Vikan - 02.01.1970, Blaðsíða 22
Audrey Hepburn,
grannvaxna, fíngerða
stúlkan með dádýrs-
augun, sem var Twiggy-
týpa síns tíma, hefir
nú fundið nýjan og sér
yngri lífsförunaut. Það er
ítalski sálfræðingurinn
og læknirinn Andrea
Dotti. Hún er nú
hamingjusöm og þroskuð
kona, og nú bíða þau
eftir fyrsta barni sínu ...
-qp- Audrey með móður sinni.
Audrcy Hepburn og Mel Ferrer
giftu sig 1954.
Hversvegna verður maður ást-
fangin?
Vegna þess að maður er ungur
— vegna þess að aldurinn faerist yf-
ir, haustið er framundan. Vegna
þess að maður þráir eitthvað, vegna
tómleikans. Vegna þess að maður
er hryggur ...
Fólk verður ástfangið, vegna
þess að það þarfnast ástúðar og
atlætis.
Audrey Hepurn leið fyrir það í
æsku, að faðir hennar yfirgaf fjöl-
skyldu sína. Eiginmaður hennar,
Mel Ferrer, varð aldrei sú stoð, sem
hún þarfnaðist og vonaðist eftir.
Þess í stað varð hún að vera honum
stoð, en samt misheppnaðist hon-
um flest.
Mel Ferrer var framleiðandi af
síðustu kvikmynd hennar, ,,Wait un-
til Dark". Audrey lék blinda konu,
sem var skilin ein eftir í í(búð á
Manhattan, þar sem hún komst í
lífsháska. Var hún þar að túlka til-
finningar sínar við lok hjónabands
þeirra? Konur, sem leita trausts,
snúa sér oft til prestsins, eða manns-
Audrey í hlutverki Lizu í
„My Fair Lady“.
ins í hvíta sloppnum, læknisins.
Audrey Hepburn leitaði trausts
hjá þeim síðarnefnda, ítalska geð-
lækninum Andrea Dotti. Hann starf-
ar við háskólann í Róm og er níu
árum yngri en hún, sem er fertug.
— Það er svo mikill vísdómur
fólginn í því að maðurinn sé ekki
eldri en honum finnst sjálfum, segir
hann. — Ég meina þá andlega séð. í
þvi tilliti er enginn aldursmunur á
Audrey og mér, — þvert á móti,
stundum finnst mér Audrey yngri en
ég.
En hversvegna varð hún svona
ástfangin í þessum manni?
Vegna þess að hún þráði tilbreyt-
ingu. Hún var leið á sjálfri sér, og
þegar maður er leiður á sjálfum sér,
þá þarfnast maður ástar og um-
hyggju.
Þau eiga von á fyrsta barni sínu
í desember.
Hræðslan hefir alltaf verið fylgi-
fiskur .Audrey. Þessvegna hefir eng-
um tekizt betur að túlka angistina;
stór og barnaleg augun, granni,
22 VIKAN 1 tbl
Audrey og Sean sonur hennar. t
barnalegi líkaminn, næstum magur,
en hreyfingarnar alltaf jafn þokka-
fullar. Og ef litið er á hana nú, má
sjá að hún er hamingjusöm með
lækninum sínum, hún er ekki lengur
sorgmædd á svipinn.
Hann veitti henni sjálfsöryggi.
Audrey átti undarlega æsku. Móð-
ir hennar, Ella van Hemstra, er
viljasterk en rómantísk kona, komin
af gamalli hollenzkri aðalsætt. For-
feður hennar gengdu yfirleitt háum
stöðum. Ella van Hemstra var gift
hollenzkum baróni, þegar hún hitti
föður Audrey, enska kaupsýslu-
manninn J. A. Hepburn.
Audrey fæddist í Brússel. Faðir
hennar stundaði kaupsýslu báðum
megin við sundið. Ætt hans var
upprunalega skozk, en nokkuð
blönduð Irum, og af þeirri grein var
faðir Audrey.
Þegar síðari heimsstyrjöldin brauzt
út skeði það furðulega með föður
Audrey, hann gekk í brezka naz-
istaflokkinn. Móðir hennar skildi þá
við hann og flutti til Hollands aftur.
Eftir innrás þýzku nazistanna