Vikan


Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 4

Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 4
Sá er ekki ólánsmaður, sem eng- inn hefur ólán af. íslenzkur málsháttur. • fólk í fréttunum Árið 1935 sendi Franklin D. Roosvelt, þáverandi Bandaríkjaforseti, ungum pilti, sem hafði sama áhugamál og forsetinn, bréf, þar sem sagði meðal annars: „Faðir þinn hefur sagt mér að þú sért frímerkja- safnari, og mér datt í hug að senda þér þessi merki til að bæta í safnið þitt. Hér með sendi ég þér líka frímerkjaalbúm. . . . “ Fljót- lega fékk forsetinn svar frá hinum 9 ára gamla pennavini sínum: „Ég ætla að láta innramma bréfið þitt, og láta það alltaf hanga í herberginu mínu.“ Það er þar enn — á veggnum í svefnherbergi piltsins, þar sem hann bjó í Virgíníu. Og nú hefur verið komið fyrir, við hliðina á bréfi forsetans, afriti af bréfi drengsins, sem endar svona: „Pabbi, mamma og allir bræður mínir og systur biðja að heilsa og vona að þú gleymir okkur ekki.“ Undirskriftin er: Það er varla hægt að segja annað en að Svetlana Alliluyeva, dóttir Stalíns, hafi haft það gott síðan hún yfirgaf Sovét- ríkin fyrir þremur árum síðan. Bækur hennar hafa séð fyrir því að nú býr hún í þægilegri villu í Princeton, New Jersey, og þar hefur hún allt sem hún vill. En nýlega varð til einhver vindingur í þessu þægilega lífi hennar. Hún var öskuvond þegar hún lýsti því yfir að franska þýðingin í bók hennar, „Aðeins eitt ár“ (sem segir nákvæmlega frá flótta hennar vestur fyrir járntjald), sé mjög úr formi færð. „Allt sem ég gagnrýndi í Sovétríkjunum var mýkt og dregið úr,“ sagði hún, „og öllu því sem ég hafði skrif- að um vingjarnlega framkomu Bandarikjamannna í minn garð, er sleppt.“ En franski útgefandinn, Robert Laffont, var harður á sínu; sagði að bandaríska útgáfan (sem er þýdd úr rússnesku) væri „hörmuleg“, en sú franska væri „stórkostleg“. Franska útgáfan seldist annars í 45.000 eintökum, og hvort sem það var með tilliti til Svetlönu eða ekki, þá hætti Laffont við að láta prenta annað álíka stórt upplag. Uppreisnarmennirnir 7 frá Chicago hafa mjög komið við sögu undanfarið, en nú hafa þeir verið dæmdir, eins og frægt er orðið. Þegar þeir voru settir í tugthús voru þeir rakaðir og klipptir, og hér sýnum við myndir af þeim — fyrir og eftir. Efstur er Jerry Rubin, þá Abbie Hoffman og neðstur er svo Tom Hayden. ÞaS var von á bandarískum herskip- um i flotaheimsókn, og næturklúbbs- eigandann vantaði stúlkur til að draga til sín sjóliðana. Næturklúbburinn var „Sergeant Pepper“ í Palma. Þar var sænsku fiikkunum ætlað að vera til gamans fyrir fulla sjóliða. Saga úr sumarleyfaparadís Einhver alvinsælasti sumar- leyfastaður á hnettinum er spænska eylandið Mallorka, — sem til dæmis hefur verið gífur- lega sóttur af íslendingum síð- ustu árin. Eins og við var að búast safnast þarna að alls kyns ófénaður í mannsmynd enda aldrei verið hörgull á slíku í Miðjarðarhafslöndum frá því sögur hófust. Óaldalýður hefur það að markmiði að hafa eitt- hvað gott af túristunum norðan að, sem ekki kunna allir fótum sínum jafnvel forráð. Og vita- skuld er engra bragða svifizt í því efni. í fyrra var mikið um það rætt í sænskum blöðum að sumir hótelstjórar á paradísar- eynni létu eyjarskeggjum eftir — gegn mátulegu gjaldi — lykla að herbergjum Norðurlanda- stúlkna, sem ekki að ástæðu- lausu hafa orð á sér fyrir frjáls- legan en ekki að sama skapi smekklegan samgang við karl- peninginn á þessari breiddar- gráðu. Fyrir hefur komið að sænskar stúlkur þar syðra hafi fundizt myrtar í herbergjum sínum, og er ástæðan trúlegast sú að „elskhugum" þeirra hafi orðið skapfátt er þær reyndust ekki eins eftirlátar og vænzt hafði verið. Annað hneykslismál tengt Mallorka og sænskum stúlkum er nú komið upp. Næturklúbbs- eigandi einn á eynni auglýsti í nokkrum Stokkhólmsblaðanna eftir stúlkum í vinnu, lofaði góðu kaupi, fríum ferðum fram og til baka, fríu fæði og hús- næði og öllu eftir þessu. Enda urðu ófáar flikkur til að gína yfir agninu. En þegar til kom reyndist vinnan í því fólgin að ginna í klúbbinn bandaríska sjó- liða og auðvitað að augsýna þeim alla þá tillátssemi er með þyrfti. Flestum stúlknanna leizt ekk- ert á þetta þegar til kom og segi menn svo að norrænu kvenfólki sé alls varnað. Þær fóru í sænska konsúlatið á eynni og kærðu. Fengu þær flestar fjárstyrk hjá konsúlatinu eða ættingjum að heiman til að komast til Sví- þjóðar. Allar voru þær sammála um eitt: að til Mallorka færu þær aldrei aftur í lífinu. Fróðlegt væri að vita hvort ekkert af öllu því íslenzka kven- fólki, sem til Mallorka hefur sótt síðustu árin, hefur ekki af ein- hvers konar krassandi lífsreynslu að segja, hliðstæðri því er drep- ið er á í greinarkorni þessu. •ír Snoddas kaupir gæsabú Einhver hlýtur að muna eftir Snoddas. Það er maðurinn sem varð frægur fyrir átján árum fyrir að syngja „haderian". Hann vann sér inn óhemju mikla pen- inga, keypti lúxusbíla og lifði eins og fursti. Hann söng vísuna um timburfleytarann dag og nótt, en athugaði ekki að lánið er fallvalt, og einn góðan veð- urdag var fólkið búið að fá nóg af vísunum hans, og hann skuld- aði ríkinu á aðra milljón króna. Hann hefur verið að stritast við að borga þennan skatt og loks- ins er það búið. Nú er hann búinn að kaupa gæsabú og unir glaður við sitt, syngur „haderian“ við og við. Hann kvíði mest fyrir því að þurfa að drepa gæsirnar, en lík- lega kemst hann ekki hjá því, ef hann á að hafa fyrir daglegu brauði.... ☆ STUTT OG LAG- GOTT Margar skilgreiningar hafa verið samdar um sam- vizkuna. Hér er til dœmis ein: Samvizka er sá hluti líkamans, sem leysist bezt upp í alkóhóli. 4 VIKAN 14 ‘bi

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.