Vikan


Vikan - 02.01.1970, Qupperneq 26

Vikan - 02.01.1970, Qupperneq 26
ALLT A SAMA GOLFI TIL AÐ SPARA YÐUR TlMA OG FYRIRHÖFN Tíminn er yður dýrmætur. Þróunin er í þá átt að mynda stórar heildir. Það á líka við í verzlun, ekki sfzt þegar um er að ræða hluti eins og húsgögn, innréttingar, heimilistæki, hillusamstæður, eldhús og barnarúm. Með öðrum orðum: Allt til heimilisins. Allt á einu gólfi, úrvalsvörur eingöngu. Merkin tala sínu máli: Pira-hillusamstæður, Neff-rafmagns- tæki, Dúna-sófasett og dýnur, hlaðrúm og stólar frá Krómhúsgögn. Og þannig mætti lengi telja. Þér veljið í stofuna, i eldhúsið, f barnaherbergin og húsbóndahergergið. Allt á einu bretti — allt á sama gólfi. HUS OG SKIP ÁRMÚLA 5 SÍMI 84415 OG 84416 STJÖRNUSPÁ % ¥ Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprfl): Góður vinur þinn gerir skyssu sem hann sér mjög eftir. Með orðheppni þinni vinnurðu skemmtilegan sigur. Þú þarft að gera verk sem reynir nokkuð á andlegt þrek þitt. Vogarmerkið (24. september — 23. október); Vegna smá lasleika geturðu ekki sinnt öllu því sem þú hefur á þinni könnu. Unglingur í fjölskyldunni gerir glappaskot sem kemur í þinn hlut að lagfæra. Þú lánar kunningj a þínum peninga. gPp Nautsmerkið (21. aprfl — 21. maf); Hugur þinn er óvenju skýr og opinn fyrir áhrifum. Þú byrjar starfsemi sem á eftir að fleyta þér mjög í átt að settu marki. Þú særir kunningja þinn óvilj- andi. Þú ferð á dansleik. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Kunningjar þínir hafa snjalla hugmynd fram að færa sem þú ættir að íhuga vel. Þér er óhætt að tefla nokkuð djarft í þeim málum sem þú vinnur að. Sennilega ferðu í leikhús. Tvfburamerkið (22. maf — 21. júnf): Þú getur gert þér mat úr hlutunum, ef þú ert nógu vel á verði. Láttu ekki uppskátt um fyrirætlanir þínar, það eykur á spennuna. Þú kemst á auðveldan hátt yfir góðan grip. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Taktu ekki hlutina eins og þeir sýnast i fyrstu. þú átt eftir að gera margar breytingar á teikningum sem þú hefur gert. Kunningi þinn flytur í nágrenn- ið. Heillalitur er blár. Krabbamerkið (22. júnf — 23. júlí): Þú færð létt starf í hendur, en vel borgað. Þér verð- ur boðlö tii óvenjulegs mannfagnaðar og skaltu fara, þó ekki sé nema fyrir forvitnina. Taktu til greina leiðbeiningar kunningja þinna. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú ert mjög óviss, því þú átt í rauninni margra kosta völ. Þú kynnist fólki sem þú siðar meir hef- ur mikil samskipti við. Vertu ekki of hlédrægur, reyndu að hressa þig upp. Ljónsmerklð (24. júlí — 23. ógúst): Þú verður óvenju rausnarlegur og viröist njóta þess að veita og gera öðrum greiða. Þú færð fréttlr sem koma sér vel fyrir þig. Þú heldur þig sem mest að sömu félögunum.. Vatnsberamerkið £21. janúar — 19. febrúar): Þú hefur miklar áhyggjur af gerðum eins ættingja þíns og leggur mikið upp úr að hafa áhrif á hann. Ákveðin persóna ásækir þig alitaf þegar hún kemst í færi við þig. Heillalitur er grænn. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú færð fréttir sem eiga eftir að setja svip sinn á athafnir þínar. Haltu þig vel að starfi þinu meðan þú átt að vera að vinna, það borgar sig illa að slá slöku við. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz); Vinkona þín gerir sig seka um ósmekklegheit sem fá þig til að fara hjá þér. Þú kynnist persónu sem þig hefur lengi langað að hafa samband við. Þú endumýjar samband þitt við gamlan kunningjahóp.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.