Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 10
ARLJOM
hnetti. Þar hrúgast saman skál-
ar, sem sumir eru í lögun eins
og diskar og kúlur, en aðrir sem
turnar og pýramídar með allra
handa tilbreytingum. Þar skipt-
ist á stál, gler og alúmín. Reikn-
að er með að milljón útlendingar
heimsæki landið til að sjá sýn-
inguna, sem sjötíu og tvær þjóð-
ir taka þátt í. Sýningar sem
þessar eru ekki einungis til að
auglýsa vörur og leita markaða,
heldur og til að sýna heimin-
um dýrð sína og veldi almennt.
Bandaríkin leggja þannig höfuð-
áherzlu á að minna á tunglferðir
sínar og hafa auk annars til sýn-
is ekta mánagrjót, en hjá Sovét-
mönnum yfirgengur aldarafmæli
Leníns auðvitað allt annað. Þeir
munu minnast afmælis hans
jafnframt því sem þeir minna á
sovézka sögu, tækni og vísindi.
Skáli þeirra er auðvitað rauður
og eins og sigð í laginu. Fleiri
skálar eru þarna frumlegir að
gerð og eiga þannig að vera
táknrænir fyrir eigendur sína.
Þannig er sýningarskáli Hawaii
í laginu eins og eldfjall, en Fíla-
beinsstrandar eins og fílstennur.
En vitaskuld er það Japan
sjálft og afrek þess á öllum
sviðum sem þarna verða sýnd
og auglýst fyrst og fremst.
Sé gengið út frá því sem stað-
reynd að mikil og hröð fram-
þróun í tækniheimi nútímans sé
hamingja mest á jörðu hér, þá
hafa Japanir flestum fremur
ástæðu til að vera ánægðir með
lífið og sjálfa sig. Þangað til
fyrir öld síðan bjuggu þeir við
eins konar lénsskipulag, lifðu
einkum á akuryrkju og voru
næstum algerlega einangraðir.
Nú er það svo að langtum auð-
veldara reynist að breyta ytra
borði hlutanna en kjarna þeirra,
og þarf því engan að undra þótt
japanskt þjóðlíf sé ótrúleg
hræra af ævafornu oe splunku-
1 Í’.
&*«$«**
■.ixíóírt
Frá sýningarsvæðinu. Lengst til hægri eru rafreiknar scm settir hafa verið
þannig saman að þeir minna á pagóðu.
tréklossar. Lítil og snotur tréhús
úr viði skiptast þar á við vold-
uga skrifstofukassa úr steini og
gleri, og tröllauknir kranar og
skorsteinar iðjuvera gnæfa við
hlið Búddahofa með mjúkar
boglínur í þökum.
Hinn forni arfur skreytir Jap-
an, en hindrar það í engu í
sókninni fram í hinn nýja tíma.
Þvert á móti. Japanski sölumað-
urinn, sem er tíður gestur í hót-
elsölum hvar sem er í heimi,
fljótur til að brosa og bukka sig
og undirbjóða keppinautinn,
snoturlega en ekki frumlega
klæddur og með gleraugu, er
arftaki tveggja annarra mann-
Yfir sýningarbletti Ástralíumanna gnæfir gríðarmikill krókur, scm gagnsætt
þak skálans hangir í.