Vikan - 06.03.1969, Page 5
I
Hvernig væri að gefa
Flosa Ólafssyni enn frek-
ara tækifæri til að sýna,
hvað í honum býr, og láta
hann annast fastan skop-
þátt í sjónvarpinu? Hver
veit nema við mundum þá
eignast okkar „Frost“.
Ekki veitir af á þessum
síðustu og verstu alvöru-
tímum.
Með þökk
fyrir birtinguna,
Húsmóðir.
Við tökum undir um-
mæli llúsmóðurinnar um
Áramótaskaupið. En á-
stæðan til þess, að þættin-
um var ekki eins mikið
hælt í blöðunum og frúin
bjóst við, gæti vel verið
einfaldlega sú, að menn
hafi verið eins og þeir eru
vanir að vera á gamlárs-
kvöld, þegar þátturinn var
frumfluttur. Okkur finnst
maklegt, að Flosi fái tæki-
færi til að láta ljós sitt
skína sem oftast.
MHGA VANFÆRAR
KONUR DREKKA
Kæri Póstur!
Okkur langar til að leggja
fyrir þig eina brennandi
spurningu, sem við rif-
umst mikið um í síðasta
saumaklúbbinum okkar.
Hún er svona: Er hættu-
legt fyrir vanfærar konur
að drekka? Getur það haft
áhrif á erfðaeiginleika
barnsins, þannig að það
verði veikt fyrir víni, þeg-
ar það vex úr grasi?
Þú mátt ekki halda,
Póstur minn, að við spyrj-
um að þessu, af því að við
höfum drukkið á meðan
við gengjum með börn
okkar. Sussunei! Við erum
allar skikkanlegar hús-
mæður og megum ekki
vamm okki vita í neinu.
Hins vegar er fátt það til
milli himins og jarðar, sem
ekki getur borið á góma í
saumaklúbbnum okkar.
Einmitt þess vegna er hann
okkur alveg ómissandi.
Með þakklæti fyrir For-
syte-söguna.
Saumaklúbburinn
sjö sinnum þrjátíu.
P.S. Þér finnst kannski
nafnið á klúbbnum okkar
skrítið, en það er þannig
tilkomið, að við erum sjö
og allar þrítugar.
Lækinsfróður maður tjá-
ir okkur, að þetta hafi al-
drei verið rannsakað til
neinnar hlítar. Hins vegar
sé það augljóst mál, að það
geti cngan veginn verið
hollt, hvorki fyrir van-
færa móður né barn henn-
ar, að neyta áfengis með-
an hún gengur með barn.
Er þá nokkur ástæða til
að eyða peningum og dýr-
mætum tíma í umfangs-
mikla rannsókn á málinu?
LÝSIÐ HAFNAÐI
í BLÓMAPOTTINUM
Kæri Póstur!
Þú leysir ótrúlegustu
vandamál og mitt mál er
sannarlega ótrúlegt. Eg á
fjögurra ára gamla dóttur,
sem hefur verið dálítið föl
á vanga og guggin í
skammdeginu í vetur.
Heimilislæknirinn hefur
ráðlagt mér að gefa stelp-
unni lýsi. En það hefur
reynzt mér hægara sagt en
gert. Henni finnst lýsið svo
skelfilega vont, að ég hef
sjaldan vitað annað eins.
Um daginn tók hún sjálf
til sinna ráða. Ég kom að
henni, þar sem hún var
búin að hella öllu úr lýsis-
flöskunni í stóran blóma-
pott, sem stendur í forstof-
unni hjá okkur. Þegar ég
spurði hana, hvað í ósköp-
unum hún væri að gera,
sagði hún ósköp sakleysis-
leg á svipinn:
— Mér fannst blómið
þitt svo aumingjalegt!
Hvað finnst þér, kæri
Póstur: Á ég að halda
áfram þessu lýsisstríði
mínu eftir þetta?
Með beztu kveðjum,
Ólína.
Nei, það skaltu alls ekki
gera. En hvernig líður
blóminu þínu?
mmm? '’ihíslí
ÖMMUKAKA
f uppskrift að Ömmu-
köku á bls. 32 í 7. tölu-
blaði VIKUNNAR 1969
urðu þau mistök, að þrjú
egg féllu niður úr upp-
talningu á efni í kökuna.
Við biðjum húsmæður og
aðra þá lesendur VIK-
UNNAR, sem gaman hafa
af að baka góðar kökur,
velvirðingar á þessu og að
bæta þremur eggjum í
uppskriftina.
NÚ ER AUÐVELT
AÐ ENDURNÝJA
ELDHÚSID
HINGAÐ TIL
hafa slíkar endurbætur kostað mikið rask, sem margar hús-
mæður vilja hlífa sér við. Nú er allt breytt. Við tökum gömlu
innréttinguna niður og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn-
flutta innréttingu — allt ó tveim dögum. Við breytum ekki
heimilinu í trésmíðaverkstæði á meðan og þér undrizt, hvað
eldhúsið gerbreytirst, hvað íbúðin breytist og hvað störfin
verða ánægjulegri. Allar okkar innréttingar eru úr harðplasti
í miklu litaúrvali og þér getið fengið eldavél, uppþvottavél
og ísskáp frá sama framleiðanda. Verðið er mjög hagstætt.
HÚS OG SKIP Ármúli 5 — Símar: 84415—84416
LÍTIÐ VERKEFNI YÐAR NÝJU LJÖSI,
OSRAM LJÖSI, OG ÞAU LEYSAST BETUR.
10. tbi. VIKAN 5