Vikan


Vikan - 02.04.1970, Page 49

Vikan - 02.04.1970, Page 49
— Af því bara, sagði hún. — Þú ert of ungur. — Oooo .... — Benjamín, þú ættir að gera eitthvað annað fyrst. Áður en þú bindur þig ættirðu að gera eitt- hvað annað. — Eins og hvað? — Ég veit það ekki. í gær varstu að tala um að ferðast. — Mig langar ekki til Kanada. — Ekki endilega Kanada, sagði hún. — Það eru til fleiri staðir. — Jæja, eins og hvað? — Þú ættir að fara umhverfis hnöttinn. Sjáðu Afríku, Asíu og hinar heimsálfurnar. — Mig langar ekkert til að sjá hinar heimsálfurnar. — Heldurðu ekki að það væri spennandi? Sjá öll þessi stór- kostlegu lönd og fólkið sem byggir þau? Benjamín hristi höfuðið. — Þetta er fáránlegt, sagði hann. Af hverju byrjuðum við að tala um þetta? — Langar þig það ekki? —- Andskotinn hafi það, nei. — En ... hvers vegna ekki? — Af því mig langar það ekki! En mig langar að vita hvers vegna þú fórst að tala um þetta. — Ja, ég held bara að það sé tímasóun fyrir þig að sitja hér og gera ekki neitt. Ég held líka að það sé tímasóun að sitja ein- hversstaðar með mér og gera ekki neitt ef við giftum okkur. — Gott og vel, sagði hann. — Ennþá veit ég ekki hvað olli því að við fórum að tala um þetta, en ég ætla mér alls ekki að fara að þvælast i kringum hnöttinn og horfa á villimenn eða bændur — eða hvað það nú var sem þú varst að hugsa um. Ætlarðu að giftast mér eða ekki? — Ég veit það ekki. — Gefðu mér fleiri ástæður. — Ég hef ekki fleiri. — Þá skulum við gifta okkur. Hún leit niður fyrir sig og svaraði ekki. Benjamín tók hönd hennar. — Siáðu nú til, sagði hann. — Ég er búinn að reikna út hvernig við gerum þetta. Til að byrja með ... Elaine, hlustaðu á mig! Hún kinkaði kolli. — Jæia, sagði hann. — Við förum í fyrramálið og látum taka af okkur blóðprufu. — Benjamín, ég hef ... — Hlustaðu! Hún kinkaði kolli aftur. — Sko. Við förum í blóðprufu á morgun. Svo útvegum við okk- ur fæðingarvottorð. Ég er reynd- ar með mitt með mér... hvar er þitt? — Heima. — Hvar heima? — í kommóðuskúffu. — Hvaða kommóðu og hvaða skúffu? — Ha? — í hvaða skúffu? — I setustofunni. — Gott og vel, sagði Benja- mín. — Nú flýg ég þangað annað kvöld. — Þú hvað? sagði hún og leit upp. — Til að sækja það. — Þú ætlar að fljúga heim? — Já, ég fer inn um nóttina. — Þú ætlar að læðast inn til mín? — Já. — Elaine starði á hann. — Þetta er það asnalegasta sem ég hef heyrt! — Nú? Hvað er svona asna- legt? — Auðvitað hringi ég bara í pabba og hann sendir mér vott- orðið. — Nei. Við getum ekki látið þau vita fyrr en við erum gift. - Ó. — Og þá er allt í lagi. — En ég er ekki búin að ákveða mig ennþá. — Ég veit það, sagði hann. — En svona gerum við það. Hann stóð upp og gekk yfir að skápn- um til að þreifa á sokk sem hékk til þerris á húninum. — Þú hef- ur vonandi lykil að húsinu, sagði hann svo. — Benjamín? — Já? Hún sneri sér í stólnum og horfði á hann. — Hefurðu nokkra hugmynd um hvað þú ert að gera? — Auðvitað. — Ég meina... þú ert að hugsa um að fljúga heim og læð- ast inn til mín um miðja nótt til að ná í fæðingarvottorðið mitt, en hefur þú hugsað um það sem á eftir kemur? — Vissulega. — Hefurðu hugsað um það að við þurfum einhvern samastað og að við þurfum að kaupa í matinn á hverjum degi? — Jamm. — Nei, þú hefur nefnilega ekki hugsað um, hvaða tegund af „corn flakes“ við eigum að kaupa en... — Af hverju ekki? — Hvað? — Ég meina að það er einmitt það sem maður verður að hugsa um, Benjamín, og ég held að þú verðir orðinn dauðleiður á því eftir tvo daga. — Ja, ég verð ekki leiður á þér, eða hvað? Hún stóð upp. — Jú, sehni- lega verður þú það. — Láttu ekki svona. Elaine. — Ég er ekki eins og þú held- ur, Benjamín. — Um hvað ertu að tala? — Ég er bara ósköp venjuleg manneskja, sagði hún. — Ég er hvorki gáfuð né glæsileg. — Og hvað með það? — Ég held að þú ættir betur samleið með einhverri svoleiðis. — Nei. — Viltu heldur vera með ein- hverri sem er heimsk og hallær- isleg? BIBLÍAN - RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóðaútgáfu og bezta ferm- ingargjöfin sem völ er á. Hér er um að ræða nýstár- lega túlkun á heilagri ritningu, sem fellur ungu fólki vel i geð. Myndirnar, sem danska listakonan Bierte Dietz hefur gert, eru litprentaðar í Hollandi, en textinn er prentaður hérlendis. Magnús Már Lárusson, háskólarektor, hefur annazt útgáfuna og rit- ar inngang og ágrip af sögu íslenzkra Biblluþýðinga frá upphafi. Þetta er vönduð og glæsileg mynda- bók. sem hentar sérstaklega vel til fermingargjafa. Fæst hjá næsta bóksala HILMIR HF. SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK BIBLÍAN RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA TILVALIN FERMINGARGJÖF H. tw. VIKAN 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.