Vikan


Vikan - 14.05.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 14.05.1970, Blaðsíða 49
STJORNIISPA^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ferð 1 ferðalag sem stendur í sambandi við at- vinnu þína. Þú ert mjög heppinn með samstarfs- mann í þessu verkefni, en þér hættir til að vilja gera allt sjálfur og treysta sem fæstum fyrir neinu. Nautsmerkið (21. apríi — 21. maí): Þú móðgar vinnufélaga þinn með því að ganga fram- hjá honum. Það er ekki vinsælt að viðhafa þær að- ferðir sem þú hefur. Kunningi þinn fer í utanlands- ferð og gerir góða verzlun fyrir þig. Tvfburamerkið (22. maí — 21. júnl): Sýndu meiri lipurð í umgengni við nábýlisfólk þitt. Þú átt marga góða granna sem eiga ekki skilið drembni þína. Þú færð óvænta og góöa hjálp frá pérsónu sem þú hafðir alls ekki reiknað með. Krabbamerkið (22. júní — 23. júl(): Margt fer öðruvísi en ætlað er, þú verður að breyta þínum persónulegu framkvæmdum, bæði að seinka þeim og breyta um starfsaðferðir. Maður nokkur sem þú hefur í vinnu, bregzt þér algjörlega. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Verkefni sem þú gazt ekki annað í síðustu viku verður nú mjög aðkallandi. Þú gerir eldri manni greiða og eyðir miklu af frítíma þínum i félagsskap hans. Kunningi þinn er mikið veikur. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Fávísi félaga þíns og þekkingarleysi á verkefnum sem þér liggja í augum uppi, koma þér rækilega á óvart. Maður nokkur sem vinnur baki brotnu við störf sín, gerir þér mjög góðan greiða. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð hvíld um stundarsakir frá hlutiun sem þú ert orðinn mjög leiður á. Þú kemst að góðu sam- komulagi við aðila sem þú átt viðskipti við. Trass- aðu ekki lengur ákveðna samningsgerð. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Vegna kæruleysis nábýlismanna þinna geturðu gert þá réttlausa i vissu tilliti. Þú kemst að stórfelld- um svikum félaga þíns og liður illa út af öllu sam- an. Heiliatala er fimm. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú kemst á snoðir um leyndarmál sem þú skalt með engu móti ljóstra upp um, þótt lagðar verði fyrir þig gildrur. Þú ert ekki vel upplagður til neinna stórræða og ættir að eyða frítímum þínum rólega. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú ert nokkuð veikur fyrir tilboði sem þér berst en gættu vel að. Það eru ótraustir punktar í áætlun- inni sem ekki er víst að þú myndir sætta þig við að misfærust. Laugardagskvöldið verður fjörugt. AJfi Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Orðrómur um vissa persónu kemur þér á óvart, en ef þú skyggnist dýpra skilurðu hvernig í öllu ligg- ur. Persóna sem þú hefur hingað til ekki metið mik- ils sýnir nú á sér nýja hlið sem þú fellur fyrir.’ Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Velviljuð persóna léttir verulega undir með þér við störf sem þú ert ekki vaxinn. Þú lítilsvirðir eldri mann sem þú hefur nokkra umsjón með og ættir að sýna meiri sóma. Römantískt föstudagskvöld. ||P Mijfp?; i-UkSK • .V. y •• '.•//•'/ >%&///f//Z/fm '!iÍJj!Íj!Íí;:iÍi}í'/Á WHiSm mm§. Þér soariO meO áskrift UIKAN Skipholti 33 - sími 35320 20. tw. VIICAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.