Vikan


Vikan - 01.07.1971, Blaðsíða 5

Vikan - 01.07.1971, Blaðsíða 5
höfðu símastrengir fyrir allt hverfið verið snyrtilega kubb- aðir í sundur. Púkinn tók að sprikla og dansa og hefur gert það síðan. Og er við öðru að búast? Svo að talað sé í fullri alvöru: Þetta hverfi var símasambands- laust alla helgina, frá því á laugardagsmorgni og þar til síðdegis á mánudag. Hvernig á því stendur hlýtur landssíminn okkar blessaður að geta útskýrt. Með beztu kveðjum og von um birtingu. Kærleiksríkur kjósandi í Túnunum. Þa8 verður mörgum hált á því aS huga ekki vel að fortíSinni, sem i þessu tilviki leynist i moldinni. ViS erum alveg sam- mála þessum „kærleiksríka kjósanda", sem ræSur ekki viS púkann í sér og tökum undir ummæli hans: Er viS öSru aS búast? í þjónustu lífsins Kæra Vika! Ég hef lengi ætlað að skrifa ykkur nokkrar línur og þakka ykkur fyrir gott efni í blaðinu. Það hefur verið gaman að fylgjast með breytingunum á blaðinu. Sérstaklega eru lit- myndirnar nú orðnar fallegar og standast að mínum dómi al- veg samanburð við prentun á erlendum blöðum. En fyrir minn smekk er of mikið af tízkumyndum og matarmyndum í lit hjá ykkur. Þetta er kannski ágætt fyrir kvenfólkið, en það verður líka að hugsa vel um vesalings karlpeninginn, þótt hann sé ekki hátt skrifaður á þessum síðustu og verstu rauð- sokkutímum. Hvers vegna birt- ið þið ekki fallegar myndir af íslenzku landslagi og náttúru- fegurð? Eða til dæmis myndir af dýrum og fuglum og þess háttar? Að síðustu langar mig til að þakka alveg sérstaklega fyrir greinaflokkinn ,,í þjónustu lífs- ins", þar sem sagt er frá af- reksmönnum á sviði læknavís- indanna. Þessar greinar hafa mér fundizt bæði fróðlegar og skemmtilegar. Þið skuluð birta meira af slíku efni. Með þökk fyrir birtinguna. Sv. B., Hafnarfirði. ViS þökkum kærlega fyrir þessi vingjarniegu orð. ViS reynum að gera öllum til hæfis, bæði körlum og konum. Tillagan um litmyndir af landslagi og dýr- um skal tekin til athugunar. Vill ráða yfir mér Kæri Póstur! Ég er í mjög miklum vanda stödd. Ég er með strák og er mjög hrifin af honum. En hann vill ráða alveg yfir mér. Ég má ekki fara út á kvöldin með vin- konu minni nema hann sé með. Um daginn fóru tvær stelpur I útilegu, og ég fór með þeim, án þess að tala við hann, en bað vin hans að segja honum það. Hann reiddist og fór á ball. Um nóttina kom hann með félögum sínum. Hann var að- eins „í því" og bað mig að fyrirgefa sér, og ég gerði það. En núna frétti ég, að hann hefði verið með annarri stelpu á ball- inu. Segðu mér nú eitt, elsku Póst- ur: Á ég að hætta við hann eða hætta að hugsa um þetta ball? Viltu svara mér og ekki snúa út úr fyrir mér Ég er alveg ofsa- lega hrifin af honum, og ég held, að hann sé hrifinn af mér. Með fyrirfram þökk. Ein ástfangin. ÞaS var ekki rétt af þér aS fara í útilegu meS vinkonum þínum, án þess aS láta hann vita af því. ÞaS er mjög niðrandi aS fá skilaboS um slíkt frá öSrum. ÞaS var því ekki nema eSlilegt, aS hann reiddist, færi á ball og væri eitthvaS meS annarri stelpu. ÞaS sýnir aSeins, hvaS hann er hrifinn af þér. — Þess vegna skaltu hætta aS hugsa um þetta ball. SAFARI-JAKKAR úr bláu denim (vinnu- fataefni), með hvitum saumum. Mjög nýtízku- legir, með fjórum stórum vösum, axla- spælum og belti. Jafnt á stúlkur sem pilta. Stærðir: 14, 16, 18, 48. Verð kr. 1.198,00 STUTTBUXUR úr bláu denim (vinnu- fataefni), með hvitum saumum og fjórum vösum. Stærðir: 8—48. Verð: Nr. 8—14 kr. 598 Verð: Nr. 16—48 kr. 648 • TÖSKUR úr rauðu krumplakki, þægilegar og fallegar. A. Með langri höldu, fyrir axlir, sem dregin er gegnum hringi. Verð kr. 398,00 B. Með venjulegri höldu og vasa. Verð . kr. 348,00 C. Með venjulegri höldu án vasa. Verð ... kr. 298,00 HARKAUP Sólbrnn án solbruna Jnhn lindsaChf. SÍMI 26400 26. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.