Vikan


Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 5

Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 5
að þú hafir áhuga á að taka þráðinn upp aftur þar sem hann slitnaði. Sennilega neitar hann fyrst til að byrja með en þá er bara að reyna aftur . . . og aft- ur . . . og aftur . '. . „Offita" Kæri Póstur! Ég þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Mig langar að biðja þig um ráðleggingar í sambandi við offitu. Hvaða megrunarkex eru góð? Fást þau í matvörubúðum? Hvað lestu út úr skriftinni? Hver svarar bréfunum í Póstinum? Með fyrirfram þökk fyrir gott svar. Ein spikuð. É=^=) Offita (eigir þú raunverulega við það vandamál að striða) er of alvarlegt mál til þess að við gerumst eitthvað „átoritet" í því sambandi. Snúðu þér til heimilislæknis þíns. Úr skriftinni má lesa að þú ert heldur ístöðu- laus og frekar viðkvæm. Póstin- um svarar Pósturinn. „Ekki hægt að tala um ... “ Kæri Póstur! Mig langar að biðja þig um að fræða mig um hluti sem ég held að ekki sé hægt að tala um við nokkurn nema þig. Ég er trúlofuð og er búin að vera það í rúmt ár. Þegar við erum búin að hafa samfarir, kemur svo mikið af sæðinu frá mér aftur, að ég held bara að það komi allt. Og nú spyr ég, kæri Póstur, er þetta eðlilegt? Kærastanum mínum finnst getn- aðarlimurinn ekki ganga nógu greiðlega inn í byrjun samfara; er það vegna þess að ég er ekki orðin nógu blaut? Ef svo er, hvað á þá að gera við því? Ég vona að ég fái svar, því ef þetta er ekki eðlilegt, þarf ég að leita læknis. Jóa Jóns. Já, þetta getur allt verið í hæsta máta eðlilegt. í fyrsta lagi er alls ekki víst að það sé sæðið sem um ræðir, heldur eru þessi vandamál sennilega samtengdari en þig grunar. Það er rétt hjá þér, að þessir erfiðleikar við upphaf samfara stafa að öllum líkindum vegna þess að þú ert ekki nægilega blaut. Við því væri sjálfsagt eðlilegast fyrir ykkur að teygja „forleikinn" eitthvað og þá finnið þið sjálf hvenær þú ert reiðubúin. Annars er hægt að nota feiti. Að samförum loknum og þegar fer að líða á þær, er mjög al- gengt að konur blotni óhemju mikið og þá mjög gjarnan þær sem illa blotna i byrjun, þannig að mjög óliklegt þykir okkur að það sé sæðið sem þú talar um. Ef þú ert aftur á móti þess full- viss og þetta ráð okkar dugar þér ekki, skaltu ekki hika við að fara til heimilislæknis þíns. Richard Chamberlain Kæri Póstur! Er ekki hægt að fá litmynd í VIKUNA af Richard Chamber- lain, manninum sem leikur dr. Kildare í sjónvarpinu. Hvað er hann gamall? Er hann lofaður? Ein sem hefur ekki skrifað áður. Við vorum með langa grein um Chamberlain í 22. tölublaði VIKUNNAR (þ. á.) og vísum við hér með á þá grein. Við erum með litmyndina í athugun. Lillian Roth Kæri Póstur! Viltu vera svo góður að segja mér hvort hún Lillian Roth er lifandi. Ef svo er, hvar býr hún? Með fyrirfram þökk. Unnur. 1=^=1 Ekki þorum við alveg að fara með það, en við munum ekki betur en að Lillian hafi horfið á vit forfeðra sinna fyrir allmörg- um árum. Ljóma smjörlíki allan baksturl LJOMA VÍTAMÍN SMJÖRLÍKI LJÓMA VÍTAMÍN SMJÖRLÍKI GERIR ALLAN MAT GÓÐAN OG GÓÐAN MAT BETRI m smjörlíki hf. 43. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.