Vikan


Vikan - 22.07.1971, Page 4

Vikan - 22.07.1971, Page 4
I VIÐARÞILJUR í miklu úrvali. Viðartegundir: eik, askur, álmur, fura, vai- hnota, teak, caviana, palisander o. fl. HARÐVIÐUR og þilplötur, ýmsar tegundir. PLASTPLÖITJR, Thermopal, ýmsir litir. SPÓNN (eik, gullálmur, teak, valhnota). * Harðviöarsalan sf. Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670. RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. P0STURINN Veiztu svariö? Kæri Póstur! Nú ætla ég að spyrja þig nokk- urra spurninga sem ég vona að þú getir svarað. Þá byrja ég: 1. Er Keith Richard í Rolling Stones giftur og ef svo er, heitir konan hans þá Anita Pallenberg? 2. Ég las í Póstinum um daginn að spurt hefði verið hvort konur sem stunduðu ballet ættu ver með að eiga börnen aðrar. Þú sagðir að það væri hægt að lina vöðvana með afslöppun. Hvenær eiga þær sem eru í ballet þá að slappa af? Á eftir ballet tíma eða á meðan þær ganga með barn- ið? 3. Er fyrri kona Johns Lennon gift aftor? Viltu birta litmynd af John Lennon fyrir mig í einhverju af næstu blöðum. Kærar þakkir fyrir allt gamalt og gott. Ein sem kaupir alltaf VIKUNA. 1. Rétt. 2. Þær eiga að stunda þessar æfingar á meðan á með- göngutímanum stendur. 3. Cynthia Lennon mun ekki gift aftur, en hún á sér þó fast viðhaid. Við skulum at- huga þetta með myndina af henni og sömuleiðis með Lennon — ef við komumst yf- ir skemmtilega litmynd af honum. Arlo Guthrie Kæri Póstur! Þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Þú verður að gera þetta elskan, becosiemin' lov, darleng og það í Arlo Guthrie og það svakalega, ástin. Viltu birta fyr- ir mig heimilisfangið hans, því ég er svo in love í honum og í guðanna bænum ekki láta bréfið í rusladallinn hjá þér, þá dey ég nefnilega, veiztu það. Ég er svo ástfangin i honum. Ég keypti plötu með honum sem heitir Arlo Guthrie, Washington Couty. Ó, gerðu það fyrir mig ástin mín. Virðingarfyllst, Ein ástfangin. P.S. Bæ bæ. Hvað sérðu úr skriftinni? Alltaf er gaman að fá þjóðleg bréf frá þjóðlegum, ungum kon- um sem bera virðingu fyrir móð- urmálinu! Heimilisfangið hans höfum við ekki, en prufaðu að skrifa honum c/o plötufyrirtæk- ið hans; utanáskrif þess er á plötuumslaginu þínu. Úr skriftinni lesum við að þú skrópaðir alltaf í íslenzkutímum í skólanum — allt frá upphafi. Gular tennur Kæri Póstur! Þú hefur leyst úr svo mörgum vandamálum að nú ætla ég að biðja þig um liðsinni. Mitt vandamál er að ég hef svo hryllilega gular tennur. Hvernig á ég að losna við þetta lýti? Ég hef talað við tannlækninn minn út af þessu, en ekkert svar feng- ið. Ég hef reynt þau ráð sem mér hafa komið til hugar, en ekkert hefur hrifið. Gefðu mér nú gott ráð. Þakka allt gamalt og gott. Agnar Steinsson. P.S. Ég hef alltaf keypt Vikuna í lausasölu, en nú vil ég gerast áskrifandi. Hvernig fer ég að því? Sami. Byrjaðu á því að skipta um tann- lækni! Það getur ekki verið góð- ur tannlæknir sem engin svör gefur við svona spurningu. Að vísu höfum við ekki neina skyndilausn á þessum vanda, en Pósturinn man til þess að ætt- ingi hans át einu sinni kalktöfl- ur í langan tíma og fékk fyrir bragðið skínandi hvítar og fall- egar tennur. Eins höfum við heyrt þess dæmi að tannlæknar (almennilegir) hafi hreinsað tennur í fólki á sérstakan hátt og æfti það að vera hægt við þig eins og aðra. En Pósturinn hefur þó mesta trú á að bursta tenn- urnar kvölds og morgna; þannig losnar maður líka við tannlækn- inn. 4 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.