Vikan


Vikan - 22.07.1971, Side 40

Vikan - 22.07.1971, Side 40
— Hvað er að, fröken Elsa, hversvegna háldið þér lakinu svona fast að brjóstunum? láta þessi vonbrigði fæla sig frá Hollywood um aldur og ævi. „Ég verð að hitta hann, ég bara verð ...“ Marilyn Monroe var skyndi- lega orðin ákveðin, hörð, full- orðin og siðast en ekki sízt hrædd um framtíð sína. Hún ætlaði að gera það sem fáir þorðu — og jafnvel létu sér detta í hug. Hún fór til vel var- innar skrifstofu Darryl’s F. Zanuck. Hún hafði aldrei séð hann ,en þegar samningnum var sagt upp fór hún til hans i ör- væntingu sinni. Einkaritari Zanucks sagði henni, að hann yværi í fríi í Sun Valley. Síðustu vonir Marilyn Mon- roe um að 20th Century Fox myndi gera hana að stjörnu, voru brostnar. Vikur og mánuðir liðu og líf Marilyn breyttist stöðugt til hins verra. Tekjur hennar voru lægri en nokkru sinni fyrr. Hún fékk atvinnuleysisstyrk, en það dugði varla fyrir mat, hvað þá að það dygði henni fyrir öllu því sem hún þurfti, ef hún ætl- aði að geta haldið baráttu sinni áfram. Hún reyndi að komast aftur inn í fyrirsætustörf, en hafði verið of lengi í burtu. Hún var búin að tapa þeim sam- böndum, sem hún hafði haft, og stöðuga vinnu var útilokað að fá. En einn maður gafst ekki upp á Marilyn á þessum tíma. Hann gekk á milli stúdióanna, ráðn- ingarstjóra, hæfileikaspæjara og leikstjóra til að biðja þá að gefa Marilyn eitt tækifæri. Það var umboðsmaðurinn hennar, Harry Lipton. Og loks datt Lipton í lukku- pottinn. Á endanum fann hann mann, sem vildi sitja kyrr nægilega lengi til að skoða reynslukvikmyndina sem hafði verið gerð með Marilyn hjá Fox hálfu öðru ári áður. Sá maður var yfirmaður hjá Columbia Pictures, Max Arnow. „Mér líkar hún,“ sagði Arnow eftir að hann hafði séð Marilyn á tjaldinu. „Komdu með hana hingað, og við gerum samning við hana.“ Marilyn og Lipton fóru til Columbia daginn eftir, og eftir stuttar viðræður við Arnow var dreginn upp 6 mánaða samn- ingur. Marilyn fékk 125 dollara á viku, og hún var látin hefja leiklistarnám á nýjan leik und- ir stjórn kennara Columbia, Natöshu Lytess. Natasha varð strax hrifin af ákafa og áhuga Marilyn. Eftir nokkrar vikur fór Marilyn að sýna umtalsverðan árangur, og ungfrú Lytess sá, að í þessum nemanda leyndust miklir hæfi- leikar. Ungfrú Lytess bar Marilyn vel söguna. Hún var einstakléga hæfileikamikil kona, og Mari- lyn var þess fullviss allt til dauðadags, að framfarirnar sem hún sýndi, hefðu verið Natöshu að þakka. Eftir að Natasha hafði mælt með Marilyn í nokk- urn tíma, ákváðu forráðamenn fyrirtækisins, að tími væri kominn til að Marilyn fengi að leika. Sú mynd var gerð á 9 dögum og hét Ladies in the Chorus. Þar lék Marilyn aðalhlutverkið, það fyrsta í röðinni, fatafelluna Peggy Martin .Hún fékk meira að segja tækifæri til að syngja tvö lög! Og Marilyn Monroe var snjöll Hún vissi hversu mikils virði það var fyrir leikara í Holly- wood að koma sér vel við blaða- mennina þar — ekki sízt slúð- urdálkahöfundana eins og Heddu Hopper og Louellu Par- son. Því hringdi hún í Louellu Parson og þakkaði henni fyrir þann stuðning, sem hún hafði veitt í dálkum sínum — sem voru lesnir um öll Bandaríkin. Marilyn sagði unfrú Parson, að það væri hún sem bæri aðallega ábyrgðina á þessu tækifæri. Þetta símtal var upphaf langrar og einlægrar vináttu á milli þeirra tveggja. Vináttu, sem stóð þar til Marilyn lézt árið 1961. En stjörnufrægð kemur ekki á einni nóttu. í þessu tilviki var það þó ekki aðalleikaranum, Marilyn Monroe, að kenna, heldur myndinni sjálfri. Ladies in the Chorus var verk eins manns, leikstjóra frá New York, og hafði sá, Harry Romm, aðallega fengizt við sviðssetn- ingar áður. Myndin var skáð B, sem þýðir að hún er ekki mjög góð og gaf Marilyn ekki það tækifæri, sem hún hafði búizt við. Það sem mynd þessi gerði