Vikan


Vikan - 25.09.1969, Side 39

Vikan - 25.09.1969, Side 39
á slíku við fyrstu raun. En nú gef ég Holm lækni orðið . .. . Fyrirlesturinn stóð í rúma klukkustund, og á eftir urðu miklar umræður. Frú Hjort tók ekki þátt í um- ræðunum, — hún var allt of upp- tekin af eigin hugsunum. Þetta eiturlyfjamál hefir kom- ið okkur öllum, foreldrum ung- linganna, á óvart. Við höfum haldið okkur setja öryggisnet kringum börnin, með. því að fræða þau í tíma og ótíma um kynferðisvandamálið, fræðslu, sem fyrri kynslóðir aldrei fengu. Það hefir sífellt verið hamrað á nauðsyn þess að unglingar ættu heimtingu á allri fræðslu um þetta geysilega vandamál, en svo eru bara önnur í uppsiglingu, ef til vill miklu erfiðari viðfangs. Það virtist sannarlega vera kom- inn tími til að tala um þetta við Vibeku. En miðvikudagurinn leið, án þess að hún fengi gott tækifæri til að ræða við dóttur sína. Vi- beke fór beint úr skólanum heim til vinkonu sinnar, til að lesa með henni. Og um kvöldið sat hún yfir börnum hjá nágrönn- unum. En síðdegis á fimmtudag kom Vibeke inn til móður sinnar, þar sem hún var að ganga frá þvotti, og virtist hafa hug á samræðum. Eftir að þær höfðu rætt um daginn og veginn um stund, fór frú Hjort að segja henni frá for- eldrafundinum, og því sem þar hafði verið til umræðu. — Auðvitað, sagði Vibeke, ósköp áhugalaus, — það vita all- ir að það er reykt hash, bæði á salernum og í frímínútum. Þann- ig er það í öllum skólum. Get ég ekki fengið eitthvað að borða? Ég er svöng, og mér finnst á lyktinni að þú hafir verið að baka. Móðir hennar kinkaði kolli. — Svaraðu mér hreinskilnis- lega, Vibeke, hefir þú líka próf- að það? — Prófað hvað? Reykt hash? Nei, hversvegna ætti ég að vera að því? Mér finnst það ekkert freistandi að ganga hálfsofandi um. Og þess utan hefi ég annað til að kaupa fyrir þessa aumu vasapeninga mína. Hefirður nokkuð talað um þá við pabba? — Ekki ennþá. En þú getur sjálf talað við hann í kvöld. Hvernig ná þau í þetta, ég á við hash? — Það er enginn vandi, sagði Vibeke, með munninn fullan af mat. — Það er alltaf einhver sem þekkir einhvern.... Svo er líka hægt að fara á neðanjarðarbraut- ina á ákveðnum tímum. Eða þá, já mamma, það getur hver sem fer i partý, þar sem foreldrarnir eru ekki heima, fengið tækifæri til að prófa þetta. Frú Hjort hrökk við, og hætti að strauja. Hún fór að hugsa um laugar- dagskvöldið. Maðurinn hennar var á ferðalagi í verzlunarerind- um, og Vibeke fékk leyfi til að fara í afmælisboð til bekkjar- systur sinnar. — Hefir þú skemmt þér vel? spurði hún dóttur sína, þegar hún kom heim um miðnættið, eins og um hafði verið talað. — Var þetta skemmtilegt afmælis- boð? — O—jú, það var ekki sem verst, svaraði Vibeke, ósköp á- hugalaus. Hún hafði hugsað með sér að Vibeke hefði ekki skemmt sér vel, en það gátu verið margar orsakir til þess. Það gat verið að hún hefði verið þreytt og illa upplögð, eða verið ósátt við ein- hverja vinkonuna. Svo hún hafði ekki spurt frek- ar. Nú horfði hún í augu dóttur sinnar, og spurði: — Partý eins og á laugardag- inn var? — Já, svona eins og á laugar- daginn var, ef þú vilt endilega fá að vita það, sagði Vibeke stuttlega. En þegar hún sá svip- inn á móður sinni, bætti hún við: — Ó, mamma, þú mátt ekki ímynda þér eitthvað í líkindum við ópíumsholu, eða eitthvað æð- isgengið. Það gekk allt skikkan- lega til, en það voru samt ein- hverjir að reykja hash. Og þá verðum við sem ekki viljum reykja, svolítið utan gátta. Það er líkast því að fara á dansleik, og kunna ekki að dansa, finnst þér það ekki? En vel á minnzt, ég þarf að fá hvíta sokka fyrir hátíðina í jassklúbbnum annað kvöld. Gömlu sokkarnir eru al- veg útslitnir. Þarna kemur Sús- anna loksins, sagði hún, þegar hún heyrði í dyrabjöllunni. — Ég verð að fara. Bless! Frú Hjort horfði hugsandi á eftir henni. Svo hristi hún höfuð- ið, eins og til að koma lagi á hugsanir sínar, og hélt áfram við vinnuna.... — Nú ætti hún að fara að koma, sagði hún við mann sinn, þegar þau sátu og biðu eftir Vi- beku, kvöldið eftir. En þá hringdi síminn, og hún tók hann. — Ert það þú, mamma? Þetta er Vibeke. Getið þið annað hvort ykkar skroppið til að sækja mig? Ég er hjá Súsönnu. Pabbi hennar og mamma eru úti, og ég kemst ekki heim. — Hversvegna kemstu ekki heim? Hvað áttu við með því? — Já, sjáðu til, það voru tveir náungar í bíl, sem eltu okkur frá jassklúbbnum, alla leið hing- að. Þeir óku lúshægt á eftir okk- ur, og komu með allskonar bjálfalegar uppástungur, og svo komum við Súsanna okkur sam- an um að ég skildi bíða hjá henni þangað til þeir væru farnir. En þessir grasasnar eru þarna úti ennþá, og ég get ekki beðið hér í alla nótt. — Pabbi þinn sækir þig strax. Og Vibeke, í guðs bænum vertu kyr, þangað til hann kemur! — Auðvitað geri ég það. Hvað dettur þér í hug? sagði Vibeke undrandi, og það var ekki laust við að það kenndi vorkunnsemi í rödd hennar. Það var orðið framorðið, þegar frú Hjort gat farið að hátta á laugardagskvöldið, og klukkan var orðin hálf tvö, þegar hún var búin að ganga frá. Þegar hún var á leið til svefn- herbergisins, sá hún að það var ljós hjá Vibeku, svo hún fór inn til hennar. — Heyrðu vina mín, þótt það sé sunnudagur á morgun, þá ætt- 39. tbi. VTTCAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.