Vikan


Vikan - 22.07.1971, Side 37

Vikan - 22.07.1971, Side 37
UTl&INNI Á nýja ibúð: 2 umferðir HðRPUSILKI UNDIRMÁLNING 1 umferð HÖRPUSILKI og þér fáið ekki ódýrari málningu! Hörpusilki Herðir á ganga og barnaherbergi HÖRPU FESTIR Úti HBRPB Hl. m S/ senda eftir myndum af stúlku, sem hann hafði séð myndir af á forsíðum fimm tímarita.“ Sú stúlka var Marilyn Mon- roe, eða Norma Jeane Doug- herty. Fljótlega eftir það fann ráðningastjóri Hughes síma- númer Normu Jeane og hafði samband við hana; sagði henni, að Howard Hughes vildi hitta hana. En eitthvað kom í veg fyrir að svo yrði, svo að í staðinn fór Norma Jeane ásamt náunga að nafni Harry Lipton yfir í Fox- stúdíóin, en Lipton þessi var eins konar umboðsmaður Normu Jeane um það leyti og átti síðar eftir að koma mjög við sögu hennar. Lipton hafði komizt að þeirri niðurstöðu, að 20th Century- Fox væri betra takmark en RKO-Radio Pictures, sem Hughes átti, þar sem 20th var á höttunum eftir nýrri, ungri leikkonu, sem gæti tekið við af skærustu stjörnum fyrirtækis- ins, þegar þær væru búnar að syngja sitt síðasta, og það virt- ist sem slík örlög væru ekki langt undan. Á meðal þessara stjarna var Betty Grable. Lipton kynnti Normu Jeane fyrir Ivan Khan, sem þá var yfirmaður hæfileikadeildar fyr- irtækisins, og Kahn sendi hana áfram til Ben’s Lyon, sem var hæfileikaspæjari 20th Century Fox. Um leið og Norma Jeane Dougherty gekk inn í skrifstofu Lyons, sá hún á andliti hans, að honum líkaði það sem hann sá. Lyon útvegaði henni reynslukvikmyndatöku og nokkrum dögum síðar kom hún aftur í stúdíóið, skjálfandi af taugaóstyrk. Hún kom sem af fjöllum og var hálf hrædd við þetta allt saman. Hún hafði ekki minnstu hugmynd um, hvað hún átti að gera og ekki dró það úr óstyrk hennar, að henni var sagt að prófraun ætti að fara fram á sviði, sem var útbúið fyrir „Mother Wore Tights“, kvik- mynd sem engin önnur en sjálf Betty Grable lék aðalhlutverk- ið í. Lyon var sjálfur viðstaddur og sagði Normu Jeane að fara I níðþröngan, kynþokkafullan kjól, sem var sendur frá bún- ingadeildinni. Þegar Norma Jeane gekk inn á sviðið, gat Lyon — sem hafði séð heilar þyrpingar af stjörn- um verða til; leikkonur eins og Jean Harlow, Clara Bow og Betty Grable — ekki komizt hjá því að fá gæsahúð. Hann horfði dáleiddur á Normu Jeane ganga yfir sviðið, hægt og dill- andi og hans reynda auga sagði honum þegar í stað hvaða hlut- verk þessi nýja uppgötvun hans ætti að leika í prófuninni. „Allt og sumt sem þú átt að gera,“ sagði hann við Normu Jeane, sem var orðin dauð- hrædd, „er að ganga yfir sviðið, setjast í sófann, taka upp sígar- ettu og kveikja í henni. Síðan skaltu drepa í henni í ösku- bakkanum, standa upp og ganga í áttina að myndavélinni, snúa þér við, ganga yfir að gluggan- um þarna, horfa út og koma svo aftur hingað og ganga út af sviðinu." Þegar þessu var lokið, skipaði Lyon svo fyrir, að filman skyldi þegar í stað framkölluð. Siðar, þegar hann skoðaði hana, varð hann þess fullviss, að hans fyrstu áhrif af Normu Jeane voru fyRilega réttlætanleg. Myndin á tjaldinu sýndi það, svo ekki var um að villast. Myndatökumaðurinn, Leon Shamroy, deildi ákafa hans og hrópaði til Lyon’s: „Þessi stúlka verður stórstjarna einhvern daginn. Náttúruleg fegurð hennar og minnimáttarkennd gefa henni einhvers konar dul- arfullt útlit. Maður sér ekki svona stúlkur nema örsjaldan." Nokkrum dögum síðar hringdi Harry Lipton í Norpiu Jeane og sagði henni fréttirnar: „Það lítur út fyrir, að þú hafir náð takmarkinu, ljúfan. Þeir vilja, að þú komir hingað og skrifir undir samning.“ Norma Jeane kyssti simann af ánægju. Hún fór til Liptons og saman fóru þau til að hitta Lyon á skrifstofu hans. „Herra Zanuck hefur fyrirskipað, að þú skulir sett á samning," sagði Lyon. Maðurinn sem hann átti við var Darryl F. Zannuck, forstjóri Fox. Svo dró Lyon upp samn- inginn. En það var ekki hið eina, sem Lyon vildi ræða við Normu Je- ane. Það var eitt enn. Nafn. Þeim líkaði ekki Norma Jeane Dougherty, það yrði of langt á auglýsingum. „Eru einhver fjölskýldnöfn sem þér þykir sérstaklega vænt um?“ spurðu þeir. „Ja,“ svaraði Norma Jeane, „móðir mín var fædd Monroe og mér hefur alltaf þótt vænt um það. Auk þess er ég komin af Monroe forseta." „Allt í lagi,“ sagði Lyon. „Monroe skal það vera. Það var nógu gott. á forseta, svo að það. er nógu gott handa okkur. Nú vantar okkur fornafn. Þú ert furðulegt sambland af tveimur persónum, sem ég þekkti vel — Jean Harlow og Marilyn Miller. Marilyn hljómar betur með Monroe en Jean. Svona höfum við það þá: Marilyn Monroe!“ Marilyn Monroe var alltaf sár yfir því að hafa ekki haldið fast við að taka frekar Jean en Marilyn, en hún gerði sér líka grein fyrir því, að það var of seint að hugsa um það, eftir að hún var orðin stórstjarna. Fyrsta hlutverk hennar í 29. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.