Vikan - 08.01.1970, Qupperneq 5
LEE f MINI-MINI
Kunningjum hennar fannst
myndin stórkostleg, en Lee
Radziwill hryllti við henni. —
„Þegar maður er komin á viss-
an aldur,“ sagði hún, sem er 36
ára, „þá ætti maður að vera
virðulegri." Myndin, sem hér
fylgir, var tekin í hanastélsboði
sem haldið var til heiðurs banda-
ríska rithöfundinum Truman Ca-
pote (Með köldu blóði), og hann
rabbaði við blaðamann um þær
systur Lee og Jackie Kennedy-
Onassis:
„Lee minnir mig alltaf á unga
ljónaynju, sem leikur sér í skóg-
arjaðrinum. Það er eitthvað
eggjandi og kvenlegt við hana,
en það er því miður nokkuð óal-
gengt meðal kvenna. Jackie er
allt öðruvísi, hún er stórgerðari
og hrjúfari. Þær eru eins og
postulín og keramik — Lee er
postulínið. Þær eru báðar mjög
fallegar en mér finnst Lee fal-
legri og svo finnst Jackie líka.
Hún kallar Lee alltaf „þá fal-
legu“.“
LSD-LISTAVERK
Sífellt er talað um fíknilyf hér
á landi en lítið vita menn um
staðreyndir í málinu. f Vínar-
borg var nýlega gerð athugun á
34 listamönnum, sem unnu und-
ir áhrifum LSD, og hér sjást
nokkrar útkomur. Sami málar-
inn, Bernhard Jager, málaði all-
ar þrjár myndirnar og eru þær
allar af sama svíninu! Geri aðr-
ir betur.
9 vísur vikunnar
Válegt er hélað. hjarnið
hulið klaka og mjöll
og vetrarins hvítu voðum
vafin hin öldnu fjöll.
Hafís að landi lónar
á liðsinni er mörgum þörf
og hallærisnefndin hefur
hafið sín liknarstörf.
En sólin í heiði hækkar
og heitir oss raunabót
og heylausir bændur hefjast
handa um Þorrablót.
F. LEE BAILEY
ENN Á FERÐ
Og enn skeður nýtt í „Song
My-málinu“ fræga. Nú er það
hinn kunni lögfræðingur F. Lee
Bailey, sem hefur blandað sér í
málið, en hann varði m. a. einn
mannanna úr „Grænu alpahúf-
unum“ — sem er annað hneyksli
er Bandaríkjamenn urðu fyrir
nýlega og var látið niður falla
eins og alræmt er. Bailey hefur
tekið að sér að verja Medina
höfuðsmann, en hann er álitinn
hafa gefið út skipanir um að
myrða nokkur hundruð óbreyttra
borgara í S-Viet Nam. Bailey tel-
ur að blöð og fréttastofnanir í
USA hafi ekki skýrt frá „hinni
hlið málsins", eins og hann orð-
ar það, og hefur sent Nixon sím-
skeyti þar sem hann heimtar taf-
arlausa ráðstefnu við forsetann
í Hvíta húsinu, áður en með-
höndlun stjórnarinnar á málinu
„veldur einhverjum vandræð-
um“. —• Og sennilega er komið
upp nýtt hneyksli í sambandi við
Grænu alpahúfurnar. Já, það má
segja að þeir eru iðnir. . . .
PÖDDUSTRÍÐ
BANNAÐ
Eins og kunnugt er lofaði
Nixon því nýlega að Bandarík-
in myndu aldrei meir nota sýkla-
vopn í hernaði, undir neinum
kringumstæðum Nokkrir „Hauk-
anna“ í hermálaráðuneytinu voru
ekkert sérstaklega hrifnir af
þessu, og í því tilefni birtum við
þessa mynd, sem sýnir banda-
rískan herforingja skjóta bezta
vin sinn — með tárin í augun-
um. Á glasið er letrað: Sýkla-
hernaður.
KÆRI JÖN
Bréfið hefði alveg eins getað
byrjað þannig, en í staðinn byrj-
aði það „Elsku vinur minn!“
Það var til fyrrverandi forseta
Indónesíu og frá fyrrverandi
konu hans, hinni japönsku Ratna
Sari Lewi. Og hún hélt áfram:
„Mundu að ég elska þig enn
og mun alltaf gera það . “
— Ástæðan fyrir bréfinu er sú,
að hún ætlar nú að fara að skrifa
bók þar sem hún hefur hugsað
sér að ráðast harkalega á fanga-
vörð Sukarnos, Suharto, en
hann var leiðtogi þeirra sem
steyptu Sukarno af stóli árið
1967. Og hún fór fram á skilnað
við eiginmann sinn og fyrrver-
andi uppáhald — svo honum yrði
ekki misþj’-rmt í stað konu sinn-
ar. Hún var spurð að því hvað
hún myndi gera ef hún fengi
ekki svar, og svarið kom um
hæl: „Þá skil ég bara sjálf við
hann.“ Myndin sýnir Sukarno og
Ratna meðan allt lék í lyndi.
2. tbi. VIKAN 5