Vikan


Vikan - 08.01.1970, Page 35

Vikan - 08.01.1970, Page 35
rangt að fara með barnið eins og hún væri glæpa- kvendi, en hún neitaði að tala við mig. Óttalega hörmu- legt, allt saman. Þegar ég sá Nancy síðast var hún þegar orðin breytt, hafði týnt nið- ur lifsglampanum — hún var sem gangandi lík. 'Auðvitað er það hræðilegt og barbar- ískt að gefa burtu eigið barn — og ég veit að það hefur verið mikið áfall fyrir Nan- cy.“ „Hún minntist aldrei á föðurinn ?“ „Nei.“ „Munið þér livað nafn heimilisins, þar sem Nancy ól barnið, var?“ „Nei, það eru svo mörg ár síðan, en ég man að ég fór með Nancy þangað í leigu- bíl. Það var í Bronx, á Claud- wellgötu og stjórnað af nunnum. Veslings Nancy — átti ekki einu sinni ættingja sem hiin gat snúið sér til.“ „Jæja, þakka yður fyrir,“ sagði Hal og reis á fætur — um leið og hann tók um stól- bakið svo stóllinn færi ekki um koll. „Þér hafið verið mikil lijálparhella.“ „Nancy Evans dáin. Hún hefur ekki getað verið nema rétt þrítug, Ef móðir henn- ar hefði verið viti borin og reynt að skilja barnið sitt — við vitum að svona nokkuð kemur fyrir — þá er ég viss um að Nancy hefði lifað ákaflega hamingjusömu lifi.“ Hal kom á stöðina næsta morgun og varð liálf vand- ræðalegur þegar þar var jafn fjölmennt og á sænskri kvik- myndafrumsýningu. Ávisana- og lyfseðlafalsari hafði verið í nágrenninu daginn áður og haft mikið upp úr krafsinu. Bæði lj'f og peninga. Hal reyndi að flækjast ekki fyrir á meðan hann beið eftir tækifæri til að tala við Saund- ers liðþjálfa og sagði honum siðan að hann langaði til að fara yfir i Bronx og vinna að Evans-málinu. Saunders losaði sig við Hal á einfald- an hátt: „Olræt, strákur. Þá gerir þú það — og engan æsing.“ 1 dag fannst Hal hann alls ekki svo tilgangslaus, svo liann lét þessi ummæli Saunders sem vind um eyr- un þjóta. Hann hafði orðið sér úti um heimilisföng allra heimila fyrir ógiftar mæður, og fundið eitt i Cauldwell- götu, rétt eins og ungfrú Wallace liafði sagt. Nunna í hvítum lcyrtli tók á móti honum og sagði hon- um með litlausri röddu að það væri rétt: „Eftir skýrsl- um okkar að dæma, var ung- frú Nancy Evans hér fyrir tæpum sextán árum.“ „Hafið þið nafn föðurins?“ „Nei. Annað hvort vissi stúlkan það ekki eða þá vildi hún ekki segja frá þvi.“ „Mér þætti vænt um að fá að vita hver tók barnið að _ a ser. Systirin brosti asnalega. „Þó þetta hafi verið áður en ég kom hér, get ég ekki sagt vður það. Við eyðileggjum allar skýrslur af því tagi. Móðirin veit aldrei hver tek- ur barnið hennar og fóstur- foreldrarnir vita aldrei hver átti barnið. Það vill nefni- lega oft til að eftir að stúlka hefur fallizt á að gefa bam- ið, giftist hún og þá vill hún fá harnið sitt aftur. Auðvit- að gæti þetta haft í för með sér alls kyns leiðindi og flækjur svo við eyðileggjum allar skýrslur um ættleið- ingar.“ „Ég skil. systir, en þetta er lögreglumál, morðmál, og það mikilvægt. Ættleiðing verður að fara fyrir rétt, svo einhvers staðar hljóta að vera til skýrslur.“ „Mér þykir fyrir þvi, lög- regluforingi, en staðreyndin er sú, að öllum skýrslum hefur verið hent og brennt.