Vikan


Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 11

Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 11
eVLAIMDS gerða japanskra og ber í sér einkenni þeirra, þótt hann sé varla eins áhrifamikill álitum. Önnur þessi manngerð var hinn geigvænlegi vakó, eins konar japönsk útgáfa af víkingunum okkar, sjóræningi og kauphöldur jöfnum höndum. Vakóarnir fóru að rupla strendur Austur-Asíu þegar á fjórtándu öld. Hinn fyr- irrennari þessa auðmjúka og allt annað en hermannlega verzlun- armanns er bastarður sá af skrif- stofublók og stríðsmanni, er fyr- ir þremur áratugum tókst á hendur það stórvirki að búa til „Stór-Austur-Asíu-samfélagið“. Sá hafði að slagorði „Asía fyrir Asíumenn“, en raunverulegur tilgangur hans var að sjá verk- íkúkó-san, tuttngu og eins árs geisa, klæðist pínupilsi þegar hún fer í búðir á daginn. En á kvöldin, að störfum, íklæðist hún þjóðbúningi. smiðjum Japans fyrir hráefnum og mörkuðum. En líkt og banda- mönnum þeirra í Evrópu hefur þeim farnast ólíkt betur síðan þeir gáfu sig að því að leggja undir sig heiminn með friðsam- legu móti aðeins. Lágt verð er ein meginástæð- an til þess hversu japönskum varningi hefur miðað vel í sókn- inni á heimsmarkaðnum. Fyrir stríð og fyrsta kastið á eftir það var þetta mikið til að þakka lágum verkamannalaunum, en því er ekki svo varið lengur; kaup japanskra verkamanna er ekki svo ýkja lágt núorðið. Nú kemur lága verðið á japönsku vörunum einkum til af hag- kvæmni framleiðendanna, dugn- aði verkamannanna og vel skipu- lögðum flutningum með skipum. Hlutur Japans í heimsverzlun- inni er nú sjö prósent og hefur þrefaldazt síðan 1955. Samsvar- andi hlutur Bandaríkjanna, sem auðvitað er stærri en nokkurs ríkis annars, er átján prósent. Sumir hagfræðingar spá því nú að eftir tíu ár verði báðir komn- ir með jafnstóra sneið af kök- unni, fimmtán prósent hvorir. Þessi gífurlegi árangur Japans er auk annars að þakka mikilli sjálfsafneitun. Útflutningurinn hefur algerlega verið látinn ganga fyrir markaðinum og þörfinni innanlands. Þar er mik- il vöntun á vegum, járnbraut- um, skólum, sjúkrahúsum. Hús- næðisvandræðin eru gífurleg og mengunin með versta móti, eins og vænta mátti í jafn þéttbýlu iðnaðarlandi. Húsnæðisvandræð- in eru auðvitað ekki minni fyrir þá sök að Japan hefur undanfar- ið verið að breytast úr bænda- samfélagi í borgaþjóðfélag af þröngbýlustu sort, og hefur það ekki gengið hægar fyrir sig en annað í því landi síðan það hóf sitt stóra stökk inn í nútímann. Fyrir aðeins tuttugu árum bjó meirihluti Japana enn í sveit, og var tæknin í landbúnaðinum þó ekki meiri en svo að hann gat ekki fullnægt þörf þjóðarinnar fvrir aðalfæðutegund hennar, hrísgrjón. Síðan hefur tækninni í landbúnaðinum fleygt svo fram að aðeins átján prósent lands- manna hafa það af að fæða þá oe meira en bað. Bændurnir,

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.