Vikan


Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 50

Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 50
— Já. — En hvað um börnin? — Já, hvað með þau? — Langar þig nokkuð í börn? Mig langar í börn, Benjamín. — Mig sömuleiðis. — Láttu ekki svona. — Hvað? — Hvernig gæti maður eins og þú viljað eignast börn? — En það er nú svoleiðis. — Nei, það er ekki svoleiðis, Benjamín. — Djöfullinn hafi það, Elaine! sagði hann ergilegur. — Breyt- um um umræðuefni. — Eitt enn, sagði Elaine. — Þú ert snillingur í kollinum. Benjamín sleit sokkinn af hurðarhúninum og snarsneri sér við. — Elaine? — Og ég er það ekki, sagði hún. — Elaine? — Þú ert ákaflega vel gefinn, Benjamín, og þú ættir að giftast einhverri sem er á sama stigi og þú. — Fjandinn hafi það! hrópaði hann og skellti sér niður í stólinn aftur. — Hlustaðu nú á mig, Elaine! — Þú ættir að giftast einhverri sem er fær um að ræða stjórnmál og sögu og listir á málefnalegan hátt. — Þegiðu! Hann benti á sjálf- an sig. — Hefurðu nokkurn tíma heyrt mig tala um þetta? Ekki svo mikið sem einu sinni! Hef- urðu nokkru sinni heyrt mig tala um þetta? — Þessa „þvælu“? — Já. — Nei. — Allt f lagi þá, sagði hann. Benjamín stóð upp og hristi höf- uðið. — Drottinn minn dýri! Hann tók sokkinn uPP og setti hann aftur á hurðarhúninn. — Jæja, sagði hann svo, — ætlarðu að giftast mér eða ekki? Hún hristi höfuðið. Benjamín gekk yfir að rúminu sínu og lét sig falla á bakið ofan á skyrtuna og buxurnar sem lágu þar til þerris. — Gefðu mér fleiri ástæður, sagði hann og starði upp í loftið. — Hvað um skólann? — Já, hvað með það? — Ég vildi gjarnan ljúka námi. — Nú, hver er að stöðva þig í því? — Ja, pabbi verður kannske ekki til í að borga gjöldin fyrir mig ef við giftumst. — Hann þarf ekki að borga fyrir þig, sagði Benjamín og sett- ist upp í rúminu. — Ég borga. — Með hvaða peningum? Þeim sem þú fékkst fyrir bílinn? — Sjáðu nú til, sagði Benja- mín og settist við hlið hennar. — Á morgun eða hinn giftum við okkur... eða um leið og ég er búinn að ná í fæðingarvott- orðið. Svo fer ég að vinna við kennslu. — Hérna! Guð minn almátt- Krommenie Vinyl gólfdúkur og vinyl fllsar með áföstu filti eða asbest undirlagi. Mýkri, áferðarfallegri, léttari I þrifum, endingarbetri. KYNNIÐ YÐUR ÞAÐ BEZTA Krommenie Gólfefni KLÆÐNING H.F., Laugavegi 164 LITAVER S.F., Grensásvegi 24 MALARINN H.F., Bankastræti. Grensásvegi 11 VEGGFÓÐRARINN H.F., Hverfisgötu 34 ugur, hérna! sagði hann og benti á gólfið. — Hérna við háskólann. — Þú ætlar bara að labba þig inn og fá þér vinnu? — Já. Ég verð aðstoðarpró- fessor, og vinn að meistaragráðu um leið. — Af hverju heldurðu að þeir taki þig? spurði hún. — Ég gæti verið búinn að fá vinnu hér eftir 10 mínútur. — Það held ég ekki, Benjamín. — Jú. — Hvernig? — Hvernig? endurtók hann. Verkir, þreyta í baki ? DOSI beltin hafa aytf þrautum margra, Reynið þau. ReMEDIA H.F LAUFÁSVEGI 12 - Síml lSSlö — Vegna þess að mér hefur verið boðið að koma til bæði Harvard og Yale. Hann hallaði sér áfram í stólnum. — Elaine, ég hef feng- ið boð frá skólunum á austur- ströndinni um að koma og kenna. Á austurströndinni, Elaine. Og það ætti að vera nóg sönnun fyr- ir því að þeir hérna grípa mig fegins hendi innan fimm mín- útna. (Háskólar á austurströnd Bandaríkjanna hafa löngun þótt mun betri en þeir á vesturströnd- inni. þýð.). — En