Vikan


Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 3

Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 3
1. tölublað - 2. janúar 1970 - 32. árgangur I ÞESSARI VIKU Getið þér hugsað ySur konu sem forsætis- ráðherra? Haldið þér, að kona geti borið ábyrgð á stjórn rikisins? Ef þér svarið þessum spurningum neitandi, er tvöföld ástæða til að lesa grein i þessu blaði, sem heitir „Amma tekur við stjórninni", en þetta sögðu andstæð- ingar Goldu Meir, er hún tók við forsætis- ráðherraembættinu i Israel. „Ævi mín og konurnar minar þrjár" nefnist nýr greinarflokkur, sem hefst í þessu blaði og er þar um að ræða fyrsta hluta af æviminningum íranskeisara, sem hann hefur sjálfur látið skrásetja eftir sér. Þetta er ævintýraleg frásögn og á margan hátt óvenjuleg og minnisstæð. „Hún hefur dökkt, liðað hár, blá augu og ósköp smágerðar tær og fingur, og hún er hreystin uppmáluð; sparkar og hlær, og er ekki að neinu leyti frábrugðin jafnöldrum sinum. En þó var hún eiginlega dauðadæmd fyrir fjórum mánuðum." — Við segjum í þessu blaði ótrúlega sögu af litlu barni undir fyrirsögninni „Hún var dauðadæmd". I NÆSTU VIKU VIKAN birti fyrir nokkru greinar um merka landkönnuði, til dæmis Livingstone og Stanley, sem báðir könnuðu myrkviði Afríku. I næsta blaði verður fjallað um barón Adolf Erik Norden- skjöld, sem fyrstur manna hafði það af að sigla meðfram ströndum Evrópu og Asíu út i Kyrrahaf. Þetta er hin svokallaða Norðausturleið, sem margan hefur heillað. Við höldum áfram með palladóma Lúpusar í næsta blaði og er þá fjallað um utanrikisráðherra og fyrrverandi formann Aiþýðuflokksins, Emil Jónsson. Þar næsti þáttur birtist mjög fljótlega, og þá er röðin komin að Eysteini Jónssyni, fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins. I næsta blaði Ijúkum vrð greinaflokkinum um Gretu Garbo, en þá birtist fjórði hluti hans. Þessar greinar eru byggðar á bók, sem nýlega er komin út og hefur vakið mikla athygli erlendis. Hún varpar alveg nýju Ijósi á hina frægu og vinsælu kvikmyndaleikkonu Gretu Garbo, sem enn á sér aðdáendur um allan heim. FORSÍÐAN Halldór Pétursson, listmálari, teiknar áramótaforsíðuna okkár þessu sinni og tekur til meðferðar mál málanna um þessar mundir: EFTA. að I FULLRI ALVÖRU SiénvarpiO oo bttrnin Aðalbjörg Sigurðardóttir minntist á það í merku sjónvarpsviðtali, að kvikmyndaerftirlit rikisins hefði í rauninni harla litlu hlutverki að gegna, en hún hefur verið formaður þess um árabil. Hún kvaðst ekki sjá ástæðu til að vera að banna kvikmyndir kvikmyndahúsanna börnum, þegar viðlíka myndir væru sýndar öllum landslýð í sjónvarpinu og allir vissu, að börn horfðu mikið á þær. Þessi ummæli Aðalbjargar eru vissulega at- hyglisverð. Það er enn furðumikið um viður- styggilega glæpi í myndum sjónvarpsins, sem sýndar eru á þeim tíma, sem börn eru enn á fótum víðast hvar og verða vitni að þessum ósköpum. Lengi hefur verið sá háttur hafður á í sjón- varpinu að sýna myndir sérstaklega ætlaður börnum á miðvikudögum klukkan sex. Myndin um Lassí var sýnd þar í fyrra og naut mikilla vinsælda og var vel við hæfi lítilla barna. En ( hennar stað hefur verið sýnd mynd, sem alls ekki er ætluð litlum börnum, þar sem í henni er of mikið af likamlegum átökum og hegðun, sem skelfir minnstu börnin og er þeim síður en svo holl fyrirmynd. Sjónvarpið þyrfti að verða sér úti um góðar barnamyndir til sýningar á þessum tima, til dæm- is teiknimyndir eða annað græskulaust gaman af slíku tagi. Það er engum vafa bundið, að slags- mál og ofbeldi hafa slæm áhrif á börn og spilla hegðun þeirra. Sjónvarpið er áhrifamesta uppeldistækið, sem til er, og þess vegna væri ráðlegt að taka mark á ummælum Aðalbjargar Sigurðardóttur, sem alla ævi hefur barizt fyrir velferð barna og reynt að koma í veg fyrir allt það, sem hefur miður holl áhrif á uppeldi þeirra. Það er nóg af ofbeldinu i heiminum, þótt ekki sé reynt að ala á þeirri hneigði með yngstu og saklausustu borgurunum. G.Gr. VIKAN Útgeíandi: Hilmir hf. Bitstjóri: Gyltl Gröndal. BlaSamenn: Dagur Þorleifsson, Matthlldur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlltsteiknlng: Hall- dóra HaUdórsdóttir. Auglýsingastjóri: Jensina Karls- dóttir. — Ritstjórn, auglýslngar, afgreiðsia og dreif. ing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. PósthóU 533. Ver8 í lausasölu kr. 50,00. ÁskriftarverS er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórSungslega, 900 kr. fyrir 24 tölublöð misserislega. ÁskriftargjaldlS greiSlst fyrir- fram. Gjaldd. eru: Nóvember, febrúar, mai og ágúat. 1 tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.