Vikan


Vikan - 29.03.1972, Side 4

Vikan - 29.03.1972, Side 4
ReyniS LIMMITS súkkulaði- og megrunarkexið strax í dag Fæst nú aftur í öllum apótekum Afar bragðgott Heildsölubirgðir: G. OLAFSSON, Aðalstræti 4 í\ /1/Í^ISvJ ~—i i _ SKARTGRIPIR rnu —i FERMINGARGJÖFIN T AR Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. ■ SIGMAR OG PAIMI - Hverfisgötu 16a. Sími 21355 PÓSTURINN Svar til HSM Ekki vill Pósturinn viðurkenna að rangt hafi verið að birta um- rætt bréf; við leggjum mikið upp úr ritfrelsi hér á blaði, eins og oft hefur verið bent á. En hitt getur Pósturinn ekki annað en játað að honum fórst heldur óhönduglega að svara að því sinni, og er okkur það að sjálf- sögðu harmsefni. Hitt er svo annað mál að fleiri mættu líta sér nær, og er bréf þitt, sem þú þrátt fyrir allt hafðir vit á að óska að ekki yrði birt, vott- ur þess að þú sért þeirra á með- al. Annað eins plebbaorðbragð hefði ekki orðið mannskemm- andi fyrir aðra en sjálfan þig, hefði það birzt á prenti. Til aö niðurlægja Ömar Virðulegi Póstur! Tilefni þessa bréfs er rætinn og ómerkilegur þvættingur sem einhver „Gamall maður fyrir norðan'' skrifaði í blaðið sem kom út seytjánda febrúar. Ég nenni ekki að vera að hugsa um það sem hann sagði í upp- hafi, en í niðurlagi bréfsins gerði hann máttleysislega til- raun til að niðurlægja Ómar Valdimarsson, þann sem sér um þáttinn „Heyra má þó lægra láti". Segir hann þann þátt þvælu. Ég las Vikuna í hópi góðra kunningja og vorum við öll sammála um að svo væri ekki, því „Heyra má . . ." er tvímælalaust bezti poppþáttur sem fyrirfinnst í íslenzkum blöð- um. Okkur langaði aðeins til að segja Ómari að hann þarf ekki að hafa áhyggjur af þvaðrinu í þessum gamla (það er einmitt þannig fólk sem stemmir stigu við heiðarlegu og heilbrigðu þjóðfélagi), yfirgnæfandi meiri- hluti lesenda þáttarins er mjög ánægður með hann. Kær kveðja til Póstsins og megi máttarvöldin opna augu og hjarta gamla mannsins fyrir norðan. J. H. Sá gamli Norðlendingur hefur greinilega komið við kvikuna í þó nokkrum lesendum með bréfi sínu, ef marka má bréfin sem stöðugt tínast til okkar viðvíkj- andi skrifi hans. Við bjóðum sem flesta velkomna í þær rök- ræður. Og ekki þætti okkur neinu spilla þótt sá aldraði sendi okkur línu aftur. Árás á biblíulega kristni Ágæti Póstur! Ég ávarpa þig sem ágætan og er það með réttu. En því miður verður hið sama lýsingarorð vart notað um efnisval blaðsins að undanförnu. Blaðið hefur lagzt svo lágt að birta niður- rifsgreinar, stefnt gegn krist- inni kenningu. Á ég þar við endurholdgunarkynningu og spíritismavillu sem borin er á borð fyrir lesendur sem sann- indi. Ég veit að slíkt efni á greiðan aðgang til margra Islendinga, og geri ég ráð fyrir að það sé röksemd sem þið notið ykkur til varnar, en það nægir ekki til réttlætingar því greinar þessar eru bein árás á biblíulega kristni og vænti ég að blaðið taki ekki afstöðu gegn henni. Hægt er að bæta fyrir þessa hlutdrægni með því að birta hina biblíulegu kenningu. Væri tilvalið fyrir ykkur að leita til dæmis til biskupsins og kenni- manna hinna „evangelísku" safnaða sem hafa vilja, getu og þekkingu til að fræða þannig að treystandi sé. Með vinsemd, G. Þ. P.S. Til umþenkingar sendi ég ykkur eftirfarandi ritningarvers: Tít. 1:10, 11 og I. Tím. 4:7. Pósturinn er ekki verr kristinn en svo að hann hefur Biblíuna aldrei utan seilingarfæris er hann svarar bréfunum til sin, og raunar fleiri helgirit. Til upplýs- ingar þeim lesendum, sem kann- ski eru ekki eins vel settir með lesningu, birtum við hér tíunda og ellefta vers fyrsta kapítula í bréfi Páls postula til Títusar, svohljóðandi: Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégóma- mál og leiða í villu, allra helzt eru það umskurnarmennirnir, og verður að stinga upp í þá; það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna 4 VIKAN 13. TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.