“ Hal var kominn aftur á stöðina um hádegi. Saund- ers var í símanum og tók niður lýsingu stolins bíls. Þegar hann sá Hal, rétti hann fram höndina og sagði: „Fisher, náðu í brauðsneið með nautakjöti, miklu sinn- epi og gleymdu ekki laukn- um. Kaffibolla líka, svkur- laust.“ Þegar Hal kom aftur rót- STJÖRNUSPÁ ^ is Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll); Þú hefur beðið eftir því undanfarið að ákveðinn at- burður gerist og nú er líklegt að svo verði. Vertu vel viðbúinn. Sunnudagurinn skiptir þig mestu, þú þarft að koma miklu í verk þá. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður mjög mislyndur næstu daga og muntu nokkrum sinnum eiga bágt með að halda aftur af þér. Föstudagurinn er varhugaverður, einkum ef þú átt stefnumót við ástvin þinn. Heillaiitur er fjórir. m Nautsmerkið (21. aprll — 21. maí): Reynt verður að bendla þig við mál, sem þú vilt alls ekki koma nálægt. Á vinnustað gerist nokkuð óvænt, að minnsta kosti áttir þú ekki von á þessum viðbrögðum úr þessari átt. DrekamerkiS (24. október — 22. nóvember); Vikan verður fremur sviplaús. Þú eyðir miklum tíma i að lagfæra verk sem hefur gengið úr skorð- um. Gættu þess að lofa ekki meiru en því, sem þú getur staðið við. Heilladagur laugardagur. n TvlburamerklB (22. mof — 21. |únl): Maður. sem vill þér vel, kemur talsvert við sögu þína í vikunni, en þér mun þykja hann helzt til ráðrikur. Þú skuldar einhverjum bréf og ættir alls ekki að draga lengur að svara þvi. BogmannsmerkiB (23. nóvember — 21. des.): Kunningi þinn verður til að opna augu þín fyrir nýjungum, sem verða þér að miklum notum við áhugamál þín. Einhverjar mikilvægar breytingar gætu orðið á starfi þínu á næstunni. aai KrabbamerklB (22. júnf — 23. júll): Engin stórtíðindi gerast í vikunni, en þú færð nú uppfyllta eina ósk sem þú hefur lengi þráð. Einhver náskyldur þér hverfur af sjónarsviðinu um stundar- sakir. Þú saknar hans mikið. £ SteingeitarmerkiB (22. desember — 20. janúar): Þvl miður verðurðu fyrir vonbrigðum, sem þú tekur nærri þér. Helgin verður nokkuð óvenjuleg og mun hún draga nokkuð úr sviðanum. Líkur eru á kunn- ingjaheimsókn, sem flytur góð tíðindi. Jt/"J LjónsmerklB (24. júll - 23. ágúst): Allt bendir til þess að frístundimar verði bezt not- aðar til heimavinnu. Komdu ýmsu í lag. sem þú hefur trassað undanfarið. Illur orðrómur verður til að koma vini þínum i klípu. VatnsberamerkiB £21. janúor — 19. febrúar): Vandaðu vei alit skrifað sem þú lætur frá þér fara í vikunni. Sérstaklega skaltu varast samningsgerðir. Þú kemur fram fyrir hönd einhvers annars og tekst mjög vel til. Heilladagur er föstudagur. MeyjarmerklB (24. ágúst — 23. september): Þú ert mjög kröfuharður og eru kröfur þínar alls ekki sanngjarnar og óvist hvort þú græðir nokkuð á þeim. Þú iendir í fjölmennu samkvæmi, en þú verður að gæta hófsemi. FiskamerkiS (20. febrúar — 20. morz)-. Þú heldur að þú getir annað miklu meira en raun er á og kemur það niður á þínum nánustu, vegna þess hve úrillur og uppstökkur þú ert. Gagnrýndu þetta atriði hjá þér, kannske finnurðu lausn sjálfur. 2. tbi. viKAN 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.