Vikan


Vikan - 01.07.1971, Side 37

Vikan - 01.07.1971, Side 37
LIMMITS MEGRUNARSÚPUR BAKAÐAR BAUNIR OG SPAGHETTI TILBÚIÐ A AUGNABLIKI BEINT Á DISKINN 1 DOS SAMSVARAR HEILLI MÁLTÍÐ Heildsölubirgöir: G. Ólafsson hf. Símar: 24418 og 19040 Kannski var það hægt þann- ig. Uhbera mismuninn. En það kætti hana ekki. Ekki heldnr hinn aðilann. Umbera. Fela sig betur í stað þess að gefa sig alla. Umburðarlyndi varð að kæruleysi. Hana verkjaði í magann. Hún hristi þessar andstyggðartil- finningar af sér og fór fram í eldhús. Það væri gott að eiga eitthvað til laugardagsins. Ætli Ragnar væri ekki svangur líka núna? Kaldir kjötsnúðar, rauð- rófur, smjör og brauð ... Á morgun var föstudagur. Þá komu krakkarnir heim um helgar. Per og Gunvi kæmu áreiðanlega með börnin.“ Það er gott fyrir krakkana að fá að hreyfa sig.“ Já, já. En hún vonaði nú samt, að þau kæmu ekki aðeins til þess. Það gat nú verið, að Agneta ætti að vinna um helgina? Hún hafði ekkert sagt um það, þegar þær ræddu saman síðast... Hér var eng- inn sími, þótt slæmt væri. Hún heyrði, að Ragnar slökkti á sjónvarpinu. Svo stóð hann í gættinni og teygði sig. Það var engu líkara en hann væri nývaknaður, hann var svo úfinn. „Gott, að fá eitthvað að boorða!“ Hann virtist hrifinn. Honum þótti gott að borða. En samt hafði hann ekkert fitnað. Hon- um hafði víst tekizt að vera unglegri en henni. Heldurðu, að Per komi á morgun?“ Nú losnaði um allt innra með henni. Nú sátu þau við sama borð og höfðu sömu á- hugamál og voru jafnundrandi bæði. Hún naut þessar stunda þeirra saman, því að. þá fannst henni, að hann stæði henni nær. Elsku, þrjóski Ragnar! Skyrt- an var opin í hálsinn og það sást í lokka á bringunni. „Þau koma áreiðanlega. Per fer ekki að vinna fyrr en á mánudag- inn.“ Ragnar. Eiginmaður hennar og faðir barnanna hennar. Ó- hamingja hennar og slæma samvizkan. Henni þótti nú samt vænt um hann! „Þú hefðir átt að koma í sund með mér,“ sagði hún. Þá leit han nallt í einu á hana. Horfði á hana. Og augu hans voru björt og ljómandi. „Að þú skulir hugsa svona Húrt, kerling. Þú ættir að skammast þín.“ Og hún roðnaði! Svei mér þá, hún roðnaði! Kerling! Fílaveigar... Framhald af bls. 28. gizka 60 cm hæð yfir andliti mannsins, sveiflandi ógnvekj- andi. Allt í einu var sem fót- urinn félli en enn hreyfði maðurinn sig ekki og fíllinn hætti við að sparka. Þess í stað reif hann upp grasvisk með rananum og slengdi því á höfuð mannsins. Fíllinn var ekki viss ennþá hvort þetta var í raun og veru manneskja sem var þarna við fætur hans. Og áður en varði hafði fíll- inn komizt að þeirri niðurstöðu að þetta væri mannkvikindi og fóturinn fór eldsnöggt nið- ur að andlitinu. Chandrasa var enn fljótari að snúa sér undan, svo fóturinn kom rétt aðeins við kinnina á honum, rétt eins og einhver hefði strokið honum í framan með grófum sandpappír. Fíllinn bjó sig undir að sparka aftur þeg- ar mjúkur dynkur heyrðist í nágrenninu. Það var Rao, sem hafði fall- ið niður úr trénu. Hann hafði skolfið svo ákaft af hræðslu þegar fíllinn reyndi að kremja höfuð félaga síns, að hann missti takið á greininni og féll til jarðar. Dýrið sneri sér við sem eld- ing, greip um líkamann sem lá á jörðinni með rananum og slengdi honum niður fyrir framan sig. Það eina sem heyrðist — og það var þó nokkuð -—■ voru neyðaróp Ra- os og illskulegt orgið í fíln- um. Chandrasa hélt fyrir eyr- un. Svo varð allt hljótt. Fíll- inn hafði kramið höfuð Raos undir fæti sér. Hann var lát- inn. Báðir villtu fílarnir komu nú auga á þann tamda sem fílaskyttan sat. Þeir óðu belj- andi að honum og hrætt dýrið flýði í angist. Skyttan féll af dýrinu og tróðst undir fílun- um tveimur, sem voru óðir af bræði, ótta og örvæntingu. Nokkrum tímum síðar fannst Chandrasa af leitarflokki sem hafði verið sendur út af örk- inni. Hann slapp með brotna öxl og hné — og alvarlegt lost. En veiðin hélt áfram, til heiðurs og gleði Hans hágöfgi, Shri Jayachamaraja Wadyar Bahadur, maharadja af My- sore. Og þeir 4000 menn sem stunda veiðarnar fyrir mahara- djann njóta þess líka, því þeir trúa á drottnara sinn — og fá 35 krónur á dag fyrir vikið. 26. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.