Vikan - 02.04.1970, Page 27
Af skreytinguniim vakti mesta athygli heil hnísa, sem stillt var upp á borð. Til hægri sést Ómar Ragnarsson virða
fyrir sér skepnuna.
KLITMAGAKVÖLD HJÁ
LiONS-KLÚBBNUM
Lionsklúbburinn Ægir í Reykjavík heldur árlega sérstæða skemmtun, sem kallast Kútmaga-
kvöld. Skemmtun þessi er býsna óvenjuleg að því leyti, að allur matur, sem á boðstólum er,
er úr sjó, og eingöngu karlmenn mega vera viðstaddir. Við innganginn stóð maður í sjóstakk
og tók við aðgöngumiðum og matborðið var fagurlega skreytt ýmsum táknum í sambandi
við sjósókn og sjómennsku. Allur ágóði af skemmtuninni rennur til Sólheima í Grímsnesi,
sem er heimili fyrir vangefin börn. VIKAN brá sér á síðasta Kútmagakvöld, sem haldið var
að Hótel Sögu fyrir skömmu, og á þessum síðum sjáum við nokkrar svipmyndir frá þessari
frumlegu og skemmtilegu samkomu.
Á þessari mynd er Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri Sögu, ásamt gestum sínum. Talið frá
vinstri: Óli Bárðdal, forstjóri, Valdimar Krist-
insson, viðskiptafræðingur, Eyjólfur Konráð
Jónsson, ritstjóri, Jón Magnússon, lögfræðingur,
Þórir Skarphéðinsson, stórkaupmaður, Konráð
Guðmundsson, hótelstjóri, Haraldur J. Hamar,
ritstjóri, Guðjón Guðnason, læknir, Njáll Ingj-
aldsson, fulltrúi og Guðjón Hólm, lögfræðingur.
LJOSMYNDIR:
SIGURGEIR SIGURJÖNSSON