í raun og veru fyrir hana var það eitt að kynna Marilyn fyrir manni, sem hún síðar giftist, Joe Di Maggio. Hún varð ást- fangin. Hér lýkur úrdrætti okkar úr ævisögu Marilyn Monroe. Framhaldið þekkja allir. Það verður aldrei til önnur Marilyn Monroe, og það er mjög ólíklegt að þetta nýja „Monroe-look“ verði vinsælt. Minningin um þessa dáðu leikkonu er enn of dýrmæt í hjörtum milljóna að- dáenda hennar. (ó.vald. þýddi úr sógunni Mzri- lyn Monroe, her own story, eftir George Carpozi, Jr.). PRICE OF FAME Framhald af bls. 14. að ganga í gegnum það tímabil og nú höfum við engar áhyggj- ur af því að við séum að stela neinu frá hvor öðrum.“ Og í framhaldi af því sem áð- ur var rætt, í sambandi við tvo píanóleikara og allt það, þá er rétt að geta þess að þeir hafa fengið með sér gítarleikarann Colin Green og trommarann Clive Thacker, en sjálfir leika þeir á píanó, orgel, gítara bassa og eitt og annað í viðbót. Það er helzt Alan sem leikur á bassann og er sagði mjög góð- ur, já, alveg einstaklega góður. Sjálfur segist hann spila á bassa til að sýna fólki að hann sé með tvær lappir, en eins og kunnugt er hefur hann alltaf setið við sitt orgel. Georgie seg- ist vera ágætur bassalekari og lýgur því ekki. Svo bætir hann við: „En að vísu hef ég alltaf verið einn bezti rythma-leikar- inn í bransanum.“ „SAGA OR SMÁBÆ" Framhald af bls. 14. Nú þóttust þeir hafa öll tromp í hendi sér, sem þeir og gerðu, og nú hótuðu þeir að birta myndirnar ef ekki yrði málað yfir Kristsmyndina og „boð- orðin“! Og ekki þótti þeim það nóg. Það vill svo til, að velvild- armaður okkar er í bæjarstjórn hérna og einn af andstæðingun- um hótaði því, að hann skyldi eyðileggja stjórnmálaferil hans, þ.e. velvildarmannsins. Og þá blöskraði okkar manni. Hann kom til okkar og sagði okkur alla málavexti og bað okkur að mála eða hengja eitt- hvað yfir áðurnefnd verk, sem við og gerðum. Tilefni þessa bréfs míns er að fræða fólk á íslandi á því hve sumir Siglfirðingar eru heittrúaðir! Einnig vildi ég gjarnan fá álit sem flestra á þessu máli og ég hef ekkert á móti „persónulegu áliti“ Ómars Valdimarssonar, því það er gott að einhverjir hafa sjálfstæða skoðun á málunum. Með þökk fyrir birtinguna. LfZA. Við þetta bréf hef ég í raun- inni litlu að bæta, en sendi heit- ar baráttukveðjur norður. CREAM ... Framhald af bls. 15. • vel í heimi) ætti að taka það að sér og það varð úr. Allar bókanir okkar fóru fram í gegnum mig, og mig langar til að láta það koma fram að þegar þetta var, lækkaði vikukaupið hjá mér um 20 pund (4200 kr. ísl.) frá því sem áður var. Upphaflega var hugmyndin að þetta yrði mín hljómsveit, en þeir Jack og Eric vildu að þetta yrði algjör samvinna, þannig að enginn yrði „hljómsveitar- stjóri“. Þá vildi ég náttúrlega að allar tónsmíðar yrði skráðar á okkur alla, þar sem ég fékk ekkert fyrir alla vinnuna sem ég lagði í bókanir og annað, en þeir vildu það ekki. „Sá sem semur, fær alla peningana fyrir það,“ sögðu þeir. Eftir þrjá mánuði var ég ó- ánægður með ástandið. Þeir vildu ekki einu sinni reyna að spila mörg þeirra laga sem ég hafði samið og svo kom að því að mér var tilkynnt að þeir ætluðu að ráða nýjan trommu- leikara. Ég veit ekki enn hvers vegna þeir gerðu það ekki, en það er eins gott að ekkert varð úr því hjá þeim. Það lá við frá upphafi að hljómsveitin leystist upp. Oft þurfti ég að drekka mig blind- fullan áður en ég gat unnið með þeim. Nú kemur ekki til mála að ég vinni með þeim undir neinum kringumstæðum. Tvö þeirra laga sem við sendum frá okkur voru mikið til sam- in af mér, en þau voru skrifuð á þá, svo ég fékk ekkert fyrir þau. En bað var ekki aðeins vegna peningana sem Cream leystist upp. Það komu alls konar hlut- ir þar inn í... Nýlega var því stungið að mér að það gæti orð- 40 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.