Vikan - 27.12.1968, Blaðsíða 37
er hann viðstaddur, þegar ein-
hver af hestunum hans tekur
þátt í veðhlaupi. Og ef klárinn
hans sigrar, þá er heldur betur
efnt til fagnaðar í tilefni dagsins.
Hann spilar bridge af ósvikinni
ástríðu. Hann þykir svo góður
bridgespilari, að hann var val-
inn í egypzku sveitina, sem
keppti á heimsmeistarmótinu
fyrir nokkrum árum .... Sveitin
stóð sig heldur illa, en það var
ekki Sharif að kenna.
Einu sinni hefur bridgið orðið
Sharif dýrt tómstundagaman.
Fyrir nokkru var verið að taka
kvikmyndina „Mayerling", þar
sem Omar Sharif lék aðalhlut-
verkið, hinn óhamingjusama
erkihertoga, Rudolf. Fyrir leik
sinn í þessari mynd þénaði hann
rúmlega milljón mörk. Þegar hlé
varð á upptökunni, langaði Omar
til þess að fara á bridgemót í
Amsterdam, en sjálfur var hann
staddur í Vínarborg. Það stóð
illa á flugferðum og reyndist ekki
kleift fyrir Omar að komast
þangað og aftur til Vínar í tæka
tíð. Þá gerði hann sér lítið fyrir
og tók á leigu stóra flugvél og
bauð nokkrum vinum sínum að
koma með sér. Þessi flugferð
PIRA-SYSTEM
HIN FRÁBÆRA NÝJA
HÍLLUSAMSTÆSA ER í SENN
HAGKVÆM OG ÓDÝR
Það er ekki margt, sem hefur lækkað
í verði að undanförnu. Það hafa PIRA
hillusamstæðurnar gert sökum hagræð-
ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nefn-
ið til hvers þér þurfíð hillur og PIRA
er svarið. Odýrustu bókahillur, sem völ
er á, hillur og borð í barnaherbergi, í
vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið.
Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli
borðstofu og stof'u með PIRA-vegg.
Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA
hillusamstæður geta staðið upp við vegg,
eða írístandandi á gólfi. Engar skrúf-
ur eða naglar til að skemma veggina.
Notið veggrýmið og aukið notagildi
íbiiðarinnar. PIRA hillusamstæðurnar
crn lausn nútímans.
HÚS OG SK8R hf.
Ármúla 5 — Sími 84415—S4416.
Verkir, þreyta í baki >
DOSI beltin hafa eytt
þrautum margra.
Reynið þau.
EMEDIA H.E
LAUFÁSVEGI 12- Sjmi 16510
kostaði hann sem svarar 400 þús-
und íslenzkum krónum.
Á HÁTINDI FRÆGrÐAR
SINNAR
Það hlutverk, sem Omar hefur
hlotið bezta dóma fyrir, er tví-
mælalaust titilhlutverkið í „Zi-
vago lækni“. Á móti honum lék
Geraldine Chaplin, en einnig
Julie Christie.
Síðan myndin um Zivago lækni
var sýnd hefur tilboðunum rignt
yfir Omar. En hann er vandlát-
ur og tekur ekki hvaða hlutverki
sem er, þótt ávísun upp á offjár
fylgi með.
— Ég vildi óska, að ég þyrfti
ekki að leika nema eitt hlutverk
á ári — og þá að sjálfsögðu af-
bragðsgott. Síðar langar mig
einnig að fá að spreyta mig sem
leikstjóri.... Ég er þakklátur
forsjóninni fyrir að fá að vinna
starf, sem veitir meðbræðrum
mínum gleði og ánægju. Stund-
um hefur hvarflað að mér að
hætta kvikmyndaleik. En hvaða
starf get ég þá fengið í staðinn?
Ég kann ekkert annað en þetta.
Enda er það eflaust svo með öll
meiriháttar störf, að þau eru
erfið og slítandi, — en skemmti-
leg þrátt fyrir það.
Omar Sharif stendur nú á há-
tindi frægðar sinnar og segja má,
að hann njóti í ríkum mæli
velgengni sinnar og aðdáunar
þúsunda kvenna um allan heim.
En enginn er ungur til eilífðar.
Ekki alls fyrir löngu var Om-
ar að því spurður, hvort hann
gæti gert sér í hugarlund, hvern-
ig honum mundi líka að vera
gamall maður.
Hann varð skelfingu lostinn,
kipraði dökkbrún augun og sagði:
— Ef það gengur svo langt, að
ég er einn með fallegri konu og
hef ekki hugmynd um, hvernig
á því stendur, — þá vil ég held-
ur deyja.
. ☆
Framhald af bls. 7.
sagði, að maturinn væri ekki hér,
en hann mætti leita, ef hann
vildi. Hann finnur matinn í tösku,
sem vinkona mín átti. Ég hafði
ekki hugmynd um, að maturinn
væri þarna.
Með fyrirfram þökk íyrir birt-
inguna. ,
B. S.
Þessi draumur er fyrir góðu
sambandi ykkar og umrædds
manns. Ykkur lízt kannski ekki
sem bezt á hann eins og stendur,
en álit ykkar á honum breytist
til batnaðar við nánari kynni.
Vinkona þín k.vnnist honum fyrr,
en þegar fram líða stundir verð-
ur liann hændari að þér.
*
„AUklÐ
AFLIÐ66
með
prestolite
„THUNDERV OLT“
kertum.
prEstalite
ALTEIINATORAR
Sendum í postkröfu.
Kristinn Guðnason hf.
Klapparstíg 27. — Sími 12314.
TRANSISTOR
kveikjur
DINAMOAR
STRAUMLOKUR
HÁSPENNUKEFLI
og fleira.
5i. tbi. yiKAN 37