Vikan


Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 40

Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 40
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK, SÍM113404 ÁLAFOSS v Hvar eru gömlu rokkarnir, sem rykféllu í geymslunni fyrir örfáum árum ? Þeir eru komnir í gagnið á ný, sem stofuprýði. Hvers vegna ? Nýi tónn- inn í hýbýlaprýði er samröðun gamalla, sígildra muna og nýtízku hús- gagna á smekklegan hátt. Vitað er að Salún vefnaður var til í landinu þegar árið 1352. Álafoss h.f. hefur nú hafið vefnað á Salúni. Það er eins líkt hinum upphaflega vefnaði eins og næst verður komist, samkvæmt þeim heimildum sem til eru. Húsgagnaarkitektar og bólstrarar hafa klætt nýtízku húsgögn. þessúm vefnaði og árangurinn sjáið þér svart á hvítu hér á síðunni. Salún setur svipinn á stofuna. Litina, munstrin og gæðin vildum við gjarnan fá að sýna yður. Lítið því inn til okkar í Þingholtsstræti, eða talið við bólstrarann yðar. „Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann“. Nýi tónninn í hýbýlaprýði. Gamalt og nýtt sameinað. Salún ig ætti að framfylgia því. Við getum sett upp dæmi: Magnús, níu ára, kemur heim úr skólanum. Þér segið við hann: „Magnús, kennarinn þinn hringdi og sagði að þú hafir komið of seint alla vikuna. Hann sagði líka að þú hafir ekki reiknað heima- dæmin, og að þú hafir málað með vatnslitum á hvítu blússuna hennar Maríu, af ásettu ráði. Og svo sagði hann lííka að þú truflaðir alla kennslu í bekknum með þessum bjálfahætti bínum. Ég elska þig Magnús minn". Ég held að Magnús yrði alvarlega hræddur. Að vísu er hann níu ára og hefir eflaust heyrt sitt af hverju um undarlega hætti þeirra fullornu. Ég held að hann kannaðist ögn bet- ur við þá ráðningu, sém hann á von á, eða að heyra yður segja: „Bíddu bara, þangað til hann pabbi þinn heyrir þetta." • Merki um það að foreldrar séu þroskaðir og reyndir er að þeir endurtaki sífellt skipanir sínar. Gegnum árin hefir þeim orðið það Ijóst að lítil börn þurfa að fá að vita hlutina oftar en einu sinni, og gripa þá oft til þess að endurtaka skipanir sínar strax. Til dæmis: Reyndu nú að þvo þér um hend- urnar. Heyrirðu hvað ég segi? Ég sagði þér að þvo þér strax um hendurnar. Og með sápu. Skilurðu það? Með sápu." Svo er það annað af tvennu, að bíða um stund og segja svo: „Sjáðu hendurnar á þér. Sjáðu bara þess- ar hendur. Heldurðu að þú þurfir að segja mér að þú sért búinn að þvo þér?" Þannig tala ég sínkt og heilagt. Ég heyri mig segja þetta. Heyri það og fyrirlít sjálfa mig. Mér finnst sjálfri þetta vera andstyggi- legt, en þannig er það einfaldlega, þegar börnin eru mörg. Það ákjósanlega væri að eignast sexbura, meðan maður sjálfur er um tvítugt. Þegar þau væru orðin tveggja ára, myndu þau öll sparka af sér skónum, án þess að reima frá. Það yrði töluvert af rembihnút- um í bili, en þegar þvi tímabili væri lokið, væri því líka lokið fyrir fullt og allt. Eins væri það með mjólkur- glösin. Það yrði auðvitað töluverð bleyta á tímabili, en ekki alla tíð. Ég veit að það yrði nokkur erfið ár, en þá þyrfti maður ekki að berj- ast við sömu erfiðleikana til fer- tugs .... •& Expó 70___________________ Framhald af bls. 11. skyggni eftir því svo slæmt að útsýnin þaðan til Fúsijama, sem margir kalla fegurst fjall í heimi og japönsk skáld hafa eytt á meira bleki en nokkurn annan blett í landinu, heyrir nú löngu liðinni fortíð til. New York, sem hefur svo sem nógu slæmt orð á sér fyrir þrengsli, er hvað það snertir hrein paradís borið sam- an við Tókíó. í fyrrnefnda staðn- um eru nærri hundrað og þrjá- tíu ferfet garðsvæðis á hvern innbyggjara en aðeins sjö í Tó- kíó. Verð á fasteignum í sumum hlutum borgarinnar er þegar farið að slaga hátt upp í það sem það er á Manhattan, og þó eru hús heldur ótraust eign í Japan. Borgarstæði Tókíó er sem sé heldur illa ræmt jarð- skjálftasvæði, og síðast 1923 flatti gífurlegur jarðskjálfti borgina út og sálgaði um leið álitlegum hluta íbúanna. Engin trygging er fyrir því að svoleið- is nokkuð endurtaki sig ekki hvenær sem verkast vill, og svo sem til að minna fólkið á það líður varla sá dagur að ekki finnist smákippir. Ef nú kæmi jarðskjálfti á borð við hinn mikla fyrir tæpri háflfri öld, 40 VIKAN 14 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.