Vikan


Vikan - 23.09.1971, Blaðsíða 6

Vikan - 23.09.1971, Blaðsíða 6
VONUNAR- HÁTÍÐIN MIKLA Aðalsalnum í ráðhúsinu í Ernakulam, Kerala, var skipt í hólf, og þar unnu hundrað læknar dag og nótt að því að vana karlmenn úr borginni og nágrenni hennar. Þeim sem létu framkvæma á sér aðgerð- ina var launað méð peningum, mat og fatnaði. Sextíu þúsund indverskir karlmenn létu vana sig af frjálsum vilja, og meðan þeir biðu eftir að komast á skurðarborðið var þeim skemmt með söng og dansi. Fyrir framan skurðklef- ana fimmtíu í ráðhúsinu urðu sjálfboðaliðarnir að bíða, unz nöfn þeirra voru kölluð upp. Svo leiðbeindu hjúkrunar- konur þeim inn í klefana. Hver aðgerð tók aðeins tíu mínútur. Læknirinn sker sundur sæðisgöngin, klemmir saman endana og saumar síðan fyrir þá. Eftir það er hlutaðeig- andi ekki fær um að geta börn, en hins vegar bíður hann ekkert tjón á kyn- orku sinni. RáSJiúsið í indversku borginni Ernakulam var lilómvöndum skreytt, og úti fyrir var flug- eldum skotið í gríS og erg. Inni voru hljóSfæri slegin og um mót- tökusalinn hvirfluSust lafmóSar dansmeyjar. Ernakulam liélt liátíS- lega mestu fjöldaskurSaSgerð allra tíma. Eitt liundraS læknar unnu dag og nótt að því að framkvæma litla en þýðingarmikla aðgerð á þúsundum ungra manna, það er að segja að gera þá ófrjóa. Hver aðgerð stendur yfir í nákvæmlega tíu minútur. Sæð- isgöngin eru skorin sundur við stað- deyfingu, endarnir síðan klemmdir og loks saumaðir saman. Þá fá menn sprautu gegn því að eiltlivað illt hlaupi i sárið, og að þvi búnu mega þeir fara lieim. Læknarnir unnu við þetta á vökt- um i mánuð, og höfðu þá gert ófrjóa sextíu þúsund menn frá Ernakulam og nágrenni. Þetta var framlcvæmt í alinenningssal ráðhússins, sem liólfaður liafði verið niður í fimm- tiu þaklausa klefa. Karlmenn þeir sem aðgerðin var gerð á voru allir kvæntir, minnst tveggja barna feð- ur og flestir fátækir. Allir gáfu sig fram af frjálsum vilja, en fjölda- skurðaðgerðin var skipulögð af fylkisstjórn Kerala og indversku ríkisstjórninni í sameiningu. Hæpið er þó að liugsjónir eða þjóðfélags- legur áliugi liafi ráðið miklu um að- strevmi sjálfboðaliðanna, heldur miklu fremur liitt að liverjum þeirra var af opinberri liálfu laun- uð liðsemdin með verðmætum upp á eittlivað tvö þúsund og fimm hundruð krónur, en það er talsverð auðlegð að dómi indverskra múga- manna. Hver maðm féklc að aðgerð- 6 VIKAN 38. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.