Vikan


Vikan - 02.04.1970, Side 44

Vikan - 02.04.1970, Side 44
FRÁ RAFHA 56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI. yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill). Kiukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322 bandi má minna á Nóbels-verð- launin sem Kavabata fékk, og beztu japanskar kvikmyndir eru eins og þær gerast beztar annars staðar í heiminum. Mikill áhugi virðist ríkjandi í landinu á vest- rænni leiklist og tónlist, og í tónlistarskóla einum í Tókíó læra fjögurra ára gömul börn að spila Bach á örsmá píanó og fiðlur. Eins og fyrr er getið er veldi Japans, þótt mikið sé, að veru- legu leyti „í felum“. En spurs- mál er hve langi svo getur stað- ið. Bandaríkjamenn eru orðnir sárleiðir á öllum þeim skakka- föllum, sem þeir hafa orðið fyrir í Kína og Víetnam eftir síðari heimsstyrjöld og stefna Nixons gengur út á að láta Asíumenn sjá um sig sjálfa eftir föngum. Og Bretar eru staðráðnir í að leggja niður herstöðvar sínar austan Súes. Þetta hlýtur að hafa í för með sér að verulega dragi úr pólitískum áhrifum þessara stórvelda í Austur-Asíu, og þar losnar rúm, sem liggur beint við fyrir Japan að fylla. Þegar svo verður komið að Jap- an verður ekki einungis stórveldi efnahagslega séð, heldur og póli- tískt, er hætt við að reglan um neitunarvaldið í öryggisráðinu, sem veitt hefur fimm rikjum (Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Kína) einkarétt á stórveldistitlinum, fari að verða nokkuð fornleg. Hættið að reykja Framhald af bls. 19. ur er skiptir engu meginmáli, ef maðurinn treystir sér ekki til að hætta á annað borð. Sé það rétt að um helm- ingur allra reykingamanna reyki einkum af vana eða fé- lagslegum ástæðum, væri eðlilegast fyrir þá, sem gegn nikótíninu berjast, að beina geiri sínum að þeim. Þeir bafa þrátt fyrir allt miklu meiri möguleika á að geta bætt en hinir, sem eru orðn- ir hreinir nikótínistar. Við eigum að benda þessu fólki á þann gífurlega fjárhagslega sparnað, sem því fylgir að reykja ekki, og sömuleiðis á að heilsa þess verði að öll- um líkindum betri. Við eig- um einnig að höfða til ábyrgðartilfinningar bjá fólki eins og foreldrum og kennurum, sýna þeim fram á hve miklar líkur séu til að börn þeirra og nemendur taki reykingarnar upp eftir þeim. Fjárhagslegur hagnað- ur af því að reykja ekki er verulegur; i Bretlandi dugar verð tuttugu sígarettna á dag til að fæða einn meðlim fjöl- skyldunnar. Kannski hefur samfélag okkar ekki ennþá gert sér ljósan þann ruddalega sann- leik, að í raun réttri vill það losna við sígarettuna. Rödd- in sem mælir gegn sígarett- unni heyrist sjaldan innan um allt hið háværa þras er nútímaþjóðfélaginu fylgir, og auk þess gerir auglýsinga- áróður sígarettuframleiðenda og félagslegar venjur sitt til að yfirgnæfa hana. Ekki er þó þvi að neita að þegar hef- ur ýmislegt verið gert til að stemma stigu fyrir sígarett- unni. í Brellandi er hætt að taka sígarettuauglýsingar i sjónvarpið. f ftalíu hefur al- gjörlega verið tekið fyrir auglýsingar á sígarettum. í Noregi liafa verið gerðar ráðstafanir til að hindra að sjónvarpið hvetji til revk- inga. í Bandarikjunum hefur verið leitt í lög að þegar sígarettuauglýsingar eru teknar í sjónvarpsþætti, þá verði að gefa þeim, sem gegn reykingum herjast, tækifæri til að koma fram sjónarmið- um sínum í þeim sömu þátt- um. Bæði i Bandaríkjunum og Kanada hafa verið gerðar fjölmargar góðar áróðurs- kvikmyndir gegn reyking- um. Nokkuð hefur þegar áunn- izt. í Bretlandi hefur sígar- ettureýkjurum fækkað um að minnsta kosti milljón, og í Bandarikjunum er meðal- sigarettuneyzlan á mann farin að minnka. En ennþá hefur ekki teldzt að draga að ráði úr manndauða þeim og heilsutjóni, sem leitt hef- ur af sígarettureykingunum. Greinilegt er að þörf er mildu meiri aðgerða gegn reykingunum, og ef við gæt- um komið fólki rækilega í skilning um mikilvægi þess að bægja frá okkur nikótín- voðanum, er ekki að vita nema þær aðgerðir yrðu skammt undnn. Ef hægt væri að koma i veg fyrir sigarettureykingar, myndi það vei-a mjög í hag 44 VIKAN 14-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.