins og sagt heimamönnum að fylla þau af gulli og gersimum, ellegar brenndi hann borgina ofan af þeim. Auk þess kvað hann hafa stolið tveimur sérlega dýrum eðalsteinum úr Mar- fukirkjunni; var Ijómi þeirra svo mikill, að þeir skinu sem sól um nætur. Að Ifkindum hefur Valdemar í rauninni farið tiltölulega vægilega með Visbýinga,- að vísu kúgað af þeim fé nokkurt, en verzlunarrétt- indum sínum héldu þeir. Gaf hann þeim bréf upp á það tveimur dög- um eftir orrustuna. Segir þar að „Vér Valdemar, af Guðs náð kon- ungur Dana og Vinda, og Kristófer, vor sonur, af sömu náð hertogi af Lálandi, gerum kunnugt í þessu bréfi, að vér heitum hinum vitru og verðugu mönnum, borgarmeisturum og ráðherrum og borgurum í borg vorri Visbý . . . öllum þeim rétt- indum og því frelsi, er þeir frá fornu fari haft hafa." En með allt öðrum og ruddalegri hætti var farið fram gegn lands- byggðinni, enda höfðu forsvars- menn hennar ekki reynzt nægilega „vitrir og verðugir" til að sleikja tær ofbeldismannsins. Hið danska herlið fór með ránum og brennum um sveitir eyjarinnar. Auðævi, sem dregin höfðu verið saman af spak- legri ráðdeild um ótaldar aldir, urðu nú á einni svipstund herfang gírugra ránsmanna. Ekki auðnaðist Dönum þó að öngla saman öllu gulli Gotlands. Er ekki fjarri lagi að álykta, að einmitt á þessum tím- um hafi margir gerzt til þess að grafa sjóði sína í jörðu, til að þeir yrðu ekki ranglætismönnunum að góðu. Eitt er víst, að gotlensk mold er svo auðug af földum fjársj.ðum, að þess munu naumast dæmi [ nokkru öðru landi, og ber það Ijós- an vott um mikilvægi eyjarinnar sem viðskiptamiðstöðvar. Finnst þar margvíslegasta mynt, þar á meðal ensk, rómversk og arabísk. Nýir fundir bætast við á ári hverju; það er eins og mold þessa fremur harð- býla eylands sé ótæmandi gull- náma. Bóndi einn í Rutesókn seg- ir jafnan við syni sína að votviðr- GLÓBUS h.f. um loknum: ,,Nú er farið að þorna til, svo það er bezt að þið farið út á akurinn og plægið upp peninga." Sár hefur auðmýking hinna stoltu húsmæðra og heimasæta verið og þungur harmur að þeim kveðinn, er þær sjálfar og heimili þeirra urðu nú varnarlaust herfang tírar- lausra ræningja, meðan ástvinir þeirra, sem varið höfðu sóma þeirra til síðasta manns, stiknuðu f sumar- sólinni á völlunum utan við Suður- port. En ekki létu þær allar sitja við að gráta Björn bónda. Eitt sinn er flokkur danskra hermanna hafði drukkið sig ofurölvi, komu að þeim konur úr nærliggjandi þorpi og drápu þá alla. ( hefndarskyni brenndu Danir þorpið og drápu þar hvert mannsbarn, eins og gert var í Lidice og Oradour-sur:Lane [ síð- ari heimsstyrjöld. f kirkjunni ( Fidé getur að líta áletrun sem talin er frá. árinu 1361, svohljóðandi: — „Húsin eru í loga, fólkið fallið, harmandi flýr það undan sverðinu." Hið frjálsa Gotland, síðasta vígi hins fornnorræna þjóðskipulags, var liðið undir lok. Ekki getur hjá því farið, að manni verði í þessu sambandi hugs- að til örlaga annars norræns bænda- þjóðfélags, er glatað hafði frelsi sínu einni öld áður en orrustan var háð við Visbý. En sá samanburður verður Islendingum naumast hag- stæður. íslenzka lýðveldið féll fyrst og fremst vegna sérgæðingsskapar og þroskaleysis leiðtoga sinna, sem verziuðu með hagsmuni lands og þjóðar af álíka siðleysi og afrískir mannætuhöfðingjar, sem seldu þrælasölum þegna sína fyrir gler- perlur og brennivín. Vesæli er því hlutur þeirra í sögunni hjá fram- lagi gotlensku bændanna, er kusu að deyja með frelsi þjóðar sinnar, er þó skorti mátt að verja það. — Minning þeirra skyldi engum frjáls- huga Norðurlandamanni úr minni líða. Og sex hundruð árum síðar, er vorsólin Ijær mistrinu úti fyrir ströndinni gulan lit og ungmeyjar- ilmur vorkaldrar jarðar boðar komu sumarsins, er kyrrðin ó völlunum fyrir framan Suðurport aðeins rof- in af tísti svartþrastanna. Engin kvalaóp yfirgnæfa nú söng þeirra, enginn þefur blóðs og rotnunar eitrar hreinan svala loftsins. . Og á yfirlætislausum stað fyrir suðaustan gömlu borgina gengur ferðafólkið fram á fornan steinkross, sem gef- ur hefur staðnum nafn hans: Kross- hagi. Þar stóð áður nunnuklaustur og mótar enn fyrir grunni þess. Á krossinum má greina þessa áletrun á latínu: „Á því herrans ári 1361, þriðjudaginn eftir dag heilags Jak- obs, féllu Gotlendingar þeir, er hér eru jarðaðir, í hendur Dana við hlið Visbýar. Biðjið fyrir þeim." HERFANG Á HAFSBOTN! Einkennilega kemur það fyrir eyru, að þetta yfirlætislausa og virðulega minnismerki gotlensks frelsis skuli bera nafn banamanns þess, Valdemars konungs. En þetta vitnar Ijóslega um þau óhemju áhrif, er ógnir þær, er tegndar voru nafni hins erlenda herkonungs, hafði á hugi landsmanna. Sá auð- ur andlegur, sem hugmyndaflug þeirra hefur skapað í sögnum, þjóð- kvæðum og ævintýrum um Valde- marsleiðangurinn, er ósmár. ( dans- kvæði einu er kveðið um Valdemar sem ómerkilegan strákling, sem hentara væri að sitja um kyrrt í sínu landi en að fara til Gotlands að gilja meyjar. Þannig náðu hinir sigruðu sér niður á sigurvegaran- um. Ein sögn hermir að borgara- dóttir nokkur í Visbý hafi, vegna elsku sinnar á Valdemari, opnað fyrir honum hlið staðarins og verið í hefndarskyni múruð inni lifandi í turni einum á borgarmúrnum, en stðan heitir Jómfrúarturn. Þetta mun þó vera flökkusaga ein og ekki hafa við rök að styðjast. Er Valdemar hafði stolið og rænt svo miklu í Gotlandi að hann taldi sig ekki geta gert betur, sigldi hann zs. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.