Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 7
Wtt Hfnhrf:
JESKUHARIN AFIR
Frú mín góð: Þér er óhætt
að hætta að ]ita gráu hárin,
því væntanlegar eru á mark-
aðinn töflur sem á að taka
inn á hverju kvöldi og eftir
nokkrar vikur hefur þú end-
urheimt þinn upprunalega
háralit!
Töfrataflan var uppgötv-
uð af dr. Matthias Hein-
itz, þýzkum gamalmenna-
lækni, sem hafði verið að
gera tilraunir á sjúklingum
sínum með ný, örvandi og
vngjandi lyf. L>'fið bar góð-
an árangur, en innan skamms
tók liann eftir því að sjúkl-
ingarnir urðu ekki aðeins
sprækari, heldur fóru þeir
að týna gráu hárunum og
eftir stuttan tima var gamli
góði háraliturinn allsráðandi
á öldnum kollum sjúkling-
anna.
Dr. Heinitz, sem er yfir-
læknir sjúkrahúss fyrir aldr-
að fólk nálægt Konstanz i
Suður-Þýzkalandi, hefur
haldið áfram að gefa sjúkl-
ingum sinum meðalið, sem
xippgötvaðist þannig, að
liann gaf þeim Inzellon, —
fjörgandi lyf. sem inniheld-
ur m. a. járn, magnesíum og
kalsium — með fyrrgreind-
um afleiðingum. Nú hefur
hann endurbætt lvfið sem
hlotið hefur nafnið L.K. 162.
Engar hliðarverkanir hafa
komið i Ijós, það er að segja,
engar slæmar, og sjúldingun-
um liður betur, andlega og
likamlega, minnið og ein-
Ijeitingin skerpist og matar-
hrstin stóreykst.
Fvrstu verksummerkin er
liann veitti athygli voru þau,
að hár sjúklinganna fór að
vaxa hraðar en venja er til
og eftir fjórar vikur tók
hann eftir því að i hnakka
sjúklinganna, sem flestir
voru gráhærðir, var farið að
vaxa hár sem var með sama
lit og gamla fólkið hafði áð-
ur haft. .Tafnframt urðu þeir
mun hressari. eins og áður
Þýzkur læknir hefur uppgötvað lyf sem er ekki aðeins yngingarlyf, heldur
veldur það einnig þeim undrum og stórmerkjum að grátt eða litlaust
hár fer að vaxa aftur í upprunalegum lit.
er tekið fram, og voru vilj-
ugri en þeir Iiöfðu verið um
árabil.
„Á næstu vikum,“ segir dr.
Heinitz, „komumst við að
þvi að „endurlitunin“ virk-
aði öfugt. Þegar hár fer að
grána hefst það i vöngum,
færist siðan upp á höfuðið
og þaðan í linakkann. En
L.K. 162 bvrjaði að hafa
áhrif í hnakkanum og end-
aði í vöngum.“
Annars segja læknar það
reginvitleysu að kalla slikl
hár grátt. Það er í rauninni
litalaust hár. og þessi nýja
töfratafla fær litunarkirtlana
i hárvefunum til þess að taka
til starfa á ný.
Dr. Heinitz er 42 ára. -—
Hann segir:
„Upphaflega var ég að
leita að meðali sem gæti gef-
ið eldra fólki eitthvað af
fvrri lífskrafti, og á því sviði
liefur L.K. 162 gefið góða
raun. Bæði ég og foreldrar
minir höfum reynt lyfið, og
okkur finnst það hafa stór-
kostleg áhrif; mjög upplífg-
andi.“
L.K. 162 er þó ekki örvun-
arlyf í venjulegum skilningi
])css orðs, og ]jað er alls ekki
vanamyndandi, en manni
líður mun hetur eftir að hafa
neytt lvfsins Þá er það einn-
ig ágætt til þess að nota
morguninn eftir að maður
hefur fengið sér einum of
mikið!
En ekki aðeins gamal-
menni hafa verið notuð til
þess að reyna þetta nýja
töfralyf. Dr. Heinitz segir frá
því að hann hafi gefið hár-
greiðslustúlku nokkrar töfl-
ur, sem hún siðan fékk ein-
um kúnnanum, og lét hana
taka inn, en kúnninn, ung
kona sem var farin að grána
lítilsháttar, hafði komið
reglulega til litunar. Og inn-
an nokkurra A’ikna var hár
hennar farið að vaxa aftur í
eðlilegum og upprunalegum
lit.
Þá getui lvfið verið hjálp-
legt fyrir konur sem eru á
breytingaraldrinum, staðhæf-
ir læknirinn.
„Magnið sem þarf að taka
inn er ákaflega lítið, og mað-
ur þarf ekki nema 2—3
töflur til þess að fá allt út úr
lyfinu, sem það getur gefið
manni.“
Þetta töfrulyf varð þekkt
um allt Þýzkaland, er blaða-
maður frá stærsta dagblaði
Vestur-Þýzkalands komst á
snoðir um tilraunir dr. Hein-
Framhald á bls. 37.
i. tbi. VIKAN 7