Vikan - 20.08.1970, Qupperneq 3
34. tölublað - 20. ágúst 1970 - 32. árgangur
„Ég varð gripinn heimskulegri, ástríðu-
þrunginni ást til hennar. Hin ólýsanlega dulúð,
sem umlukti hana, æsti forvitni mína
eins og áfengt vin. Ég bað hana leyfis að
mega koma í heimsókn til hennar.
Hún hikaði snöggvast við, en
sagði síðan: — Á morgun, þegar klukkuna
vantar fimmtán mínútur í fimm . . ."
Þetta er brot úr smásögu eftir Oscar Wilde,
sem er í þessari Viku,
Sýningarflokkur Þjóðdansafélags Reykjavikur
lagði land undir fót nú i sumar og
ferðaðist víða um Evrópu. Í upphafi
ferðalagsins tók flokkurinn þátt í samnor-
rænu þjóðdansamóti í Stokkhólmi.
I þessu blaði birtum við myndir af
íslenzkum þjóðdönsurum i trjágarði
konungsins í höfuðborg Svíaveldis. Myndirnar
voru teknar af Sigurgeiri Sigurjónssyni,
sem stundar nú nám í Stokkhólmi.
Það munaði ekki miklu að Mia Farrow
kæmi til íslands á Listahátíðina í
sumar i fylgd með hljómsveitarstjóranum
André Prévin. í þessu blaði birtist
ítarleg grein um Miu Farrow með fyrir-
sögninni „Flagð undir fögru skinni".
í næsta blaði verða einnig myndir af
börnum sem eru við nám í
Höfðaskóla i Reykjavik. Myndunum fylgir
viðtal við skólastjórann, Magnús Magnússon.
í ÞESSARI VIKU
í NÆSTU VIKU
Einn af kunnustu mönnum aldarinnar og
þekktustu og umdeildustu læknum
allra tíma er svissneski prófessorinn
Paul Niehans, „yngingardoktorinn" svokallaði,
sem meðhöndlaði Píus páfa tólfta,
Winston Churchill og ótal aðrar frægustu
manneskjur. /Etterni hans hefur
lengi verið mikill leyndardómur, en nú hefur
hann loksins látið það uppi . . .
Nýjungar i sambandi við frjósemi
og timgun mannkindarinnar eru sifellt að
skjóta upp kollinum og í Indlandi hefur
nýlega i fyrsta sinn tekist að flytja eggjastokka
úr einni konu í aðra. Um þetta og
fleira því líkt er fjallað í næstu Viku i
viðtali við norskan lækni og
kvensjúkdómafræðing, dr. Arne Strand.
FORSfÐAN Forsíðumynd þessa blaðs er af þeirri frægu manneskju Miu Farrow,
fylgikonu André Previns hljómsveitarstjóra. Grein um hana er inni í blaðinu.
í FULLRI ALVÖRU
HIN DANSK-AMERÍSKA
KEFLAVÍK
Oft er deilt á íslensk blöð fyrir að þau sjái les-
endum sinum fyrir ónógum og jafnvel villandi
upplýsingum, og þarf varla nokkurn að undra
að þannig sé farið blöðum, sem ýmist opinber-
lega eða í reynd eru rekin af stjórnmálaflokkum,
er líta á blöðin fremur sem áróðurstæki en
fréttamiðla. En víðar er pottur brotinn, mikil
ósköp, meira að segja þar sem síst skyldi.
Það sem af er þessu ári hafa óvenjumargir
atburðir orðið til að vekja athygli umheimsins á
íslandi, og ætti varla að þurfa að minna á þá
suma. Sá síðasti var hvarf sovésku risaflugvélar-
innar á ieið til Perú með hjálparvarning, en talið
er að, hún hafi steypst i sjó skömmu eftir að hún
tók sig upp frá Keflavík. Rússar eru sem kunnugt
er á Vesturlöndum álitnir heldur vafasamir menn,
enda hefur sjaldan staðið á þeim að gefa ástæð-
ur til viðhalds þeim orðstír. Nú er hermt að þeir
noti hjálparflug sitt til Perú sem átyllu til að
spíónera á Keflavíkurflugvelii og viðar.
Hið stórvirðulega bandaríska vikurit Time er
eitt þeirra blaða sem lætur í Ijós grunsemdir um
þetta. Það er út af fyrir sig ekki merkilegt, en
islenskir lesendur ritsins munu hinsvegar hafa
hrokkið við er þeir sáu að i fréttinni er talað
um Keflavikurflugvöll sem „jointly operated US-
Danish airfield", bandarisk-danskan flugvöll, rek-
inn í félagi af báðum þessum þjóðum.
Nú hefði verið ástæðulaust að hneykslast ef
þetta hefði staðið í einhverju hreppablaði út-
gefnu vestur í Texas eða Montana, en til tímarits,
sem lesið er af upplýstasta hluta bandarísku þjóð-
arinnar og tekið alvarlega víðast hvar utan Banda-
rikjanna, verður að gera þær kröfur að það byggi
fróðleik sinn um hvert ríki heims á ein-
hverju öðru en heimildum frá því fyrir 1918.
Jafnframt er eðlilegt að ætlast til þess af íslenzk-
um lesendum blaðsins, sem til þessa hafa verið
margir, að þeir taki varlega mark á því meðan
ritstjórn þess er ekki betur upplýst um Island en
svo að hún telur það ennþá danska nýlendu. Til
annars ættum við að mega ætlast af Bandaríkj-
unum, eins þjálir fylgifiskar þeirra á alþjóðavett-
vangi og við höfum verið í aldarfjórðung. Eða
skyldum við þurfa að vekja á okkur athygli með
eitthvað svipuðum hætti og Kúbumenn, önnur
smáþjóð við Atlantshaf, hafa verið að gera stð-
ustu árin, til að þeir sem valdið hafa í forustu-
stórveldi Vesturlanda nenni að muna eftir að við
séum til? dþ.
VIKAN Útgefandl: Hllmir hf. Ritstjóri: Gylfl
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorlelfsson, Matthlldur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Slgriöur Ól-
afsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð i lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475
kr. fyrir 13 tölublöö ársfjóröungslega, 900 kr. fyrlr
26 tölublöð misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist
fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, mai og ágúst.
34. tbi. VlKlAN 3