ég hélt að þú vildir ekki verða kennari? — Hvers vegna skyldi ég ekki vilja það? — Vegna þess að þú ert ekki eins og kennarar eiga að vera, sagði hún. — Kennarar eiga að vera háfleygir. — Þetta eru bara gamlar kerl- ingabækur, sagði hann og hristi höfuðið. — Nú? — Jæja, sagði hann og tók hönd hennar, — þá giftumst við? — En Benjamín? — Já, hvað? — Ég fæ ekki séð hvers vegna þú laðast svona að mér. — Ég geri það bara. — En ... hvers vegna? — Af því bara. Þú ert þokka- lega vel gefin. Þú ert gullfalleg. — Gullfalleg? — Já. — Eyrun á mér eru of stór til að vera gullfalleg. Benjamín skoðaði á henni eyr- un. — Það er allt í lagi með þau, sagði hann svo. — En ... Benjamín ... — Hvað? — Það er samt ýmislegt sem ég skil ekki. — Eins og hvað? — Ég meina... þú ert raun- verulega snillingur. — Elaine, ekki byrja á þessu aftur. Ég meina það. Hún kinkaði kolli. — Jæja, sagði hann, þá ætl- um við að giftast... eða hvað! — Hvers vegna dregur þú mig ekki með þér fyrst þú ert svona æstur í að giftast mér? — Draga þig með mér? Hún kinkaði kolli. — Allt í lagi, sagði hann, — þá geri ég það, þegar við erum búin að fara í blóðprufu. Þau sátu og horfðu á hvort annað um stund en svo kinkaði hann kolli. — Jæja, blóðprufa í fyrramálið. Hvenær viltu fara? — Fara hvert? — Niður á spítala, sagði hann. — Verðurðu í skólanum klukkan tíu? — Nei. — Allt í lagi. Þá verð ég fyrir utan skólann klukkan tíu. — Ég verð að tala fyrst við Carl. — Hvern? — Þann sem þú hittir í dýra- garðinum, Carl Smith. — Nú, hvað kemur honum þetta við? — Ég sagði honum að ég myndi kannske giftast honum. — Þú hvað? sagði Benjamín og stóð upp. — Hann bað mín, sagði Elaine, — og ég sagði að ég myndi ef til vill giftast honum. — Elaine ... — Hvað? — Af hverju í andskotanum sagðir þú mér þetta ekki? — Þér kemur þetta ekkert við. — Kemur ekki við? — Nei. — Drottinn minn dýri, Elaine. Hann settist aftur. — Hversu margir hafa gert þetta? — Beðið mín? — Já. — Ég veit það ekki. — Þú meinar að fleiri en hann hafa beðið þín? Hún kinkaði kolli. — Hve margir? — Ég veit það ekki, Benjamín. — Viltu reyna að muna það? Sex? Siö? Hún kinkaði kolli aftur. — Ert þú að gera grín að mér? — Nei. — Þú meinar að sex eða sjö menn hafa beðið þig að giftast sér? — Benjamín, sagði hún, — ég held ekki að þér komi þetta nokkuð við! — Hvenær gerði hann það? — Hvað? — Carl. Hvenær bað hann þín? — Síðast þegar ég sá hann. — Daginn sem ég hitti hann. Þarna í dýragarðinum? — Benjamín, hvers vegna ertu svona æstur? — Hvernig gerði hann það? — Hvað? — Fór hann á hnén? Nei, hann hefur ekki kropið ... vona ég? — Nei, Beniamín. — Jæia, hvað sagði hann. Sagði hann bara: „Viltu giftast mér, Elaine?“ — Hvað er eiginlega að þér? — Ég er forvitinn. Hún starði á hann og hristi höfuðið. — Hann sagðist halda að við yrðum nokkuð góð saman í kompaníi. — Ónei! — Hvað? — Sagði hann þetta. — Já. hann sagði þetta. — ..Við yrðum nokkuð gott kompaní" — hann ... — Beniamín, hvað er að þér? — Hvað er hann? spurði Beniamín. — stúdent? — Já. hann er í læknisfræði. — Á hvaða ári? — Síðasta. Beniamín kinkaði kolli. — Og hvar bað hann þín? í bílnum eða í matarboði? Elaine stóð upp. — Þetta kem- ur þér ekkert við, sagði hún. — Hvar bað hann þín? — f íbúðinni sinni. Framhald í næsta blaði. 50 VIKAN “• «■

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.