Vikan - 20.08.1970, Blaðsíða 7
lielzt marka að galdrar væru nú
útdauðir á þessu landi dultrúar-
innar. Bréf ykkar, þitt og þessa
göldrótta um daginn, benda
heldur til að svo sé ekki.
Skriftin er mjög fín og pen og
gefur til kynna næmt tilfinninga-
líf.
Enn um umskurn í USA
Reykjavík, 24. júlí 1970.
Kæri Póstur!
í sambandi við svar yðar til
„einnar sem á sveinbarn“, fyrir
nokkrum vikum, vil ég taka það
fram að hún hefur rétt fyrir sér,
það er algjör undantekning ef
sveinbörn í Bandaríkjunum eru
ekki umskorin og er það gert
vegna þrifnaðar, hins vegar er
það rétt hjá Póstinum að Gyð-
ingar eru þeir einu sem ég veit
um, sem láta umskera syni sína
vegna trúar.
Um að hið fyrrnefnda geti
valdið krabbameini veit ég ekki.
Önnur sem á sveinbarn.
Alve? ofsalega hrifin
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áð-
ur og vonast þess vegna eftir
góðu svari. Þannig er mál með
vexti að ég er ofsalega hrifin af
strák, sem á heima í Reykjavík.
Ég veit hvað hann heitir og í
hvaða götu hann á heima en ekki
götunúmerið. Hvernig get ég náð
sambandi við hann? Getur þú
komizt að því, ef svo er segðu
mér það, því þá skrifa ég þér
aftur og segi þér nafn hans. —
Hvernig eiga saman dreki og
krabbi eða hvaða makar eiga
bezt við kvendreka?
Svo þakka ég þér fyrir.
Milla.
Skelfileg ráfa geturðu verið,
manneskja, fyrst þú veizt hvað
hann heitir og í hvaða götu hann
á heima, þá má mikið vera ef
þú getur ekki náð því sem á
vantar. Ólíkt er til dæmis ann-
að en þið eigið einhverja sam-
eiginlega kunningja, sem gætu
frætt þig um þetta. Nú, og ef
svo færi að þú næðir tali af
drengnum, þá væri engin goð-
gá að spyrja hann að því sjálf.
Krabbi og sporðdreki eru báð-
ir mjög tilfinningaríkir og eiga
því yfirleitt frekar vel saman.
Samband þeirra verður oft inni-
legt og traust, en ekki sársauka-
laust.
„Varaðu þig þegar ég elska!“
sagði Carmen við Don José. —
Sumir segja að þetta geti verið
kjörorð fyrir kvendreka al-
mennt; þær séu að vísu oft stór-
fenglegar ástmeyjar, en jafn-
framt í háskalegra lagi. Drekum
kvað heppilegast að leita sér
maka í fiskamerki, en þvínæst í
krabba, tvíbura, jómfrú og stein-
bukk.
Vantreystir
skoðanakönnunum
Heiðraði Póstur!
Ég er að heita má fastalesandi
Vikunnar og finn oftast í henni
eitthvað efni mér til fróðleiks
og ánægju. En fyrir kemur að
mér gremst hitt og þetta, og er
ég þó heldur umburðarlyndur.
En það var skoðanakönnunin
hjá ykkur um daginn, sem ég
ætlaði að minnast dálítið á.
Þessar skoðanakannanir virð-
ast vera eitt af mörgum tízku-
fyrirbærum nútímans, sem fara
eins og logar yfir akur svo úr
verður eins konar æði. Hins
vegar hefur margsýnt sig að
mjög hæpið er að taka mikið
mark á þeim. Frægasta og nýj-
asta dæmið urri það er frá Bret-
landi, er Wilson treysti einni
skoðanakönnun eins og nýju
neti og kollsteyptist. Vísir hefur
einnig verið með skoðanakann-
anir, en sýnt hefur verið fram á
það með gildum rökum, meðal
annars í blaði sem er sama
flokks og Vísir, að hæpið er að
taka á þeim mikið mark.
Án þess að mig langi til að
móðga Vikuna er ég hræddur
um að eitthvað svipað sé uppi á
teningnum með hennar skoð-
anakönnun. Svörin við einni
spurningunni virtust þannig
benda til að æskan hefði að
miklum meirihluta vantraust á
stjórnendum landsins. Hvernig
má það vera að þessir sömu
valdhafar eru kosnir í lýðræðis-
legum kosningum? Þeir eru að
vísu kosnir af fólki, sem flest
er eldra en það sem spurt var,
en það er þó af sömu þjóð og
miðlar skoðunum sínum til
yngri kynslóðarinnar. Það er
því hætt við að æskufólk það
sem var svona gagnrýnið á vald-
hafana verði flest búið að breyta
afstöðu sinni, þegar það er kom-
ið á kosningaaldur, ef það hefur
þá ekki langflest svarað bara
upp á grín, sem mér finnst lang-
Hklegast.
Hræddur er ég um — eða rétt-
rra saet ég vona — að svipað
eigi við um svörin við mörgum
fleiri spurninganna, en eftir
svörunum við nokkrum þeirra
að dæma mætti ætla að megin-
hluti æskunnar væri hundheið-
inn. Vonandi er ekki svo illa
komið. Ef æskan er búin að
kasta frá sér kristninni, sem hef-
ur verið menningarleg kjölfesta
þjóðarinnar í næstum þúsund ár.
hvers má þá vænta af þessari
æsku, þegar völdin og áhrifin í
bjóðfélaeinu verða hennar? Nei,
hvað skoðanakannanir snertir,
Vika sæl. þá held ég þú meair
læra betur, ekki síður en Vísir
og Bretinn .
Með fyrirfram þökk fyrir
birtingu. Þinn S.K.
ARO-LADY
brjósta-
stækkunartækið
ásamt fullkomnum nuddáhöldum
ARO-LADY gefur brjóstum yðar
nýjan lífsþrótt og er einstaklega
áhrifamikið fyrir lítil og slök
brjóst.
Hinn einstæði fíngerði útbúnaður
ARO-LADY tækjanna gerir yður
kleift að nota þau hvar og hvenær
sem er, enda eru þau knúin raf-
hlöðum og tryggja þess vegna
áhættulausa og þægilega notkun.
ARO-LADY starfar sjálfvirkt að
fegurð yðar á meðan þér hvílist
frá önnum dagsins.
ARO-LADY sér ekki eingöngu um
velferð brjósa yðar, það hjálpar
yður einnig til að halda æskufeg-
urð, frískleika og reisn frá hvirfli
til ilja.
SKILATRYGGING
Skilyrðislaus trygging yður til
handa fylgir kaupunum á ARO-
LADY tækjunum þ. e. a. s. ef þér
teljið að tækin standist ekki aug-
lýst notkunargildi, þá mun Heima-
val endurgreiða yður tækin um-
yrðalaust, innan 14 daga eftir að
þér móttakið þau.
PÓSTLEGGIÐ AFKLIPPINGINN
Látið ekki hjá líða að klippa út af-
klippinginn hér að neðan og senda
hann til HEIMAVALS og munum
við senda yður um hæl nánari
upplýsingar um ARO-LADY í
venjulegu sendibréfi um leið og
hann berst okkur í hendur.
KLIPPIÐ HÉR
_
Vinsamlegast sendið mér nánari upplýsingar um ARO-LADY-brjóst-
stækkunar- og nuddtækin mér að kostnaðarlausu og án skuldbindingar
frá minni hálfu.
Nafn: ...................................
Heimilisfang: ...........................
Skrifiö með prentstöfum
HEIMAVAL KÓPAVOGI
34. tbi. VIKAN 7