Vikan


Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 14

Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 14
ViS höldum áfram meS hina ævintýralegu sögu rithöfundarins fræga og vinsæla, Jacks London. Þótt hann sé kominn Nf BRENNANDIÁST OG BEIZKR 8KIINADUR þrjátíu daga skrit'aði hann látlaust. Hann vanrækti allt annað, vinina, fjölskylduna, skuldirnar, ungbarnið, próf- arkirnar, sem komu daglega frá „Macmillan“. — Hann lifði aðeins fyrir hundinn sinn, Buk, sem var St. Bern- harðhundur í aðra ættina, en skozkur fjárhundur í hina, og hafði lifað kóngalífi á bú- garði í Santa Clara dalnum, þangað til hann flutti til Klondike. Eitt miðvikudagskvöld bætti Jack loks fyrir van- rækslu sína gagnvart gestun- um. Hann settist við arininn með kunningjana allt í kring- um sig og las fvrir þá söguna af stóra hundinum Buk, sem reyndist trúr ást sinni til mannanna, þangað til skóg- arnir og minningin um villtu úlfana seiddu hann til sín til hins frumstæða lífs. Jack las þangað til klukkan þrjú um nóttina, og þegar hann var búinn var steinhljóð í stofunni. Ilann hafði skrifað Alaska-sögur í þrjú ár, en aldrei verið fyllilega ánægður með þær. Nú loksins hafði erfiðið fært honum sigur. Hann hafði fært sögu sína í Svo tæran og listrænan bún- ins. að' áheyrendur hans höfðu verið jafnsnortnir og hugfangnir, þegar þeir hlust- uðu á söguna og Jack sjálfur var. á meðan hann var að semja liana. Morguninn eftir sendi hann söguna til „The Saturday Evening Post,“ sem var víð- lesnasta blað heimsins í bá á fullorðinsár, erekkert lát á sviptingum í lífi hans. Með bókinni „Þegar náttúran kallar“ vinnur hann mikinn sigur sem rithöfundur, en í sama bili gjör- breytist einkalíf hans. Hann verður ástfang- inn og yfirgefur konu sína og börn. EFTIR IRVING STONE 10. GREIN Einnig í þetta skipti fæddi Bessie honum dóttur. Jack varð fyrir miklum vonbrigð- um og það hafði mikil áhrif á Bessie. í nokkra daga reikaði hann um vonsvikinn en svo allt í einu datt honum í hug, að hann skyldi skrifa nýja hundasögu í líkingu við það, sem hann hafði skrifað árið áður. Eftir fjóra daga var hann búinn að skrifa 4000 orð og sá þá sér til mikillar undr- unar, að sagan var rétt ný- byrjuð, en upphaflega hafði hann haft í hyggju að binda sig við 4000 orð. Hann ákvað að láta hana heita „Þegar náttúran kallar“, og láta hana vaxa eins og hún vildi, því að nú var það hún sem var húsbóndinn, og hann aðeins auðmjúkur þjónn hennar. I Glenn Ellen, lítli bærinn i Mánadalnum, varð eitt af aðalheimkynnum Jacks London. Myndin sýnir hann með Charmain fyrir utan húsið, sem þau létu byggja, er þau voru gift. Charmain Kittredge um það bil sem hún stundar Jack í veikindum hans. 14 VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.