Vikan - 08.01.1970, Blaðsíða 4
Gott er aö hafa tvo hvoftana
og flytfa sitt með hvorum.
íslenzkur málsháttur.
SIÐAN
SÍÐAST
fólk í fréttunum
Það er kunnara en írá þurfi að segja, að
Bandaríkjamenn hafa margir hverjir
misst trúna á Edward M. Kennedy. En
samt eru Repúblikanar í heimaríki hans,
Massachusetts, vantrúaðir á að þeim tak-
ist að varna því að hann verði kjörinn
aftur til öldungadeildarinnar á næsta ári.
Teddy laetur engan bilbug á sér finna,
og nú vinnur starfsfólk hans ötul-
lega að því að safna heimildum, félags-
legum, stjórnmálalegum og efnahagsleg-
um, um hvert einasta þorp og borg í
Massachusetts, svo að Kennedy hafi svör
á reiðum höndum við hverri þeirri spurningu, sem fyrir hann kann
að vera lögð er hann stígur í púltið í einhverju þeirra þúsunda
samfélaga er menn byggja í sambandsríkinu Massachusetts.
Ernest Medina, höfuðsmaður í bandaríska
hernum hefur verið ákærður fyrir að
eiga einhvern þátt í fjöldamorðunum í My
Lai, en hann hefur hingað til ekki viljað
segja neitt um málið frá eigin brjósti, og
það sama má segja um lögfræðing hans,
hinn fræga F. Lee Bailey. Medina þótti
alltaf fyrirtaks herforingi, og herfylki
hans, sem gekk undir nafninu C-company,
var álitið eitt það bezta í bandaríska
hernum. En samt hegðuðu þeir sér eins
og allir vita. Og nú spyrja menn: Hvernig
leið Medina höfuðsmanni þegar Song My-
fréttin komst á forsíður blaða:
,,Ég var sleginn,“ sagði hann. „Fólk sem les þessar sögur ímynd-
ar sér nú að hver einasti maður sem eitthvað kemur nálægt
hernum og hver einasti hermaður í Viet Nam sé morðingi. Þetta
var byrjun á martröð, sem enn varir.“
Ein skærasta stjarnan í Hollywood þessa
dagana er án efa Dustin Hoffman. Hann
lék í sinni fyrstu mynd, „The Graduate“,
árið 1967, og síðan hefur frægðarsól hans
risið jafnt og þétt. Hann hefur þá og
leikið í tveimur öðrum myndum sem hafa
hlotið mikið lof og slegið öll met hvað
aðsókn snertir, Midnight Cowboy og John
and Mary, þar sem hann leikur á móti
Miu Farrow. Nú eigum við íslendingar
þess kost, snemma á árinu 1970, að sjá
myndina The Greduate og um leið birt-
um við söguna hér í blaðinu. Það er að
segja, fyrst birtum við söguna og siðan kemur myndin í Tónabíó.
4 VIKAN 2 tbl-
Old Cotton Place: Þegar forsetinn kom var friðurinn úti.
FRÁ SJÓNARHÚLI ENGINN FRIÐUR í
SÁMS FRÆNDA NÁBÝLI VIÐ NIXON
Menn um allan heim skamm-
ast nú og hneykslast á Banda-
ríkjamönnum fyrir morðin í
Song My. Það sem hér fer á
eftir er tekið upp úr bandaríska
tímaritinu TIME, og gefur ef til -
vill örlitla hugmynd um sjónar-
mið Bandaríkjamanna:
— My Lai málið er hræðilegt
og hefur valdið mörgum borg-
ara þessa lands andvökum. En
fyrir kommúnista í Viet Nam eru
fjöldamorð á óbreyttum borgur-
um aðeins ein aðferðin enn; rétt
stefna sem skæruliðar taka þeg-
ar ekki eru aðrar leiðir til þess
að fá fólk til að ganga í lið með
Viet Cong og hylla fána þeirra.
í löngu stríði er aldrei hægt að
segja með vissu um hvað margir
óbreyttir borgarar týna lífi fyr-
ir hendi kommúnistanna. Banda-
ríkin hafa staðfestar heimildir
fyrir því að síðan árið 1958 hafi
átt sér stað 100.000 hryðjuverk
af ýmsu tagi, og Suður- og Norð-
urvietnamskir kommúnistar
hafa myrt meira en 28.000
óbreytta borgara á sama tíma,
sært hundruð þúsunda og rænt
meira en 60.000.
Svo mörg voru þau orð.
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Þegar heimspekingurinn
Sókrates var að því spurð-
ur, hvort betra vœri að
giftast eða ekki, svaraði
hann: „Gerið hvort sem þið
viljið og ykkur mun samt
iðra þess “
Smáborgin San Clemente í
Kaliforníu, íbúar seytján þúsund,
bjuggu til skamms tíma við
óvenjumikla friðsæld eftir því
sem gerist í því landi. Fólkið
þarna er flest aldrað og á eftir-
launum og vill umfram allt njóta
kyrrðar og rólegheita eftir eril-
sama ævi.
En nú er friðurinn úti. Sú
breyting gekk í garð þegar fjöl-
skylda að nafni Nixon keypti
gömlu villuna Old Cotton Place
og dvelur þar síðan mörgum
stundum. Þessi fjölskylda kann
flestum öðrum betur að meta
friðsæld, en því miður er því
þannig varið um hana umfram
flestar fjölskyldur aðrar, að frið-
urinn er úti hvar sem hún sýnir
sig.
Hér er ekki endilega átt við
þess konar ófrið er fylgir bein-
um stríðsrekstri, heldur þann
styr er verður á stöðum þar sem
forvitnir túristar. ágengir minja-
gripasafnarar og frekir lóða-
spekúlantar safnast saman. Og
auðvitað verður að gæta forset-
ans hér eins og annars staðar;
hann fer aldrei fet án þess að
nokkrir öryggislögreglumenn
fylgi honum að viðbættum tals-
verðum skara annarra þjóna og
aðstoðarmanna.
Til dæmis um ósköpin í San
Clemente má nefna að lóðaverð
hefur tólffaldazt þar síðan for
setinn gerði Old Cotton Place að
hvíldarstað sínum. Þetta er
ósköp dapurlegt allt saman: auð-
vitað þarf hann sína hvíld ekki
síður en aðrir en í námunda við
mann í þeirri stöðu er því miður
útilokað að njóta nokkurs næðis.
★