Vikan - 22.07.1971, Side 49
ÉG VIL LIFA -
ÞESS VEGNA RÖLTI
ÉG ÁFRAM
Þessi gamla kona er búin að
ganga yfir 60 kílómetra á fjór-
um dögum, frá hinu sveltandi
Austur-Pakistan til Indlands. Hún
var búin að missa syni sína og
konurnar þeirra og allt sem hún
hafði til að lifa fyrir. Ljósmynd-
arinn spurði hana, hve gömul hún
væri. Hún horfði á hann skiln-
ingsvana.
— Hve mörg sumur hefur þú
lifað, spurði hann þá.
— Ég hefi lifað alltof marga
vetur, svaraði hún.
Og hún hélt áfram göngu sinni,
kannske þangað sem hungrið var
ennþá sárara.
ÆVISAGA HINS EINA OG SANNA
CHURCHILLS KVIKMYNDUÐ
ÞRETTÁN TONN AF KAFFI GERA
STÚLKURNAR FAGRAR
Churchillf jölskyldan kemur nú
bráðum á kvikmyndatjaldið, en
nú verður það ævisaga þess
Churchills, sem við könnumst bezt
við, Winston Churchill, enda á
myndin að heita „Ungi Winston".
Hin ameríska móðir Churchills
verður leikin af Ann Bancroft,
sem er flestum kunn, enda hefur
hún fengið Óskarsverðlaun fyrir
kvikmyndaleik árið 1963 og það
ár fékk hún líka ensku verðlaun-
in. Robert Shaw leikur föður
Winstons, Lord Randolph Chur-
chill. Það eru Richard Attenbor-
ough og Carl Foreman, sem standa
fyrir kvikmyndatökunni.
Anna Bancroft á að leika inóður
Churchills, en hún hefur hlotiS
Oskarsverðlaun bæði í Bretlandi
og Bandarikjunum.
Það er sífellt verið að tönnlast á því að kaffi sé óhollt, en Hiro-
michi Matsu í Tokyo er frægur læknir, og hann segir, að kaffi sé
mjög hollt; það geri húðina mjúka og fríska, en hann segir, að það
eigi að drekka óbrennt kaffi. Brennda kaffið á að nota til að liggja
í því. Á myndinni, sem tekin er í fegrunarstofnun í Japan, eru 13
tonn af brenndu kaffi látið í ker og þar geta konurnar velt sér og
orðið ennþá fegurri.
29. TBL. VIKAN 49