Vikan - 08.01.1970, Síða 22
Skandinaviskar
virðast vinsælar
Ekki alls fyrir löngu birtum við
mynd af Keith Emerson, orgel-
leikara hljómsveitarinnar Nice,
ásamt danskri heitkonu sinni.
Við létum þess þá getið, að
skandinavískar dömur vseru í
miklu uppáhaldi hjá brezkum
popp-goðum. Þessu til sönnunar
birtum við.nú myndir af tveim-
ur goðum, Peter Sarstedt og No-
el Redding, en þeir gengu báðir
að eiga danskar stúlkur á dögun-
um. Noel Redding (sá með túber-
aða hárbrúskinn) kvæntist Sús-
önnu Fonsby. Hún er 21 árs og
starfaði áður sem verzlunarstjóri
í Kaupinhöfn. Noel leikur með
hljómsveitinni „Fat Matress",
sem þekktust mun vera fyrir
lagið „Magic Forest“.
Peter Sarstedt kvæntist einnig
stúlku frá Kaupinhöfn. Sú heitir
Anita Atke og er tannlæknir að
mennt. Peter er þekktastur fyrir
lag sitt „Where do you go to, my
lovely?“
ANDRÉS INDRIÐASON
Tiny Tim er giftur
Tiny Tim hefur nú fest ráð sitt.
Sú lukkulega heitir Vicky Budd-
inger — og er sautján ára. Hjóna-
vígslan fór frain 18. des. sl. og
var henni sjónvarpað um öll
Bandaríkin, en slíks munu fá
dæmi. Það er líka einsdæmi, að
slík athöfn fari fram í sjón-
varpsþætti, en Timmi og Vicky
létu pússa sig saman í hinum
vinsæla skemmtiþætti Johnny
Carson, ..Tcnight“. — Herra Car-
son bauð mér þetta, segir Timmi.
Hann hefur alltaf verið í miklu
uppáhaldi hjá mér. Þegar hann
bauð mér að þiggja þetta boð,
varð ég mjög glaður. Ætlunin
hafði verið, að við giftum okkur
heima hjá mömmu hennar Virky.
- Vitiði bara hvað. Ég hef lesið
í blaði um hjón. sem létu pússa
sig saman neðansjávar, svo að
þið sjáið að það er alls ekkert
svo slæmt við brúðkaupið okkar.
Það, sem mestu máli skiptir, er
hjartalagið. Fundum Tiny Tim
og Vicky bar fvrst saman í mat-
vöruverzlun einni. Um það segir
Timmi: — Þegar ég sá hana,
svimaði mig. Ég sá hana aftur —
og aftur svimaði mig. Svo snerti
ég hönd hennar — og ég hef
ekki sleppt henni síðan.
Áhrifamikil auglýsing
Eitt laganna á ágætri hljómplötu
Ríó tríóisins, sem kom út skömmu
fyrir jól, heitir einfaldlega „Ég
fer“. Þetta lag heitir uppruna-
lega „Leaving On a Jet Plane“.
Svo vill til, að það hefur að
undanförnu verið ofarlega á
bandaríska vinsældalistanum,
sungið af Peter, Paul og Mary.
Til þess að auglýsa lagið fengu
P.P.&M. auglýsingastjóra sinn,
Brian Hutch, til þess að „sitja
fyrir“ haldandi á litlu flugvélar-
líkani. Þessi auglýsingamynd
hefur vakið töluverða athygli og
aukið sölu plötunnar.
22 VIKAN 2- tbl'