Vikan


Vikan - 20.08.1970, Blaðsíða 26

Vikan - 20.08.1970, Blaðsíða 26
Eftir vígsluna í Las Vegas árið 1966. Allt gekk vel í byrjun cn hjónabandið var mishcppnað frá upphafi til cnda. MIA FARROW hvaða hátt sem er, það er og verður hreint efni, beint úr nátt- úrunni. En önnur efni, eins og til dæmis LSD, eru hættuleg, því maðurinn bjó þau til í ófull- komleika sínum. Mia Farrow er margbrotin persónuleiki sem margir hafa burðast við að lýsa, en það sem sennilega lýsir henni bezt, eru þessi orð sem hún sagði sjálf: Ég er eins og kviksjá. í hvert skipti sem ég lít í spegil, sé ég nýja manneskju. Hún fæddist inn í Hollywood „establishmentið“, sem hún gef- ur nú dauðann og djöfulinn í, og hún fékk allt sem peningar gátu veitt henni. En meðal þess sem þeir gátu ekki gefið henni var hrein og tær bernska, eins og flest fólk, allavega á þessum hluta jarðar, þekkir. Eins og góð vinkona hennar, Liza Minelli (dóttir söngkonunnar Judy Gar- land), ólst Mia upp í köldum og miskunnarlausum heimi skemmtanaiðnaðarins. Faðir hennar, leikarinn og leikstjórinn John Farrow, var heittrúaður kaþólikki - þegar hann var heima. Þegar hann var einhvers staðar annars staðar var hann aftur á móti hinn mesti kvennabósi og flagari, og reglan var sú að sögurnar af honum náðu heim á undan honum. John, sem fæddist í írlandi, kynntist móður Miu, Maureen O'Sullivan, þegar þau unnu bæði fyrir Met- ro Goldwyn Mayer. Hin fagra, svarthærða Maureen hélt frá Dyflinni til Hollywood aðeins 17 ára gömul, og hélt, eins og allir aðrir, að hún ætti fyrir sér mikla framtíð í kvikmyndum. En fljót- lega eftir að hún giftist Farrow árið 1936, hætti hún að leika í kvikmyndum —- án þess að verða nokkurn tíma sú stjarna sem búizt var við. Eina hlut- verkið sem hún lék, var Jane í nokkrum Tarzan-myndum. John Farrow þjónaði í hinum konunglega kanadíska flota (hann var ekki enn orðinn 26 VIKAN 34. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.