Vikan - 06.03.1969, Síða 43
minning, aðeins grunur, flökt-
andi tilfinning, hugboð.
— Eg mundi ekki verða hissa,
Janine. Þar sem þú talar þýzku
þannig, hlýtur þú að hafa verið
í Þýzkalandi einhvern tíma.
— Hvar erum við núna?
spurði Janine bílstjórann.
— Á Maximilianstrasse.
— Viljið þér gjöra svo vel og
stanza andartak?
— Lengi má það ekki vera,
sagði hann með þrumuraust, —
hér er nefnilega bannað að
stanza.
— Það verður ekki lengi, sagði
hún. Stephan fór með henni út.
Hann horfði spenntur á hana.
—- Þarna hinum megin, Step-
han, undir bogagöngunum, á að
vera kaffihús.
Þau hlupu yfir götuna og eins
og vegna skipunar stönzuðu þau
bæði jafnt. Hún fann fyrir hand-
artaki hans. — Janine, það er
raunverulega kaffistofa þarna,
þekkirðu hana aftur?
Hún gekk að dyrunum, hikaði.
Þú verður að fara inn,
skipaði Stephan henni.
Hún gerði það. En hún varð
fyrir vonbrigðum. Hún fann
augnaráð forvitinna karlmanna
hvila á sér, sá rauðhærða stúlku
bak við afgreiðsluborð, stóra Ex-
pressvél, fjöldan allan af
flöskum, en ekkert sem þýðingu
hafði, ekkert sem var henni
kunnugt.
Hún fór til baka til leigubíls-
ins.
— Ætli mér hafi skjátlazt?
spurði hún á báðum áttum.
— Örugglega ekki, svaraði
Stephan. — Kaffistofan undir
súlnagöngunum, það var sönn
minning.
Framhald í næsta blaði.
Paradísarlíf...
Framhald af bls. 13.
— En hér eru skraðar 75
rúblur, sem eru að þvi er virð-
ist ekki fvrir neinu. Fyrir
Iwað á ég að borga þær?
— Hvað áttu við, sagði
hún og var saklaus á svipinn
eins og lamb. Og hún horfði
á mig með svo dæmalaust
barnslegu og sakleysislegu
augnaráði, að ég missti mál-
ið og rétti henni hundrað
rúblur og víxil fyrir öðru
eins. Ég þreif töskuna mína
og strunsaði á járnbrautar-
stöðina.
Þannig lauk þá paradísar-
lífi mínu. Ég var gjörsamlega
gjaldþrota maður og hafði
látið gabba mig herfilega. En
segið mér eitt:
Getur nokkur lánað mér
212 rúblur og 44 kopekur?
Lærið
INNANHUSS-
ARKITEKTÚR
/ frítímum gegnum bréfaskóla
Þér getiö tekiö námskeiö í nýtízku innréttingum í bréfaskóla.
Það er sama hvar þér búið eða hvenær þér þurfið að mæta til
vinnu.
Þér getið stundað alla vinnu samtímis námskeiðinu.
Þetta nám getur skapað yður undirstöðu að skemmtilegri og
arðbærari atvinnu, og margir læra þetta líka sér til ánægju og
eigin nota.
Námskeiðið fjallar um m.a.: Húsgögn, staðsetningu húsgagna,
liti, lýsingar, listir, þar á meðal listiðnað, stíltegundir, blóm og
skreytingar, nýtízku eldhúsinnréttingar, gólfklæðningu, veggklæðn-
ingu, vefnað, þar með reiknað gólfteppi, húsgagnaáklæði, glugga-
tjöld, heimilishagfræði o.fl.
Sendið okkur seðilinn, eða hringið í síma Byen-6821, Kaupmanna
höfn, þá fáið þér allar upplýsingar.
Vinsamlega sendið mér
án skuldbindinga
bækling yðar um
INNANHÚSS-
ARKITEKTUR
NÁMSKEIÐ
AKADEMISK BREVSKOLE,
Badstuestræde 13,
K0benhavn K,
Damnark.
Nafn ......................
Heimili
1°. tbi. VIKAN 43